Vinnan - 25.10.1979, Síða 14
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna. Talið frá vinstri: Kristian Poulsen, Isak Kleist, Stoch Lange og
Peter 0sterman.
um við sætt okkur við ef að minnsta
kosti 60% af þeim sem við hana vinna
eru Grænlendingar.
Frá Danmörku er veittur einn millj-
arður króna á ári til Grænlands, en það
hefur sýnt sig að um 80% af þessari
upphæð skilar sér aftur til Danmerkur
eftir ýmsum leiðum, t. d. í áfengiskaup-
um frá Danmörku.
Flokkurinn vill að Grænlendingar sitji
einir að fiskmiðunum við landið og þau
verði nýtí á vísindalegan hátt. Fiskveið-
ar útlendinga í grænlenskri landhelgi
nema um 4 milljörðum króna á ári í
aflaverðmætum, sem myndi samsvara
um 20 milljörðum í útflutningsverð-
mætum, væri fiskurinn unninn á Græn-
landi.
Stoch Lange um Siumut:
Flokkurinn var stofnaður í júlí 1977
og var fyrstur flokka til að taka upp
baráttuna fyrir heimastjórn. Heima-
stjórnarlögin eru algjört skilyrði þess
að eðlileg þróun geti átt sér stað í land-
inu og þýðir meiri möguleika á auknum
framförum í framtíðinni.
Siumut hefur verið andsnúinn þeim
olíurannsóknum sem fram hafa farið
við Grænland. Ekki aðeins vegna þess
að þær skapa hættu fyrir mestu auðlind-
ir landsins, — fiski- og selastofnana, —
heldur ekki síður vegna þeirrar miklu
innflytjendaöldu sem fylgja myndi í
kjölfar umsvifa auðfélaga í landinu, til
stórskaða fyrir grænlenskt samfélag.
011 menntun skal byggjast á græn-
lenskum forsendum og fara fram á græn-
lensku.
Atvinnulífið skal grundvallast á fé-
lagslegu rekstrarformi, þar sem það
tryggir best að afraksturinn falli Græn-
lendingum í skaut.
Það er skoðun flokksins að hin litlu
byggðasamfélög vítt og breitt um land-
ið séu mjög mikilvæg grænlensku sam-
félagi og hann viðurkennir rétt fólks til
búsetu þar sem það óskar.
Siumut vill byggja upp þjóðfélag sem
byggir á samhjálp og félagshyggju.
Mennta þarf Grænlendinga sem best,
þannig að þeir verði reiðubúnir að taka
sjálfir í notkun þá tækni sem þróuninni
fylgir.
Peter Osterman um Atassut:
Skoðun Atassut er að styrkja verði
það samband sem verið hefur milli
Grænlands og Danmerkur sl. 250 ár.
Flokkurinn telur að Grænland geti ekki
þrifist án sambands við Danmörku og
Efnahagsbandalags Evrópu. Gamla
veiðimannasamfélagið er útdautt og
tækniþróun nútímans gerir þetta sam-
band nauðsynlegt. Ljóst er að ör þróun
síðustu ára hefur haft stórkostleg vanda-
mál í för með sér, en hún hafi einnig
haft sínar björtu hliðar.
Atassut vill áframhaldandi aðild að
EBE, en sú aðild þarf þó ekki að vara
lil eilífðar. Þegar á allt er litið hefur
þróunin haft stórkostlega góð áhrif á
Grænlandi.
Flokkurinn vill blandað hagkerfi.
Hann er hlynntur olíuvinnslu við Græn-
land og telur að námavinnsla sé landinu
nauðsynleg, þar sem landið verði að
v;ra hluti af þeim veruleika sem í heim-
inum ríki.
Atassut er ekki flokkur neinnar
ákveðinnar stéttar og berst ekki fyrir
neinn ákveðinn þjóðfélagshóp — hvorki
landfræðilegan né stéttarlegan.
■K
Þegar farið var að ræða flokkana og
spyrja fulltrúa þeirra kom fram, eins og
fyrr segir, að Atassut var nokkuð sér á
báti. Hinir þrír eru allir vinstri flokkar,
en innan þeirra má svo segja að Inuit
Ataqstigit hafi haft sérstöðu. Hinir tveir,
Siumut og Sulisartut Partiat, eru nánast
jafnaðarmannaflokkar meðan Inuit rær
á miðum Maóista. Þannig kom í ljós, að
það sem skildi á milli Siumut og þeirra
félaga hans sem stofnuðu Sulisartut
Partiat var óánægja hinna síðarnefndu
með of mikil áhrif menntafólks á kostn-
að verkafólks. Þess vegna var Sulisartut
Partiat stofnaður.
Alþjóðleg samskipti frumbyggja
Nú er komin til áhrifa á Grænlandi
kynslóð sem leggur metnað sinn í að
vera eskimóar, — ekki aðeins Grænlend-
ingar. Í þessu felst mikill áhugi á kyn-
bræðrum í öðrum löndum og aukin sam-
vinna við frumbyggja annars staðar í
heiminum.
Frumbyggjar landa sem hvíti maður-
inn hefur fengið áhuga á, hafa gjarnan
orðið þeim örlögum að bráð að verða
homrekur, minnihlutahópar sem hvítir
aðkomumenn hafa litið á sem tálmanir
á vegi landvinninga og nýtingu auð-
linda. Indíánar Norður-Ameríku, eski-
móar í Kanada, Alaska og á Grænlandi,
negrar í Afríku og Astralíu; allt eru
þetta þjóðflokkar sem orðið hafa fyrir
biturri reynslu af valda- og fjárgræðgi
hvíta kynstofnsins. Hér við bætist svo
sú fullvissa sem gjarnan hefur fylgt
hvíta manninum, að hans kynstofn,
12 VINNAN