Fréttablaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 39
Skáldsagan Dvergurinn frá Normandí eftir danska rithöfundinn Lars-Hen-rik Olsen er komin út hjá Bókabeitunni í þýðingu Steinunnar J. Sveins- dóttur. Fyrir næstum þúsund árum fóru Normannar, afkomendur víkinga sem höfðu sest að í norðurhluta Frak k lands (Normandí), með mikinn her yfir Ermarsund til að ná undir sig enska konungsríkinu. Sú innrás breytti Evrópusögunni og heimssögunni þegar fram liðu stundir. Áratug seinna, á árunum 1075 til 1077, var sagan af því hvern- ig þetta gerðist saumuð á rúmlega 70 metra langan hördúk eða svo- kallaðan „refil“ sem hefur varðveist í Bayeux í Frakklandi. Sennilega var refillinn, eitt merkasta listaverk sem til er frá þessum tíma, gerður í Englandi. Skáldsagan Dvergurinn frá Normandí fjallar um stúlkurnar sem saumuðu hann. Steinunn J. Sveinsdóttir lífeinda- fræðingur þýddi bókina. Hún lést árið 2018 og þá tók eiginmaður hennar, Reynir Tómas Geirsson læknir og fyrrverandi prófessor, að sér að rita inngang og yfirfara þýðinguna, sem nú kemur út hjá Bókabeitunni. „Það tók Steinunni nokkur ár að þýða bókina. Ég fékk ráð og yfirlestur varðandi þýðing- una, og um efni inngangsins, frá sér- fræðingum við Háskóla Íslands og í Þjóðminjasafni. Sjálfur hef ég lesið talsvert mikið um efnið og grand- skoðaði refilinn í annað sinn árið 2019,“ segir Reynir Tómas. Áhugavert efni „Hér er hugljúf og grípandi skáld- saga um það hvernig tvær ungar stúlkur, Fífa og Emma, og tvær ungar konur, Gyða og Poppa, fá það verkefni í klaustri í Kent á Englandi að sauma refilinn undir stjórn Þóralds, sér- st æðs dverg va x ins manns. Aðrar söguper- sónur eru bitur engil- saxneskur höfðingi, abbadís klaustursins, my nd a rleg i he st a- sveinninn, biskupinn Ódó frá Normandí og fólkið í klaustrinu“, segir Reynir Tómas. „Eiginkona mín kallaði bókina gjarnan „barnabók fyrir fullorðna“.“ Lars-Henrik Olsen er þekktur fyrir unglingabækur sem hann byggir á sögulegum atburðum. Dvergurinn frá Normandí er ein þeirra og hlaut á sínum tíma verð- laun skólabókasafna í Danmörku. „Sagan gefur innsýn í tíðarand- ann, klausturlíf, hugsanagang og erfitt líf þessara tíma og er f léttað inn í frásögn af raunverulegu atburðunum sem enduðu í mann- skæðri orrustu við Hestengi syðst í Englandi haustið 1066. Hluti bókar- innar eru myndir í lit af öllum refl- inum á sömu blaðsíðum og þar sem lýst er af hverju allt er saumað eins og það er. Í inngangi eru sögulegar staðreyndir raktar og sagt frá refil- saumi sem varðveitt- ist aðeins á Íslandi langt fram eftir 17. öld,“ segir Reynir Tómas. „Efnið er l í k a á h u g a v e r t vegna þess að það er nýbúið að ljúka saumaskap á svo- kölluðum Njálurefli á Hvolsvelli, sem er meiriháttar verk, og á Blönduósi er ver ið að sauma ref il með aðeins a n na r r i aðferð u m Vat nsd æla- sögu. Svo sagði Snorri Sturluson frá þessum atburðum í Heimskringlu og Haraldar sögu harðráða – frá öðrum sjónarhóli.“ Vinnur að enskri þýðingu Reynir Tómas segir að til standi að f lytja refilinn í Bayeux í fyrsta sinn úr landi og sýna hann í British Museum eða Victoria & Albert safn- inu í Lundúnum um tíma. Það var áformað árið 2022 en gæti frestast eitthvað. Reynir Tómas segist vera kominn nokkuð áleiðis með að þýða bókina á ensku með leyfi höf- undarins og áhugi er fyrir hendi hjá enskum bókaútgefanda. SAGAN GEFUR INNSÝN Í TÍÐARANDANN, KLAUSTURLÍF, HUGSANAGANG OG ERFITT LÍF ÞESSARA TÍMA. Barnabók fyrir fullorðna um sköpun listaverks Dvergurinn frá Normandí eftir Lars-Henrik Olsen er komin út á íslensku. Reynir Tómas Geirsson læknir og fyrrverandi prófessor ritar inngang. Eiginkona hans Steinunn J. Sveinsdóttir þýddi skáldsöguna. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Reynir Tómas er að þýða bókina á ensku. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI LEIKHÚS Kardemommubærinn Verk eftir Thorbjörn Egner Þjóðleikhúsið Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir Leikarar: Hallgrímur Ólafsson, Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Oddur Júlíusson, Ernesto Camilo Aldazábal Valdés, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Gunnar Smári Jóhannesson, Hildur Vala Baldursdóttir, Hákon Jó- hannesson, Hera Katrín Aradóttir, Rebecca Scott Lord, Nicholas Arth- ur Candy, Sindri Diego, Rebecca Hidalgo, Bergþóra Hildur Andra- dóttir, Vala Frostadóttir, Arnaldur Halldórsson, Jón Arnór Pétursson, Bjarni Gabríel Bjarnason, Hilmar Máni Magnússon, Örn Árnason, Ragnheiður K. Steindórsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Snæfríður Ingvarsdóttir o.fl. Leikmynd: Högni Sigurþórsson Búningar: María Th. Ólafsdóttir Leikgervi: María Th. Ólafsdóttir og Valdís Karen Smáradóttir Tónlistarstjórn og útsetningar: Karl Olgeir Olgeirsson Danshöfundur: Chantelle Carey Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson Hljóð: Kristinn Gauti Einarsson Þýðing leiktexta: Hulda Valtýs- dóttir Þýðing söngtexta: Kristján frá Djúpalæk Síðan Kardemommubærinn var fyrst frumsýndur í Þjóðleikhús- inu fyrir sextíu árum hefur söng- leikurinn komið sér kirfilega fyrir í þjóðarsálinni. Hver ný útgáfa markar ákveðin tímamót í leik- listarsögu landsins þegar ný kyn- slóð fær tækifæri til að stíga inn í heim Bastíans bæjarfógeta, Soffíu frænku og ræningjanna þriggja. Ágústa Skúladóttir leikstýrir her- legheitunum. Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Stein- unn Ólína Þorsteinsdóttir skipta hlutverki Soffíu frænku á milli sín á meðan á sýningum stendur. Ólafía Hrönn hóf handtöskuna á loft, í  sýningunni sem þessi gagnrýn- andi sá, með svo miklum tilþrifum að húsið titraði. Fruntaskapurinn er svo svakalegur, sérstaklega fyrir hlé, að hann verður fyndnari með hverju atriðinu. Ræningjarnir þrír, Kasper, Jesper og Jónatan sjá þó til þess að Soffía frænka steli ekki sýningunni upp á sitt einsdæmi. Þrenningin Hallgrímur Ólafsson, Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi) og Oddur Júlíusson vinna frábærlega vel saman, af mikilli leikgleði. Hver og einn kemur með sinn styrkleika; Hallgrímur með raddbeitinguna, Sverrir Þór með aulaháttinn og Oddur virðist vera liðamótalaus með öllu. Ekki má gleyma ljóninu góða leiknu af Ernesto Camilo Aldazábal Valdés sem valhoppar um sviðið eins og óþekkur köttur. Ekki skortir hæfileikana Auðvitað er urmull af öðrum skemmtilegum Kardemommubæj- arkarakterum og þess er gætt að fylla sviðið af reynsluboltum í bland við þá sem eru að taka sín fyrstu skref. Örn Árnason leikur Bastían bæjarfógeta af mikilli ljúfmennsku og Ragnheiður gefur honum lítið eftir. Virkilega gaman er að sjá Þór- hall Sigurðsson í hlutverki Tobiasar í turninum. Hann er búinn að vinna mikið og gott starf í þágu barna svo árum skiptir. Hér fær hann tæki- færi til að skína og grípur það svo sannarlega. Bjarni Snæbjörnsson, Gunnar Smári Jóhannesson og Sig- ríður Eyrún Friðriksdóttir gera vel með sínar einföldu en klassísku persónur en aðrir karakterar týnast svolítið í havaríinu. Stór hópur af ungu fólki tekur þátt í sýningunni og ekki skortir hæfileikana þar á bæ, það er dásamlegt að sjá þau njóta sín. Ágústa vinnur hverja senu af kostgæfni og hópsenurnar geisla af gleði. Þar spilar danshöfundurinn Chantelle Carey stórt hlutverk en hún er að stimpla sig rækilega inn í íslenska söngleikjaheiminn. En senuskiptin gerast of hægt og eru oftar en ekki einungis stillimyndir á meðan áhorfendur bíða eftir næsta atriði. Karl Olgeir Olgeirsson stjórnar tónlistinni og útsetur með fjörugum djasstilbrigðum. Lögin eru fyrir löngu síðan prentuð inn í genamengi þjóðarinnar og útfærsl- ur hans heppnast vel en passa stundum ekki alveg við heildina. Of mikið að gerast í einu Hvað fagurfræðina varðar þá er hér nefnilega á ferð heil holskef la af hugmyndum, þar á meðal heill sirkushópur og dýragarður. Bún- ingarnir, hannaðir af Maríu Th. Ólafsdóttur, virðast aðallega vera innblásnir af Suður-Ameríku og teikningum Egners, nóg er samt tínt úr öðrum heimum. Niður- staðan verður hátíð af kaótísku menningarnámi í bland við virki- lega fínar lausnir eins og ljónabún- inginn. Leikgerva- og grímuvinnan er mikið afrek en hefði mátt tóna niður. Leikmynd Högna Sigur- þórssonar á við sama vandamál að stríða þar sem hver hugarsmíðin rekur aðra í staðinn fyrir að velja þær bestu úr. Grunnhugmyndin er góð og vel hönnuð fyrir stóra sviðið en stundum er allt of mikið að gerast í einu. Litagleði og fjör er kærkomin gjöf í hausthretinu en fyrr má nú vera. Kardemommubærinn þarf ekki slíka of hleðslu enda er kætin inn- byggð í textann og lögin. Ágústa og hennar listræna teymi þurfa ekki svona mikið prjál til að fá áhorf- endur á sitt band. Þrátt fyrir fagur- fræðilega vankanta þá er samt sem áður ógerlegt að hrífast ekki með Soffíu frænku og ræningjunum. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Soffía frænka og ræningjarnir bjarga deginum! At hu g a s e m d : D ó m u r i n n va r skrifaður eftir frumsýning u en örskömmu síðar var sýningum hætt vegna samkomutakmarkanna. Sýn- ingar eru nú hafnar að nýju. Kaotísk kæti í Kardemommubæ Ræningjar þrír slá vitanlega í gegn í Þjóðleikhúsinu. MYND/AÐSEND M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15Þ R I Ð J U D A G U R 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.