Fréttablaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 29
Yngvi Tómasson, fram-kvæmdastjóri Leikbreytis, segir að samskipti fyrirtækja
við viðskiptavinina hafi breyst
mikið undanfarin ár og fari nú
flest fram í gegnum tölvupóst eða
netspjall auk þess sem það sé rík
krafa um hraðari svartíma.
„Það er þekkt að þúsaldarkyn-
slóðin vill frekar eiga samskipti í
rituðu máli en með símtali og vill
snöggan svartíma. Þess vegna vilja
mörg fyrirtæki innleiða snjall-
menni í sína þjónustu sem geta
svarað helstu spurningum við-
skiptavinanna samstundis,“ segir
Yngvi.
„Við hjálpum fyrirtækjum að
innleiða snjallmenni sem við
sérsníðum fyrir hvern og einn
viðskiptavin. Fyrsta skrefið er
oft innleiðing netspjalls og síðan
snjallmennis sem getur svarað
endurteknum algengum fyrir-
spurnum um leið og þær berast.
Við seljum líka ýmiss konar stuðn-
ingskerfi sem greina endurteknar
fyrirspurnir,“ útskýrir hann .
„Við förum inn í fyrirtæki og
finnum algengustu spurningarnar
sem snjallmenni getur strax byrjað
að svara. Við greinum grunn-
þarfir fyrirtækis en hjá mörgum
fyrirtækjum þekkjum við þegar
algengustu spurningarnar, t.d. hjá
verslunum þar sem oft er spurt
um skilarétt, opnunartíma og
þess háttar. Þegar snjallmennið
getur svarað þessum algengustu
spurningu þá förum við út í frekari
greiningu á hvaða svörum fólk
leitast helst eftir hjá þeim fyrir-
tækjum sem við aðstoðum.“
Snjallmenni í sífelldri þróun
Yngvi hefur verið að þróa og prófa
snjallmenni síðastliðin ár og nýtir
bæði lausnir sem þegar eru til og
þróar sértækar viðbætur fyrir
íslenskan markað.
„Auk þess að svara fyrirspurn-
um höfum við líka leitað leiða til
að snjallmennin geti ekki einungis
stuðlað að aukinni sölu heldur
jafnframt klárað söluna sjálf.
Það getur þá jafnvel gert tilboð
og unnið úr því. Hugsunin er að
snjallmennin geti leitt vefverslun
og fyrirtækjavefi,“ segir hann.
„Innleiðing snjallmennis er
kjörið tækifæri til að greina betur
samskipti við viðskiptavini. Með
því að færa allt í ritað mál er hægt
að rýna og stórbæta samskiptin og
þar með þjónustuna. Í greining-
unni getur falist að átta sig á helstu
fyrirspurnum, hversu margir
leitist eftir hreyfingaryfirliti,
spyrjist fyrir um sölumál, hvaða
tíma dags flestir hafi samband,
allt verðmætar upplýsingar fyrir
fyrirtæki.“
Þá er einnig hægt að nota snjall-
menni í hina áttina – að fyrirtækin
hafi beint samband við kúnnann
og bjóði honum þjónustu.
„Það er hægt að nota Facebook
til að nálgast ákveðna markhópa
og þar erum við með ákveðnar
hugmyndir að verkefnum. Til
dæmis að góðgerðafélög og fyrir-
tæki sem selja áskriftir geti tekið
á móti nýskráningum í gegnum
netspjall og gengið frá skráning-
unni sjálfvirkt,“ útskýrir hann.
„Við erum líka langt komin með
það að geta gengið frá samningum
í gegnum netspjall við snjall-
menni. Almennt er fókusinn hjá
okkur í Leikbreyti sala og þjónusta
í gegnum netið. Snjallmenni eru í
raun bara ein vídd af þjónustu og
sölu.“
Góðar undirtektir
Yngvi segir að almenn ánægja ríki
hjá þeim sem þegar noti snjall-
mennin en mörg fyrirtæki eru að
taka fyrstu skrefin í því.
„Fyrsta skrefið er innleiðing
netspjalls yfir höfuð. Við höfum
verið að stíla á það að fyrirtæki
innleiði Facebook Messenger fyrir
netspjallið og höfum verið þeim
innan handar við það. Fyrirtæki
eru oft hrædd við að þessu fylgi
gríðarlega mikill kostnaður en í
raun eru fyrstu skrefin við inn-
leiðinguna ekki dýr. Við byrjum
á að hafa spjallið hálfsjálfvirkt og
finnum svo út hvaða hluti má hafa
alveg sjálfvirka,“ segir hann. Það
má því segja að snjallmennið byrji
í hlutastarfi en auki svo við sig
smátt og smátt.
„Við horfum á snjallmennin
okkar eins og hvert annað vinnu-
afl sem fyrirtæki geta ráðið í
vinnu. Fyrst þurfa þau þjálfun og
aðlögun að starfinu sem þau taka
að sér og í framhaldi standa þau og
falla með því vinnuframlagi sem
þau veita. Þannig má bera saman
áhættuþætti þess að innleiða
snjallmenni við það að ráða starfs-
menn en hagræðingin fyrir fyrir-
tæki er umtalsverð.“ segir Yngvi.
„Við hjá Leikbreyti erum í við-
skiptamiðaðri hugbúnaðarþróun
og viljum að lausnir okkar bæti
þjónustu og auki sölu viðskipta-
vina okkar. Gildin okkar eru að við
berum ábyrgð á vinnunni okkar
og lofum gegnsæi í tilboðum og
verðlagningu.
Hægt er að sjá allt um snjallmenn-
in og aðra þjónustur hjá Leikbreyti
á snjallmenni.is
Sérsniðin snjallmenni sem
auka sölu og bæta þjónustu
Leikbreytir er hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í viðskiptamiðuðum stafrænum lausnum
fyrir fyrirtæki með áherslu á innleiðingu snjallmenna og aukna sjálfvirkni á vefsíðum og í vefversl-
unum fyrirtækja. Markmiðið er að bæta þjónustu til viðskiptavinanna með aukinni sjálfvirkni.
Yngvi Tómasson
hjá Leikbreyti
hefur verið að
þróa og prófa
snjallmenni
undanfarin ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Við horfum á
snjallmennin
okkar eins og hvert
annað vinnuafl sem
fyrirtæki geta ráðið í
vinnu. Fyrst þurfa þau
þjálfun og aðlögun að
starfinu.
Yngvi Tómasson
KYNNINGARBLAÐ 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 UPPLÝSINGATÆKNI