Vinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 22

Vinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 22
græða á því. Fyrir almenning kemur það í sama stað niður, hvort hann kaupir erlenda vöru eða íslenzka, samsvarandi að gæðum. Aðeins heild- salar mundu við þetta missa spón úr aski sínum. Hér þurfa valdhafarnir því aðeins að velja milli hagsmuna þjóðfélagsins í heild og hagsmuna fárra sérréttindamanna. Valið virðist auðvelt. Samt sem áður hefur sú leið verið farin, sem þjóðinni kemur verr, en sérréttindamönnunum betur. Það er engum efa undir orpið, að það er geysi- mikið hagsmunamál fyrir alla alþýðu við sjávar- síðuna, að togararnir leggi afla sinn hér á land, auk þess sem það mundi einnig vera beinn þjóð- hagslegur ávinningur. Sem betur fer hefur fiskafli á djúpmiðum ekki brugðizt. En alkunna er, að sá háttur hefur ver- ið á hafður um afsetningu togaraaflans, að skip- in hafa selt hann sjálf erlendis. A þennan hátt höf- um við selt á erlendum markaði stóran hluta af fiskaframleiðslu okkar sem algerlega óunna vöru. Þúsundir tonna eru þannig seld út úr landinu, án þess að á nokkurn hátt hafi verið reynt að auka verðmæti hennar með verkun eða vinnslu. Það er í fyrsta dagi aldrei vansalaust að flytja hrá- efni í stórum stíl út úr landinu, fyrst og fremst sökum þess, að verðmæti vörunnar er þá mikl- um mun minna, heldur en ef seld er út fullunnin vara, og svo afsölum við okkur með því mögu- leika til sköpunar atvinnu og þeim tekjuauka, sem af vinnslu hráefnisins leiðir. Þetta kom þó ekki verulega að sök, á meðan atvinna var nægi- leg í landinu. En óverjandi er með öllu að full- vinna ekki þau hráefni, sem við höfum yfir að ráða, og nýta þannig til fullnustu íslenzkt vinnuafl til að auka verðmæti útflutningsins, þegar hundruð og jafnvel þúsundir manna víðs vegar um landið ganga atvinnulausir. Þó tók steininn úr um úrræðaleysið í þessum efnum, þegar togararnir lönduðu í haust, hvað eftir annað saltfiski í Esbjerg í Danmörku, en þar var hann síðan tekinn til pökkunar. Erlendu vinnu- afli var þá beinlínis sköpuð vinna við að koma ís- lenzku hráefni í söluhæft ástand. Auðug er sú þjóð, er efni hefur á slíku, enda fullkomin ofrausn, því að á sama tíma var atvinnu- leysið að sliga efnahagslega afkomu íslenzkrar alþýðu. Nokkur reynsla er nú fengin á fullkominni verk- un og nýtingu á afla togara í hraðfrystihúsum og öðrum fiskverkunarstöðvum, og hafa Akurnes- ingar haft forgöngu um það mál. Togarinn Bjarni Olafsson, sem er eign bæjar- ins hefur lagt upp allan sinn afla á Akranesi, nú í nærfelt ár. Þar hefur fiskurinn verið hagnýttur til fulls, að mestu hraðfrystur. Þetta hefur vitaskuld skapað landverkafólki geysimikla atvinnu, enda hefur Akranes þá sér- stöðu meðal bæja og kauptúna víðs vegar um landið, að þar er atvinnuleysi nú óþekkt fyrir- birgði. Slíkum árangri er hægt að ná, þegar allir möguleikar til fullkominnar hagnýtingar þess hráefnis, sem fyrir hendi er, eru notaðir. Af þessum nýja rekstri leiðir einnig fjárhags- legur ávinningur fyrir fleiri aðila en landverka- fólkið, t. d. munu hásetar á togaranum hafa haft Ur hradfrystihúsi á Ahranesi: Konur skyggna flökin, skera úr mar- bletti og hringorma. 16 konur hafa þann starfa meðan flakaS er. 12 VINNAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.