Fréttablaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 29
Yngvi Tómasson, fram-kvæmdastjóri Leikbreytis, segir að samskipti fyrirtækja við viðskiptavinina hafi breyst mikið undanfarin ár og fari nú flest fram í gegnum tölvupóst eða netspjall auk þess sem það sé rík krafa um hraðari svartíma. „Það er þekkt að þúsaldarkyn- slóðin vill frekar eiga samskipti í rituðu máli en með símtali og vill snöggan svartíma. Þess vegna vilja mörg fyrirtæki innleiða snjall- menni í sína þjónustu sem geta svarað helstu spurningum við- skiptavinanna samstundis,“ segir Yngvi. „Við hjálpum fyrirtækjum að innleiða snjallmenni sem við sérsníðum fyrir hvern og einn viðskiptavin. Fyrsta skrefið er oft innleiðing netspjalls og síðan snjallmennis sem getur svarað endurteknum algengum fyrir- spurnum um leið og þær berast. Við seljum líka ýmiss konar stuðn- ingskerfi sem greina endurteknar fyrirspurnir,“ útskýrir hann . „Við förum inn í fyrirtæki og finnum algengustu spurningarnar sem snjallmenni getur strax byrjað að svara. Við greinum grunn- þarfir fyrirtækis en hjá mörgum fyrirtækjum þekkjum við þegar algengustu spurningarnar, t.d. hjá verslunum þar sem oft er spurt um skilarétt, opnunartíma og þess háttar. Þegar snjallmennið getur svarað þessum algengustu spurningu þá förum við út í frekari greiningu á hvaða svörum fólk leitast helst eftir hjá þeim fyrir- tækjum sem við aðstoðum.“ Snjallmenni í sífelldri þróun Yngvi hefur verið að þróa og prófa snjallmenni síðastliðin ár og nýtir bæði lausnir sem þegar eru til og þróar sértækar viðbætur fyrir íslenskan markað. „Auk þess að svara fyrirspurn- um höfum við líka leitað leiða til að snjallmennin geti ekki einungis stuðlað að aukinni sölu heldur jafnframt klárað söluna sjálf. Það getur þá jafnvel gert tilboð og unnið úr því. Hugsunin er að snjallmennin geti leitt vefverslun og fyrirtækjavefi,“ segir hann. „Innleiðing snjallmennis er kjörið tækifæri til að greina betur samskipti við viðskiptavini. Með því að færa allt í ritað mál er hægt að rýna og stórbæta samskiptin og þar með þjónustuna. Í greining- unni getur falist að átta sig á helstu fyrirspurnum, hversu margir leitist eftir hreyfingaryfirliti, spyrjist fyrir um sölumál, hvaða tíma dags flestir hafi samband, allt verðmætar upplýsingar fyrir fyrirtæki.“ Þá er einnig hægt að nota snjall- menni í hina áttina – að fyrirtækin hafi beint samband við kúnnann og bjóði honum þjónustu. „Það er hægt að nota Facebook til að nálgast ákveðna markhópa og þar erum við með ákveðnar hugmyndir að verkefnum. Til dæmis að góðgerðafélög og fyrir- tæki sem selja áskriftir geti tekið á móti nýskráningum í gegnum netspjall og gengið frá skráning- unni sjálfvirkt,“ útskýrir hann. „Við erum líka langt komin með það að geta gengið frá samningum í gegnum netspjall við snjall- menni. Almennt er fókusinn hjá okkur í Leikbreyti sala og þjónusta í gegnum netið. Snjallmenni eru í raun bara ein vídd af þjónustu og sölu.“ Góðar undirtektir Yngvi segir að almenn ánægja ríki hjá þeim sem þegar noti snjall- mennin en mörg fyrirtæki eru að taka fyrstu skrefin í því. „Fyrsta skrefið er innleiðing netspjalls yfir höfuð. Við höfum verið að stíla á það að fyrirtæki innleiði Facebook Messenger fyrir netspjallið og höfum verið þeim innan handar við það. Fyrirtæki eru oft hrædd við að þessu fylgi gríðarlega mikill kostnaður en í raun eru fyrstu skrefin við inn- leiðinguna ekki dýr. Við byrjum á að hafa spjallið hálfsjálfvirkt og finnum svo út hvaða hluti má hafa alveg sjálfvirka,“ segir hann. Það má því segja að snjallmennið byrji í hlutastarfi en auki svo við sig smátt og smátt. „Við horfum á snjallmennin okkar eins og hvert annað vinnu- afl sem fyrirtæki geta ráðið í vinnu. Fyrst þurfa þau þjálfun og aðlögun að starfinu sem þau taka að sér og í framhaldi standa þau og falla með því vinnuframlagi sem þau veita. Þannig má bera saman áhættuþætti þess að innleiða snjallmenni við það að ráða starfs- menn en hagræðingin fyrir fyrir- tæki er umtalsverð.“ segir Yngvi. „Við hjá Leikbreyti erum í við- skiptamiðaðri hugbúnaðarþróun og viljum að lausnir okkar bæti þjónustu og auki sölu viðskipta- vina okkar. Gildin okkar eru að við berum ábyrgð á vinnunni okkar og lofum gegnsæi í tilboðum og verðlagningu. Hægt er að sjá allt um snjallmenn- in og aðra þjónustur hjá Leikbreyti á snjallmenni.is Sérsniðin snjallmenni sem auka sölu og bæta þjónustu Leikbreytir er hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í viðskiptamiðuðum stafrænum lausnum fyrir fyrirtæki með áherslu á innleiðingu snjallmenna og aukna sjálfvirkni á vefsíðum og í vefversl- unum fyrirtækja. Markmiðið er að bæta þjónustu til viðskiptavinanna með aukinni sjálfvirkni. Yngvi Tómasson hjá Leikbreyti hefur verið að þróa og prófa snjallmenni undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Við horfum á snjallmennin okkar eins og hvert annað vinnuafl sem fyrirtæki geta ráðið í vinnu. Fyrst þurfa þau þjálfun og aðlögun að starfinu. Yngvi Tómasson KYNNINGARBLAÐ 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 UPPLÝSINGATÆKNI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.