Vinnan - 01.12.1951, Síða 18
arnir. En hér var allt, sem á skylt við kynþátta-
hatur, víðs fjarri.
Þá heimsóttum við þarna ýmsar merkar land-
búnaðarstofnanir.
Boston. Frá Madison var flogið til Chicago.
Dvölin var þar að þessu sinni aðeins ein klukku-
stund, eða meðan skipt er um flugvél. Síðan var
flogið áfram til Boston í verra flugveðri en
nokkur okkar hafði áður lent í. En til Boston
náðum við þó, að vísu alllöngu eftir áætlun,
vegna óveðurs, er m. a. eyðilagði fyrir okkur að
sjá Niagara-fossana, eins og ætlað hafði verið.
I Boston skoðuðum við frystihús, fiskiskip,
fiskmarkaði og ýmsar fleiri vinnustöðvar.
Frystihúsin eru með svipuðum hætti og hér
heima, en þarna vinna einungis karlmenn við
fiskvinnu, og er kaupið mjög hátt miðað við kaup
hér á landi eða um 28 kr. á klst.
Meðferðin á fiskinum við uppskipun er fyrir
neðan það, sem við mundum kalla meðallag.
Fiskiskipin eru smá, flest togarar 150—300
smálestir brúttó, og erfitt er að greina, hvenær
farfi hefur á þá síðast komið.
Hér gat að líta sanna ryðkláfa.
I Boston er márgt íslenzkra sjómanna, og eru
Islendingarnir mjög rómaðir sem dugmiklir skip-
stjórnarmenn og harðfengnir sjósóknarar.
Attum við þess kost að hitta nokkra þeirra
og höfðum mikla ánægju af.
Til Gloucester, fiskibæjarins, er Kipling lætur
sögu sína „Sjómannalíf“ gerast í, skruppum við
einn daginn ásamt formanni sjómannasamtakanna
í Boston.
William Green,
foseti A. F. L.
Philip Murray
forseti C. I. O.
Það er hreinlegur bær með sín fiskiðjuver og
ógleymanlega minnisvarða um þær föllnu hetjur,
er sótt hafa á ránarslóðir, en gist hina votu gröf.
Hér var allur fjöldi skipanna nýlegir og vel við
haldnir vélbátar.
Sjómannasamtökin eru öflug í Gloucester, og
veittu þau samtökunum í Boston drengilegan
stuðning í baráttunni fyrir tólf stunda hvíld á
togurunum, sem samningar náðust loks um eftir
sex og hálfs mánaðar verkfall.
Þegar farið var frá Boston, skildu leiðir okkar
ferðafélaganna.
Sæmundur og Ingimundur héldu til New York
og þaðan heim. En við fjórmenningarnir til
Washington.
í Washington dvöldumst við í fimm daga, heim-
sóttum skrifstofur verkalýðssambandanna, skrif-
stofur efnahagssamvinnustofnunarinnar og rædd-
um við forvígismenn samtakanna og stofnunar-
innar.
Voru okkur þar sem annars staðar gefnar grein-
argóðar upplýsingar um allt það, er við höfðum
hugmyndaflug til að spyrja um, og okkur gefinn
kostur þess að sjá það af eigin raun, er við helzt
kusum að skoða.
Fórum við um mörg hverfi borgarinnar til að
kynnast með eigin augum aðbúnaði og kjörum
almennings í hinni miklu höfuðborg Bandaríkj-
anna.
Þá hlutum við hinar ágætustu móttökur hjá
Thor Thors sendiherra og fjölskyldu hans. Er það
skoðun mín, að þar sem sendiherrann og fólk hans
fer, þar fari virðulegir, en þó ljúfmannlegir full-
trúar Islands, sem þjóðinni er sómi að.
8 VINNAN