Vinnan - 01.12.1943, Qupperneq 35
leg aðferð, enda var trúnaðarmannakerfi Dagsbrúnar
venjulega lítið meira en nafnið.
Þetta varð til þess, að stjórn Dagsbrúnar ákvað að
fara inn á nýjar og lífrænni brautir í þessu efni.
Síðastliðið vor efndi húntilkosningartrúnaðarmanna
á vinnustöðvum. Og þótt í fyrsta skiptið væri, tókst
þetta þó svo vel, að um 40 trúnaðarmenn voru kosnir
víðsvegar á vinnustöðum. Verkamennirnir afgreiddu
venjulega málið í kaffitíma, stungu upp á mönnurn eftir
vild, greiddu síðan atkvæði og sá, sem hæsta atkvæða-
tölu fékk, hlaut kosningu.
Það er ætlunin, að slík kosning trúnaðarmanna fari
fram á ári hverju.
Hin stutta reynsla okkar af þessari aðferð hefur
sannfært okkur um, að hún er rétt.
Kosning trúnaðarmanna á vinnustöðum hefur þessa
kosti:
Hún tryggir fyllsta lýðræði verkamanna í vali trún-
aðarmanna.
Hún gerir verkamenn almennt virka í starfi félagsins
og tryggir hið nauðsynlega samband milli meðlimanna
og forustunnar.
Hún gerir verkamönnum auðvelt að skipta um trún-
aðarmann, ef nauðsyn krefur.
Hún treystir grunn samtakanna — einingu verka-
manna á vinnustöðvunum.
Á sköpun trúnaðarmannakerfis eru þó ytri erfiðleik-
ar, eins og drepið var á hér að framan.
Það eru hinar sífelldu breytingar ó vinnustöðvum,
eða, ef svo mætti segja, skammlífi vinnustöðvanna.
Þetta gildir einkum um algenga erfiðisvinnu og alla
árstíðavinnu.
Ráðið til að yfirvinna þessa erfiðleika virðist ekki
vera nema eitt: Hver einasti launþegi verður að vera
sannfærður um það, að fyrsta verkefnið, sem leysa þarf,
þegar nýr vinnustaður er myndaður, er að kjósa trún-
aðarmann.
Hvar sem byrjað er á húsgrunni, síldarsöltun o. s.
frv., hvar sem menn ráðast á skip, í verksmiðju o.s. frv.,
þarf fyrst og fremst að kjósa trúnaðarmann. Þetta er
ekki sízt nauðsynlegt á skipum.
Mér er það ljóst, að þetta krefst mikillar upplýsinga-
starfsemi af hálfu Alþýðusambandsins og mikillar prak-
tiskrar starfsemi af hálfu hverrar félagsstjórnar. En
slíkt starf svarar kostnaði. Skipulagning lifandi, öflugs
og hreyfanlegs trúnaðarmannakerfis á öllum vinnu-
stöðvum til sjós og lands þýðir hvorki meira né minna
en allsherjar eflingu verkalýðssamtakanna.
Hér verður ekki farið út í verkefni trúnaðarmanna
og störf þeirra, en sú ósk aðeins látin í Ijós, að forustu-
menn verkalýðsfélaganna og áhugasamir verkamenn
veiti spursmálinu um kosningu trúnaðarmanna á öllum
vinnustöðvum verðskuldaða athygli.
Þórður
Kristjánsson
verkamaður
Fæddur 31. marz 1867
Dáinn 22. júlí 1943
Minning
Þú ert nú til grafar genginn,
gamall, lúinn verkamaður.
Þér er hvíldin friðar fengin,
framtíð bezt og dvalarstaður.
Þér ég kynntist, þegninn góði,
þrœldómsins við stritið forðum.
Langar mig úr mögrum sjóði
minnast þín í fáum orðum.
Frábœr var þín fórnarlundin,
fúsastur að hjálpa og iðja.
Mörg var notuð nœturstundin
nágrannana til að styðja.
Heim að morgni verkin vinna,
vékst ei hót frá dagsins önnum.
Fyrir brauði þínu og þinna
þáðir aldrei hjálp af mönnum.
Ollum varstu trúr og traustur,
tveggja starfi gerðir skila.
Að líkamsbygging hetja hraustur,
hjartað góða varð að bila.
Vildir bœði í verki og orði
velja úr kenning meistaranna,
Enda var þinn andans forði
afl frá hœðum dýrðarranna.
Þakka vil ég, Þórður, alla
þína tryggð á lífsins vegi.
Lœt því nú á leiðið falla
lítið blóm úr hjartans teigi.
B. Á. Eggertsson
frá Skiphyl.
VINNAN
245