Heimilispósturinn - 01.11.1949, Side 34

Heimilispósturinn - 01.11.1949, Side 34
KVIKMYNDAOPIMAIM 1111111111 ii iiiiiiiinmiiiii iiiiiiiiiiiinimi iiiiiiiiiiimiii n m n n TJARNARBÍÓ Sagan af Al Jolson Aðalhlutverk: Larry Parks og Evelyn Keyes. Leikstjóri: Alfred E. Green. Gerð af Columbia. Til skamms tíma var A1 Jol- son einn vinsælasti söngvari Bandaríkjanna. Vinsældir hans voru gífur- legar. Frami hans á listamanns- brautinni var æfintýri líkastur. Nú hefur Columbia látið gera kvikmynd af lífi A1 Jolsons, sigr- um hans á sviði listarinnar og sigrum og ósigrum í einkalífi hans. Larry Parks leikur Jolson, og gerir það aðdáanlega vel, að sögn þeirra, sem þekkja Al. Jolson. Evelyn Keys leikur konu Jol- sons og er leikur hennar éinnig framúrskarandi. Fjöldi alþekktra og vinsælla söngva er sunginn í myndinni af Larry Parks og segja þeir, sem til þekkja, að enginn mun- ur sé á honum og A1 Jolson sjálfum. Meðal þessara laga eru: ,,Swanee“, „California, here I come“, ,,My Mammy“, imiiiMiimmiinmuMimiMiMuuimHiMtiiinmii Evelyn Keyes GAMLA Bló Anna Karenina Aðalhlutverk: Vivien Leigh, Sir Ralph Richardson og Kieron Moore. — Leikstjóri: Julian Duvivi- er. — Gerð af London Film. Skáldsagan „Anna Karenina“ eftir rússneska stórskáldið Leo Tolstoy er eflaust ein mest lesna ástarsaga heimsbókmenntanna. Nýlega hefur hún birzt í ísl. þýðingu á vegum Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Eins og að lík- um lætur hefur sagan verið kvikmynduð, og það oftar en einu sinni. Kunnastar eru tvær kvikmyndir, sem Greta Garbo lék í, þögul mynd gerð 1927 og talmynd 1935. Nú hefir Gamla Bíó fengið nýja stórmynd, sem gerð hefur verið eftir sögunni af London Film, kvikmyndafélagi Sir Alex- ander Korda. Hefur hann ekk- ert sparað til þess að myndin gæti orðið samboðin sögu Tol- stoys. Til að stjórna töku mynd- arinnar réði hann Julien Duvivi- er, einn fremsta leikstjóra Frakka. Þá vandaði hann eigi síður val leikaranna í öll hin veigameiri hlutverk. Vivien Leigh fékk hann til að leika aðalhlutverkið. Eins og kunnugt er varð hún fræg fyrir leik sinn í myndinni „Á hverfanda hveli“, síðan hefur hún aðeins leikið 1 örfáum myndum, en allt hafa það verið úrvalsmyndir: „Lady Hamilton", Sesar og Kleópatra“ og „Waterloo brúin.“ Leikur liennar í „Anna Karenina" mun verða flestum ógleymanlegur. Með, örnur aðalhlutverk í myndinni fara þeir Sir Ralph Richardson, sem leikur eigin- mann Önnu, Alexei Karenin, og Kieron Moore, sem leikur Vron- sky greifa, elskhuga hennar. Ralph Richardson er einn af fremstu leikurum Englendinga, sem hefur undanfarin ár, á- samt Laurence Olivier, stjórnað hinum fræga „Old Vic“ leik- flokki. Árið 1947 voru þeir báð- ir aðlaðir af Bretakonungi fyrir leikafrek'sín. Kieron Moore er ungur og lítt þekktur leikari. „Goodbye my bluebell“, „Liza“, „You made me love you“, „I want a girl“, „There’s a Rainbow Round My Shoulder“, „Rock-A-Bye your baby“, og mörg önnur. Myndin er talin ein fremsta músik-mynd á sínu sviði, sem framleidd hefur verið í Banda- ríkjunum. Tjarnarbíó fær þessa mynd á næstunni, og verður hún senni- lega jólamyndin í ár. Vivian Leigh og Sir Ralph Richardson

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.