Vinnan - 01.02.1947, Síða 15
r
Ungar rússneskar íþróttastúlkur i skrúðgöngu á Rauðatorginu
urvinnu. Konur með barn á brjósti fá ýý stundar
frí a hverjum 4 stundum, auk síns venjulega mat-
artíma.
Með lögum er ákveðinn einn hvíldardagur í
hverri viku og 2 til 4 vikna hvíld á ári með full-
um launum. Ef læknir telur hættu á því, að starf
sé hættulegt heilsu þess, er það vinnur, ber tafar-
laust að flytja viðkomandi starfsmann að annarri
vinnu, sem lreilsu lrans stafar ekki hætta af. Yfir-
vinnu má ekki vinna án sérstaks leyfis verkalýðs-
félaganna, þó ekki lengur en 3 stundir í einu, og
greiðast þá 50% launaálag á 2 stundir, en 100%
á þá þriðju.
Enginn nýr vinnustaður eða verksmiðja getm
tekið til starfa án undangenginnar skoðunar þar
til skipaðrar nefndar, er gætir þess vandlega, að
öllum ákvæðum laga um öryggi og aðbúnað
verkamanna sé fullnægt.
Ríkið ver árlega miklu fé til að bæta aðbúnað
á vinnustöðvum. Árið 1946 var þessi upphæð
yfir 500.000.000 rúblur og er þess vandlega gætt
af stjórnarvöldunum, að þessu fé sé eingöngu var-
ið til endurbóta á hollustuháttum og öryggi
verkamanna.
Allur kostnaður vegna tryggingarlöggjafarinn-
ar er greiddur af atvinnufyrirtækjunum og rík-
inu, án nokkurs framlagS af hendi almennings.
Lögin tryggja verkamenn í veikinda- eða slysa-
tilfellum, halda uppi lrvíldar- og hressingarheim-
ilunr, þar sem verkamenn geta eytt sumarleyfi
sínu gegn engu eða mjög vægu gjaldi. Á árunum
fyrir styrjöldina var varið til þessara trygginga
8.700.000.000 rúblum, en hækkaði upp í 10.000-
000.000 rúblur árið 1945.
Á styrjaldarárunum varð þjóðin að leggja fram
alla krafta sína til tryggingar sigrinum og voru
þá ýms atriði í lögunum um vinnuvernd ekki
framkvæmd um tíma, svo sem ákvæðin um bann
við aukavinnu og um sumarfrí, en full greiðsla
kom auðvitað í móti. Konum var einnig heimil-
að að vinna ýms þau verk, er áður voru ekki tal-
in við hæfi þeirra. Þessar undanþágur voru aðeins
tímabundnar meðan þarfirnar voru mest aðkall-
andi og framkvæmdar með fullu samþykki verka-
lýðssamtakanna.
í Sovétríkjunum er eftirlitið með framkvæmd
vinnuverndarlaganna í höndum verkalýðsfélag-
anna. Hafa þau þúsundir liæfra eftirlitsmanna til
þeirra starfa, auk þess sem Iwer einstakur með-
limur þeirra gætir réttar síns.
VINNAN