Fréttablaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 33
Ég byrjaði að afrita tölvugögn fyrir aðra haustið 2004. Þá fór ég heim til fólks og eitt af mínum fyrstu verkefnum var að líta inn til konu sem gaf út bæði bækur og fræðiefni sem ekki mátti glatast. Í þá daga voru ekki komin ský, eins og nú er. Ég spurði konuna hvort hún ætti afrit af bókum sínum og öðrum dýr- mætum efnivið úr tölvunni. Það lá ekki á svörum. Jú, hún ætti sko afrit af öllu saman; það væri allt útprentað uppi í hillu! Mér tókst á endanum að sannfæra hana um að ég kæmi einu sinni á ári til að taka hjá henni afrit, því það yrði mikil vinna að setja allt inn aftur af pappírnum ef eitthvað brygðist og svo gætu útprentuðu afritin líka glatast eða skemmst. Eftir það fór ég árlega til hennar í afritun sem ég setti á zipdiska, teip eða geisla- diska, eins og tíðkaðist þá, en svo hafa tímarnir þróast og við með.“ Þetta segir Valgeir Ólafsson, framkvæmdastjóri Tölvuaðstoðar, sem einnig rekur Afrit.is. Áhyggjulausara líf Tölvuþjónusta, hýsing og rekstur eru aðalsmerki Tölvuaðstoðar sem býður upp á ráðgjöf, tölvuþjón- ustu, rekstur útstöðva, netþjóna og netkerfa, þjónustu við hýsing- arumhverfi, eftirlit og allt annað sem gerir lífið áhyggjulaust með sérstaka áherslu á öryggisþáttum í rekstri UT-kerfa. „Við sérhæfum okkur í þjónustu á skýjaþjónustum við Microsoft 365, Azure og Google Workspace (áður G suite) en með notkun á þeim getur rekstrarkostnaður tölvukerfa lækkað umtalsvert,“ upplýsir Valgeir sem hefur þjónustað gríðarlegan fjölda við- skiptavina af ýmsum gerðum og stærðum frá því hann stofnaði Tölvuaðstoð árið 2004. „Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og vandaða þjónustu á hagstæðu verði og bjóð- um upp á heildarþjónustu þegar kemur að tölvukerfum, hvort sem það er hýsing, ráðgjöf, hugbún- aður, vélbúnaður, net eða annað. Ráðgjafar okkar hafa sérhæft sig í kostnaðargreiningu þar sem kostnaður fyrirtækja og rekstur UT-kerfa er rýndur og lækkaður. Þá hafa sérfræðingar Tölvuað- stoðar sérhæft sig í öryggismálum tölvukerfa og öryggisráðgjöf,“ segir Valgeir og starfsfólk hans býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á öllum sviðum tölvuaðstoðar. Vakta tölvukerfi fyrirtækja Hartnær tuttugu árum eftir að Tölvuaðstoð var stofnuð er kjarna- starfsemi fyrirtækisins enn hvers kyns tölvuaðstoð, sem og afritun tölvugagna, en Afrit.is var hleypt af stokkunum í desember síðast- liðnum. „Afrit.is er ný þjónusta hjá okkur. Með henni leggjum við áherslu á að geta boðið lausnina fyrir alla, óháð því hvort þeir séu þegar í þjónustu hjá okkur með tölvuna sína eða annað. Því geta allir leitað lausna með afritun hjá okkur og enginn þarf lengur að glata neinu,“ segir Valgeir. Tölvuaðstoð er einnig með svo- kallaðar vaktir þar sem tölvukerfi fyrirtækja eru vöktuð og séð til þess að allt gangi snuðrulaust. „Hægt er að velja um Silfur-, Gull- eða Platínumvaktir, en í Silfurvaktinni er tölvuvakt, lykil- orðalaus innskráning, tölvupóst- hýsing, gagnageymsla, Microsoft Office-forrit, fjaraðstoð, lykilorða- umsýsla, eftirlit með vírusvörn og eftirlit með öryggisuppfærslum,“ upplýsir Valgeir. „Í Gullvaktinni er allt úr Silfur- vaktinni innifalið en við bætist eftirlit með nettenginum, USB öryggislyklar, sjálfvirkar lag- færingar, forgangsþjónusta, fjar- vinnsla að heiman og aðgangur að Vaktinni, og í Platínumvaktinni er allt úr Silfur- og Gullvaktinni inni- falið en við bætist afritun gagna af sameign, umsjón með tækjum og er öll þjónusta innifalin.“ Tölvan spegluð eins og klón Skýjalausn Tölvuaðstoðar heitir einfaldlega Ský. „Í Skýinu er allt afritað fyrir viðskiptavini; til dæmis póstur, skjöl, tengiliðir, dagatöl og Teams- spjallið. Önnur nýleg og vinsæl þjónusta er Speglun og er hægt að keyra Speglun og Ský saman. Þá afritum við skýjaþjónustuna og speglum í gegnum tölvu eða net- þjóna,“ upplýsir Valgeir og útskýrir Speglun betur: „Sé tölvu stolið eða hún eyði- leggst er hægt að nálgast gögnin úr henni í skýinu þar sem allt er vistað og speglað. Því fylgir mikið öryggi og tímasparnaður því oft má fólk engan tíma missa og þarf að komast sem fyrst í tölvuna aftur. Þá getur tekið upp í sólarhring að setja allt upp í nýja tölvu. Með speglun, þar sem allt er afritað og vistað í skýinu, verður hins vegar leikur einn að ná í öll gögn strax og notandinn getur endurheimt tölvuna sína, nákvæmlega eins og hún var, með hálfgerðu klóni sem við höfum speglað í skýinu. Þá skiptir engu máli hvar í heiminum hann er staddur, notandinn fer einfaldlega í næstu tölvu og ræsir upp tölvuna sína í skýinu, þar er hún sýnd nákvæmlega eins og hann vann í henni síðast, því speglunin bíður í skýinu. Þessi þjónusta er orðin mjög mikilvæg og æ fleiri sem tryggja sér hana fyrir lykilstarfs- menn og stjórnendur og þar sem á þarf að halda.“ Allar afritunarlausnir Tölvuað- stoðar eru ótakmarkaðar þegar kemur að gagnamagni, speglun og skráarlausnum. „Við bjóðum ótakmarkaða Speglun og skráarþjónustu sem við geymum í gagnaverum hér heima og í Þýskalandi. Öll gögn eru því geymd á öruggum stað og hægt að endurheimta þau mjög hratt. Þá geta viðskiptavinir fengið eigin aðgang til að endurheimta gögn sín. Sumir vilja keyra tölvuum- hverfi sín sjálfir og þurfa þá ekki speglunarlausn en vilja geta endurheimt, og það getur verið hagkvæmara í sumum tilvikum.“ Enginn alveg öruggur í skýi Valgeir segir marga standa í trú um að tölvugögn sín séu örugg í skýjum stórra fyrirtækja, svo sem Microsoft og Google. „Það er hins vegar alrangt. Víst eru tölvugögn að einhverju leyti öruggari í skýjum en þegar þau eru eingöngu vistuð á óafrituðum net- þjónum eða í tölvu notendans, en bæði Microsoft og Google leggja á það áherslu að allir notendur þeirra skýjaþjónustu taki afrit sem þeir geymi hjá þriðja aðila. Það er vegna þess að árásir á skýjaþjón- ustur hafa aukist, en líka vegna þess að gögn geta einfaldlega skemmst eða einhver eytt þeim og þá er allt horfið.“ Valgeir bendir á að verðmætasta eign fyrirtækja séu gögn sem þau geymi í skýjum. „Í skýjunum eru þau þó engan veginn örugg og hafa kannanir sýnt að átta af hverjum tíu fyrir- tækjum hafi tapað gögnum úr skýjaþjónustum vegna vírusa, vélbúnaðarbilana, árása eða mannlegra mistaka. Þá er gísla- taka á skýjaþjónustum að verða æ algengari til að kúga fé út úr rekstraraðilum.“ Að ýmsu þurfi að huga við afritun tölvugagna. „Miklu skiptir að öll gögn séu geymd dulkóðuð og sömuleiðis að flutningur gagna sé dulkóðaður alla leið frá tölvu eða skýi yfir í gagnaverin. Einnig er mikilvægt að hægt sé að endurheimta gögn á einfaldan og skjótvirkan máta, með því að ræsa tölvuna í skýinu, setja tölvuna upp á nýjan tölvu- búnað, hlaða niður gögnum eða skrám fyrir sýndarvél, endur- heimta einstök drif og fleira,“ útskýrir Valgeir og heldur áfram: „Þá er brýnt að afritun af tölvu- gögnum sem vistuð eru beint á tölvu eða netþjón sé sjálfvirk, þar á meðal möppur, ljósmyndir og skjöl. Mikilvægt er að kerfið geymi útgáfur af öllum skjölum þannig að góð skjalasaga sé til staðar ef eitthvað bregst.“ Afritun veitir hugarró Valgeir hefur komið að fyrir- tækjum sem telja sig vera í góðum málum með afritun en raunin hafi verið sú að afritið hefur verið ófull- nægjandi, óvirkt eða horfið. Hann mælir því með að rekstraraðilar leiti sér ráðgjafar við val á afrit- unarlausnum fyrir skýjaþjónustur. „Afritun getur hreinlega bjargað rekstrinum,“ segir Valgeir. „Því er mikilvægt að skilgreina hverju þurfi að taka afrit af, hversu mörgum þurfi að taka afrit af, hversu mikið gagnamagn sé um að ræða og hversu hröð og einföld endurheimt gagna þurfi að vera.“ Rannsóknir hafi sýnt að mikill fjöldi fyrirtækja hafi einfaldlega orðið fyrir það miklum skaða að þau hafa þurft að hætta rekstri. „Afritun sparar tíma og peninga sem annars færi í að endurheimta gögn sem glatast. Þar veitir sjálf- virk afritun hugarró þar sem ekki þarf að hafa áhyggjur af gagnatapi. Þá getur afritun haft jákvæð áhrif á ímynd og traust fyrirtækisins, og einfaldlega ekki eftir neinu að bíða. Við afritum ekki eftir á og því er best að afrita öll gögn strax.“ Tölvuaðstoð er í Stangarhyl 1 í Reykjavík. Sími 550 0200. Sjá nánar á tolvuadstod.is og afrit.is. Þú afritar ekki eftir á! Tölvuaðstoð hefur frá árinu 2004 haldið vel utan um öryggismál fyrirtækja þegar kemur að af- ritun gagna og vöktun tölvubúnaðar. Þar veita sérfræðingar tölvuaðstoð við allt sem til þarf. Valgeir Ólafsson, framkvæmdastjóri Tölvuaðstoðar, sem gerir lífið áhyggjulausara fyrir fyrirtæki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Að taka alltaf afrit af tölvugögnum getur bjargað rekstri fyrirtækja. Afritun sparar tíma og peninga sem annars færu í að endur- heimta gögn sem glatast. Best er að afrita öll gögn strax. Tölvuaðstoð veitir alla almenna tölvuþjónustu, hýsingu og rekstur. KYNNINGARBLAÐ 11 Þ R I ÐJ U DAG U R 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 UPPLÝSINGATÆKNI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.