Heimilispósturinn - 01.11.1949, Page 13
legt. Og fólk getur líka verið
unglegt, þó að það sé ekki mjög
grannt.
Hárgreiðsla og „make-up“ á
að fara eftir höfuðlaginu.
Margar stúlkur nota alltaf
sömu greiðslu. Þær halda, að
þeim geti ekki f arið vel að greiða
sér öðruvísi. En það er oftast
misskilningur, því að það er
hressandi og yngjandi, að breyta
um greiðslu. Setjist þér niður
fyrir framan spegilinn og gerið
tilraunir með nýja greiðslu, en
byrjið á því að athuga, hvern-
ig andlit yðar er, hverskonar
höfuðleg þér hafið og hvernig
hálsinn er! Það byggist nefni-
íega á þessu, hvaða greiðsla fer
yður bezt!
Ef þér eruð breiðleit, eigið
þér ekki að undirstrika það með
því að greiða hárið að eyrun-
um, þér eigið heldur að greiða
yður slétt og hafa hnút í hnakk-
anum. Ef til vill fer yður vel
að skifta í miðju, einkanlega ef
Iangt er á milli augnanna.
Ef þér eruð langleit, eigið þér
ekki að greiða hárið upp á höf-
uðið, en reyna að vega á móti
því með hári við eyrun. Skiptið
til hliðar eða alls ekki. Ef þér
eruð kringluleit, er bezt fyrir
yður að greiða hárið upp á höf-
uðið í krullum, en sennilega fer
Claudette Colbert-greiðslan yð-
ur ágætlega. Toppur á bezt við
hátt enni, en ef það er hreint
og fallegt, er ef til vill skaði
að fela það.
Ef þér hafið stuttan háls, fer
yður illa að vera með sítt hár
(sem er ekki heldur í tízku),
því að þá sýnist hálsinn enn
styttri. Klipnið hárið fremur
stutt og krullið það neðst í
hnakkanum eða notið slétta
hnakkaspennu.
Gætið þess ávallt, þegar þér
veljið yður greiðslu, að enda
þótt þér sjáið hana aðallega
framan frá í speglinum, þá sjá
aðrir hana engu síður frá öðr-
um hliðum. Þess vegna er þýð-
ingarmikið að nota hnakkaspeg-
il. Margar konur hafa fremur
flatan hnakka. — Það er hægt
að bæta úr því með því að krulla
hárið á réttum stað og gera
hnakkann þar með ávalari.
Hvað ,,make-up“ snertir, þá
verður líka að taka tillit til lög-
unar andlitsins, sérstaklega ef
farði (rouge) er notaður. Ef
andlitið er lítið, á að setja farð-
ann langt út á vangann, næst-
um því út á kinnbeinið, en breitt
andlit sýnist minna, ef farðinn
er settur neðar og innar. Það er
um að gera, að litaskiptin séu
mild, en ekki áberandi. Auga-
brúnirnar hafa mikla þýðingu
fyrir andlitssvipinn; það má
mjókka þær (aldrei með rak-
vélablaði! alltaf með pinsettu)
og gera þær dekkri. Það er hægt
að fá augabrúnirnar litaðar á
hárgreiðslustofum, en það er
líka hægt að gera það sjálf, með
bursta og þar til gerðum lit.
Ef þér vitið það með sjálfri
yður, að þér séuð snyrtileg og
glæsileg kona og það muni fara
yður vel, að gera tilraunir með
augabrúnirnar, þá skuluð þér
gera þær. Þegar Marlene Die-
trich fer svo vel að hafa auga-
brúnir eins og fuglsvængi, þá er
það einmitt af því að hún er —
Marlene Dietrich.
Maður nokkur sagðist ekki vilja
sjá nema ljóshært kvenfólk, af þvi
að hann væri svo myrkfælinn.
9 ? 9
11