Vinnan - 01.12.1951, Page 33

Vinnan - 01.12.1951, Page 33
Sögu\afli eftir Vílhjálm S. Vilhjálmsson. Allir jafnir fyrir kolareyknum QM ÞESSAR mundir er að koma út ný skáldsaga eftir Vilhjálm S. Vilhjálmsson hjá Helgafelli, „Beggja skauta byr“. Er það síðasta bindið í skáldsagnaflokki um verkalýðs- hreyfinguna og félagsmálaþróunina í íslenzku sjávarþorpi á fyrri hluta aldarinnar, en höfundurinn ætlast til, að þessi saga spegli baráttusögu alþýðunnar, meðan samtök hennar eru að skapast og fá á sig heildarmynd. Aður eru komnar skáldsögurnar „Brimar við böl- klett“, „Krókalda" og „Kvika“. — „Vinnan" fór þess á leit við Vilhjálm, að hann léti henni í té smásögu, en hann hefur sent frá sér eitt smásagnasafn, „A krossgötum". Hann kvaðst ekki eiga fullgerða smásögu um baráttu og starf verkalýðsins, en hins vegar gæti hann birt kafla úr nýrri skáldsögu, sem hann nefnir „Skuggahverfi" og gerist í Reykja- vík á árunum 1922—1930. Þennan kafla úr skáldsögu sinni nefnir hann „Allir jafnir fyrir kolareyknum" og gerist hún augsýnilega um leið og Skólavörðuholtið er að byggjast. MORGUNNINN er hreinn og bjartur. Sólin er að koma upp, og gullnum bjarma slær á holtið fyrir austan og ofan Skuggahverfi. Sjórinn niður undan er sléttur og kyrr, en úr flæðarmálinu rýkur heitur andi af steinum og sandi. Verkamenn eru ekki morgunsvæfir. Þeir rísa snemma úr rekkju, jafnvel þó að þeir hafi ekkert að gera. Hinir elztu eru komnir út klukkan 4—5, en hinir yngstu sofa kannske frameftir. Þetta fer eftir aldri. Ut um dyrnar á hrörlegu og gömlu timburhúsi, en þarna eru öll hús gömul og hrör- leg, kemur roskinn maður, hann gengur hikandi og varlega upp úr djúpum kjallara, upp tröppurn- ar og hnitmiðar hvert spor. Þegar hann er kom- inn upp, tekur hann í hattbarðið, snýr sér í sólar- átt og signir sig. Hann lítur hægt og hugsandi upp í himininn, fyrst í sólarátt og kiprar augun og svo í hring og snýr sér á fúnum fótum. „O, blessuð blíðan. Góðum guði sé þökk fyrir þennan dag.“ Hann hefur matarskrínu undir heitdinöi og þuklar hana varfærnislega með reyndum hönd- um, kemur henni vel fyrir og labbar svo af stað, hægur og rólegur. Á þessum manni er enginn asi. Fætur hans þekkja þess leið. Þegar hann er kominn dálítinn spöl frá húsinu, kemur annar maður, ungur og léttur á sér. „Sæll og blessaður. Það er góða veðrið. Mann langar bara upp í sveit. Hvað segir þú um það?“ „O, jæja, ekkert væri nú á móti því að vera kominn í góðan teig og heyra hundgá og fuglaklið á svona morgni. Það var gott í gamla daga að hlusta á slíkt, þegar maður vaknaði í góðu veðri.“ „Og finna ilminn úr jörðinni. — Eg hef aldrei átt heima í sveit. Hér finnur maður aldrei ilm úr jörðu.“ „Nei, það er minna um það. Fyrst í stað, eftir að ég flutti hingað í hverfið, fannst mér hálf- partinn, að ég væri búinn að grafa mig ofan í jörðina. Eg sá eftir því að hafa farið, en við því var ekkert að gera, börnin voru öll komin út og suður. Við stóðum ein eftir, og það var ekki nóg.“ „Nei, það hefur líka verið erfitt í sveitinni.“ „O, já. Það var oft erfitt, en ekki hefði ég selt allt og farið, ef börnin hefðu verið kyrr. Það er eitthvert öfugstreymi í þessu öllu hjá manni. Mað- ur átti oft lítið í búinu, en einhvern veginn var það þó svona, að maður hafði meira öryggi. Hér er ekkert annað, ef ekki fæst vinna og bein- harðir peningar, en svelti, útburður og allsleysi. VINNAN 23

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.