Vinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 19
virkni og samvizkusemi — kannske fullmikilli
varfærni —, og sá grundvöllur stendur enn óhagg-
aður. Alltaf hafa félagsmenn notið jafnréttis til
allra félagsmála.
Kaupgjaldsmál
íslenzka múrarastéttin er ung að árum. Fyrsta
sveinsprófið í múraraiðn hér á landi er tekið
1909, og þá höfðu einir 5 íslendingar lokið sveins-
prófi í iðninni erlendis.
Þótt steinhúsum væri þá óðum að fjölga, var
vinna í iðninni ærið stopul, enda margir, sem
unnu að múraravinnu, þegar sú vinna var fyrir
hendi, er litu á hana sem ígripastarf, sem þeir
stunduðu aðeins öðrum þræði, en aðalstarf þeirra
títt annað, svo sem sjómennska á vertíðum, grjót-
nám og þess háttar. Það er því ekki að undra,
þótt stéttin væri nokkuð laus í reipunum fram
eftir árum, og erfiðlega gengi fyrir þá, er gera
vildu múraravinnu að lífsstarfi sínu, að tryggja
sér möguleika til lífvænlegrar afkomu með því
að vinna að iðn sinni eingöngu. Barátta Múr-
arafélags Reykjavíkur er því oft meira barátta
fyrir réttindum og viðurkenningu, heldur en
sómasamlegum launakjörum.
Eins og áður getur er samþykkt á framhalds-
stofnfundi, að tímakaup félagsmanna skyldi vera
kr. 0.85 og er það 10 aura hækkun frá því, sem
vei'ið hafði; ekki vildu atvinnurekendur fallast
á þessa kauphækkun. Á einurn vinnustað — húsi
Nathans & Olsens — lögðu múrarar niður vinnu
um nokkurt skeið. Ymsum mun liafa þótt óþarf-
lega djarft af stað farið, enda var sú samþykkt
gerð 20 dögum síðar, „að ganga að boði vinnn-
veitenda fyrst um sinn“. Þeirra tilboð var kr. 0.75
um klst.
Það má því telja, að þessi fyrstu átök félagsins
fyrir bættum kjörum meðlimanna hafi mistekizt.
Mun því ýmsum félagsmönnum hafa fundizt sem
betur þyrfti að búa um hnútana áður en lagt yrði
til atlögu aftur. Á þessu sama ári er borin fram
tillaga um það, að sækja um upptöku í Alþýðu-
samband íslands. Tillaga sú náði þó ekki sam-
þykki.
Á þessum sama umgetna framhaldsstofnfundi
fálagsins var fulltrúaráðinu falið að semja ákvæð-
isvinnuskrá fyrir félagsmenn. Á tveim fundum í
maí það ár, er verðskráin samþykkt og afgreidd
til prentunar. Verðskráin er iðulega endurskoðuð
á næstu árum, enda mun þá hafa verið unnið sam-
kvæmt lienni að nokkru ráði. En með aukinni
leikni í iðninni og vaxandi vinnuhraða, munu at-
vinnureKendur hafa talið sér hagkvæmara að
greiða vinnuna samkvæmt tímakaupi. Og um
TRÚNAÐARMANNARÁÐ. Fremri röð frá vinstri: Aðalsteinn Sigurðsson, varaformaður, Sig. Guðmann Sigurðsson, ritari, Guð-
jón Benediklsson, formaður, Svavar Benediktsson, gjaldkeri félagssjóðs, Sveinn Pálsson, gjaldkeri styrktarsjóða. Aftari röð: Aage
Pedersen, Ragnar Finnsson, Ólafur Pálsson, Kjartan Kjartansson, Þorfinnur Guðbrandsson, Magnús Árnason.
VINNAN
11