Fréttablaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 48
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Jóns Sigurðar Eyjólfssonar BAKÞANKAR Er ég hafði glímt við mán-aðalangan svíma lét ég undan þrýstingi góðra vina og heimsótti hinn svokallaða galdrakarl sem býr í þorpinu mínu. Útidyr hans stóðu opnar er ég mætti við þriðja mann og vissi hann vel hverra erinda ég var kominn þegar ég gerði vart við mig. Bað hann mig að sitja en greip svo skrif blokk og páraði í hana nafn mitt, reyndar kolvit- laust en það gerir ekkert til með því að andaheimurinn er ekki stífur á stafsetningu. Setur svo að honum svefnhöfga mikinn og geispar hann yfir skræðunni. Það var ekki um að villast, ég var mengaður af svartagalli og kvaðst hann hefja bænasöng strax hinn næsta dag og ætti ég að vera orðinn góður á þriðja degi. Tók ég þá upp veski en ekki vildi hann hafa af mér fé. Í nærveru fólks með slíkan starfa spyr maður sig strax hvað því gengur til. En vaknar sama spurning gagnvart þeim sem hve hæst láta? Hvað gera, til dæmis, áhrifavaldar, stjórnmálamenn, spekingar og athafnafólk með þá athygli sem það sankar að sér? Gengur því alltaf gott til eða er stundum verið að vökva illgresi illsku, hégóma, græðgi og ótta? Er það svo víst að Skugga Baldur standi í skugga en ekki mitt í sviðsljósinu? Ekki ætla ég að gefa út heil- brigðisvottorð fyrir galdra- karlinn en hitt er víst að það er margra meina bót að heimsækja skrautlegt og skemmtilegt fólk sem stingur í stúf við þá stefnu- lausa rekaviði sem við f lest kjósum að vera í lífsins ólgusjó. Hvar er Skugga Baldur? Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233 BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150 UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK UM FJÓRÐUNGUR LANDS- MANNA SEFUR Á DÝNU FRÁ SVEFN & HEILSU* *Samkvæmt könnun frá Gallup. Góð hvíld 10 0% SV EFN – 100% HEILSA 100% SVEFN – 100% HE IL SA Góður svefn góðri heilsu ER GRUNNUR AÐ VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR Í VERSLUNUM OKKAR Kynntu þér vöruúrvalið og verslaðu í rólegheitum í vefverslun Svefns & heilsu EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF HEILSUDÝNUM TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT AÐ DV 512 7000 WWW.DV.IS/ASKRIFT ASKRIFT@DV.IS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.