Heimilispósturinn - 01.11.1949, Side 12

Heimilispósturinn - 01.11.1949, Side 12
LIS BYSDAL: Eg vil vera ung. VIÐ erum allir búnir vissum kostum frá náttúrunnar hendi og getum ávaxtað þá vel eða illa. Það borgar sig að láta kostina njóta sín, t. d. með því að láta bera sem mest á fallegu hári og klæðast kjól, sem lætur mittið koma vel í ljós — ef mað- ur hefur þá fallegt mitti! Þetta ættu að vera sjálfsagðir hlut- ir, en það er minnzt á þá hér, af því að mörgum sést yfir þá eða vanrækja þá. Hitt er svo annað mál: Haf- ið þér gert yður ljóst, hvers kon- ar „týpa“ þér eruð og reynið þá að láta hana njóta sín sem bezt? Fáar okkar eru svo sér- kennilegar, að það sé hægt að skipa okkur í ákveðinn flokk, kalla okkur Gretchen-, Ma- donnu- eða Carmen,,týpu“, o. s. frv., en auðvitað getur það átt við um sumar konur, og þá eiga þær að láta sérkennileik sinn koma sem bezt fram, svo sem með hárgreiðslu, kjólum, skóm, höttum o. s. frv. Nei, þegar við tölum um „týp- ur“, verðum við að ræða um þær í víðari merkingu. Eftir- taldar ,,týpur“ eru mjög al- gengar: 1. íþróttastúlkan. Hún hreyf- ir sig rösklega, er hagsýn, kát og ef til vill dálítið drengjaleg. 2. Kvenlega, viðkvæma stúlk- an, sem er veikbyggð og þarfn- ast hjálpar og stuðnings. 3. Móðurlega stúlkan, sem oft er nokkuð feitlagin og 10 ,,mömmuleg“, en skortir einatt glæsileik. Það er ljóst, að þessar „týp- ur“ og margar aðrar, geta notið sín vel eða illa, og það er hægt að bæta úr miklu með dálítilli hugkvæmni, en lítilli fyrirhöfn. Mesta hættan fyrir íþrótta- stúlkuna er sú, að hún líkist karl- mönnum um of. Ef til vill mál- ar hún sig ekki og gengur stutt- klippt, af því að henni þykir það þægilegt. En ætlunin er þó ekki að líkjast pilti, heldur vill hún vera rösk og falleg stúlka. Þess vegna verður hún að hugsa vel um andlit sitt, enda þótt hún eigi að velja daufan lit á varir og neglur. Hárið má gjarna vera stutt, ef það liggur smekklega. Kvenlega stúlkan getur haft mikla möguleika. Hættulegast fyrir hana er að vera leiðinleg. Það er ekki nóg að vera kven- leg og fíngerð, — það er ekki einkenni æskunnar og ekki alveg eðlilegt! Karlmenn verða oft leiðir á teprulegum stúlkum. Þessi „týpa“ þarf að lífga sig upp, bæði með hárgreiðslu og réttu kjólavali. Móðurlega stúlkan þráir oft- ast að vera grennri, og það er rétt, því að fólk sýnist eldra, ef það er holdugt! En maður má ekki megra sig of snögglega, því að það hefur þær afleiðing- ar, að andlitið verður þreytu- $59

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.