Vinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 15

Vinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 15
HELGI HANNESSON: BANDARIKJAFÖR sendinejndar Alþýðusambands íslands siðast Uðið sumar. EFNAHAGSSAMVINNUSTOFNUNIN í Wash- íngton, E. C. A., sem fer með yfirstjórn Marshall- aðstoðarinnar og verkalýðssamtökin í Bandaríkj- unum taka mikinn þátt í, hefur mjög að því unn- ið að auka kynni milli verkalýðssamtaka þeirra landa, sem efnahagsaðstoðarinnar njóta annars vegar og verkalýðssamtaka Bandaríkjanna hins vegar. Hefur hún um leið gefið fulltrúum verka- lýðssamtakanna í Evrópu sem beztan kost þess að kynnast atvinnuháttum Bandaríkjanna, menn- ingu þeirra og lífskjörum fólksins. í þessu skyni hefur E. C. A. boðið verkalýðs- samtökum ýmissa landa að senda fulltrúa til Bandaríkjanna til dvalar þar um skemmri eða lengri tíma. Skipta sendinefndir þessar orðið hundruðum og fulltrúatalan þúsundum. A þessu ári átti Alþýðusamband Islands þess kost að senda til Bandaríkjanna nefnd eins og þá, sem hér hefur verið getið, og hef ég lofað „Vinnunni“ að segja örlítið frá för þessari. En eins og að líkum lætur, verður ekki því við komið í stuttri tímaritsgrein að stikla nema á nokkrum atriðum. Sendinefndina skipuðu þessir menn|i Finnur Jónsson alþingismaður, Sæmundur E. Ólafsson varaforseti A. S. I., Ingimundur Gestsson ritari A. S. I., Guðmundur Sigtryggsson stjórnarmeð- limur A. S. L, Hálfdán Sveinsson form. Vlf. Akra- ness og undirritaður. Allt eru þetta menn, sem um ára raðir hafa starfað í verkalýðshreyfingunni og sumir hverjir um tugi ára. Finnur Jónsson var fararstjóri okkar og sann- aði reynslan, að þar höfðum við fengið mann í það starf, sem leysti það af höndum með svo miklum ágætum, að ekki varð á betra kosið. Lagt var af stað 11. júní með amerískri far- þegaflugvél frá Keflavíkurflugvelli kl. um 11 að kvöldi í úrhellisrigningu og mjög lágskýjuðu. En brátt vorum við komnir upp úr skýjaþykkninu og flugum í glampandi sólskini öllum skýjum ofar. Ráðgert var að fljúga beint til New York, en yfir miðju hafi laskaðist einn hreyfill vélarinnar, og urðum við tilneyddir að lenda í Nýfundnalandi og skilja þar við okkar mjög svo þægilegu og hraðskreiðu vél. En til Nýfundnalands vorum við aðeins röskar sex klukkustundir. Þarna á Step- hanville-flugvelli biðum við svo eftir annarri flugvél í tvær stundir. Var sú vél ein hin stærsta, er við komum í á ferð okkar, og var hún tveggja hæða. Á flugvellinum við New York komu fulltrúar E. C. A. til móts við okkur. Var þaðan haldið inp í borgina til Hótel Gregoria í 34. stræti rétt hjá hinni miklu byggingu Empire State, sem er 102 hæðir og 1250 feta há. Var nú tekið til óspilltra málanna að skipuleggja för okkar um Bandaríkin, að svo miklu leyti sem það hafði ekki verið áður gert með bréfasambandi að heiman. Við áttum þess kost að dveljast þar vestra um átta vikna skeið, en sökum starfa heima fyrir gátum við ekki verið lengur en sex vikur, og urðu þó tveir sendinefndarmannanna, þeir Sæm- undur og Ingimundur, að fara heim eftir fimm vikur. Síðari hluta 12. júní og daginn eftir notuðum við til að skoða okkur um í þessari miklu heims- borg, en að kvöldi 13. júní lögðum við af stað með járnbrautarlest til Chicago. Leið okkar lá nú yfir frjósamt akurlendi. Á báðar hendur gat einn- ig að líta skógi vaxið land. Hér vorú mörg og VINNAN 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.