Heimilispósturinn - 01.11.1949, Qupperneq 15
HELGA-MARIE BENTOW:
SYNDAFALL.
T>ráðum verður Erla þriggja
ára, og Erla segir, að nú
séu ekki margir miðar eftir
að afmælisdeginum hennar. Á
hverjum morgni klifrar Erla
upp á eldhúsbekkinn og tekur
dagatalið niður. Mamma verð-
ur að flýta sér að rífa af, svo
að afmælisdagurinn hennar
Erlu komi fljótt, og hún spyr
mömmu, hvort hún megi ekki
rífa marga miða af.
Hversdagslega gengur Erla
í samfestingi, og Erla leikur
sér við Wenche og Grétu og
fressköttinn, Júlíus, og hún seg-
ir Wenche og Grétu ævintýri.
Lísa litla var lítil, Lísa litla
grét og Lísa litla var ein úti í
skógi. Langt niðri í jörðinni
var Lísa litla. Og Erla syngur.
Mamma hafði sagt Erlu frá
Lísu litlu, og — mamma hefur
kennt Erlu að syngja og Erla
syngur fyrir fressköttinn Júlíus.
Á sunnudagsmorgnum er
Erla ekki í samfestingi og hún
leikur sér ekki við Wenche og
Grétu, og fresskötturinn Júlíus
verður að sjá um sig sjálfur.
Erla er í nýstroknum kjól, með
stóran borða í svörtum lokkun-
um og í rauðum skóm. Hún
trítlar gætilega eftir malar-
stígnum. Wenche og Gréta
kalla til hennar, en hún lítur
ekki við, því að hún á að fara
í sunnudagsheimsókn.
Snemma á hverjum sunnu-
dagsmorgni kemur Erla til mín,
aðra daga kemur hún ekki, því
að hún hefur ekki tíma til þess,
og hún veit líka, að ég hef
ekki heldur tíma til þess. Ég
leigi kofa hjá frú Strandebo.
Kofinn er skammt frá heimili
Erlu.
Kofinn er í stórum garði og
umhverfis hann vaxa rósir og
valmúar. Eg er ekki komin á
fætur, þegar Erlu ber að garði.
Ég heyri hana masa fyrir ut-
an: súkkulaði, sælgæti, ævin-
týri „ég kem og tek þig,“ sagði
hafurinn Brúsi, og svo fer Erla
að syngja. Fyrir utan hænsna-
kofann nemur Erla staðar og
segir: „Gagg, gagg, gagg.“
Það líður góð stund, áður en
Erla kemur inn — því að hún
nær ekki upp í handfangið á
hurðinni, en Erlu verður ekki
ráðafátt. Hún sækir lítinn
kassa, sem er fyrir utan
hænsnakofann. A honum stend-
ur Erla, og þá getur hún opn-
að dyrnar — en hún fer aftur
með kassann, því að Erla er
reglusöm. Erla hneigir sig og
brosir: Góðan daginn, segir
Erla og gýtur augunum til
töskunnar minnar, sem liggur á
borðinu, og næstum áður en ég
hef beðið hana um að rétta mér
hana, hefur hún náð í töskuna,
því að hún veit að í henni er
súkkulaði, og við smjöttum
dálítið, því að Erlu finnst
súkkulaði svo gott.
Ég spyr, hvort hún hafi
nokkuð að segja mér. Erla seg-
ir mér frá ævintýrinu um Eng-
$29
13