Vinnan - 25.10.1979, Blaðsíða 15
kristilegt hugarfar hans og lífsvenjur
allar hljóti að vera eins og hver önnur
sending af himnum ofan fyrir aðra - og
fáfróðari - kynstofna. Og þá um leið, að
umgengnisreglur hvíta mannsins við
náttúruna hljóti að vera eðlilegir, — þótt
nú á síðari árum séu augu manna að
opnast fyrir því að sá hvíti hefði betur
fylgt fordæmi frumbyggja í þeim efn-
um.
Fyrir nokkrum árum (1973) var hald-
inn í Kaupmannahöfn „Ráðstefna íbúa
á norðurhveli jarðar“, þar sem eskimóar
frá Grænlandi, Kanada og Alaska, ásamt
sömum (löppum) frá Finnlandi, Noregi
og Svíþjóð ræddu vandamál sín og sam-
starfsmöguleika.
I svona húsnœði var búið til skamms tíma
víða á Grænlandi, og mun raunar þekkjast
enn. I þessu jarðhúsi, sem við skoðuðum í
Qaqortoq, bjuggu 16 manns. Húsnæðið saman-
stendur af einu herbergi og forstofu. Það eru
þeir Helgi Guðmundsson og Lars-Erik Ej-
björnsson frá Svíþjóð,sem sitja á öðru tveggja
rúmstæða sem þarna voru.
Sama ár var síðan stofnað World
Counsil of Indigenous People (Heims-
ráð frumbyggja mætti kalla það á ís-
lensku) - WCIP. I ráðinu eru aðilar frá
mörgum heimshlutum, 23 löndum og
eru samtökin í forsvari fyrir 42 millj ónir
manna. WCIP hefur sótt um aðild að
Efnahags- og framfarastofnun Samein-
uðu þjóðanna sem samtök án þjóðernis.
Samtökin hafa skrifstofu í Kaupmanna-
höfn og gefa út ýmis kynningarrit og
bæklinga.
Onnur samtök frumbyggja sem eski-
móar á Grænlandi eiga aðild að eru
Inuit Circumpolar Conference (ICC),
sem stofnuð voru 1977. Þetta eru sam-
tök eskimóa á Grænlandi, í Alaska og
Kanada, en þeir eru samtals um 100
þúsund talsins. ICC hefur sótt um inn-
göngu í WCIP og hefur auk þess haft
samstarf við sama í Skandinavíu, án
þess að það samstarf byggi á neinum
skipulögðum samtökum.
Þeir Hans Pavia Rosing og Kristian
Poulsen hafa báðir tekið þátt í starfi og
stofnun þessara samtaka og skýrðu okk-
ur frá haráttumálum þeirra, sérstaklega
þó ICC. Má sem dæmi um baráttumál
ICC nefna:
- Verndun og stjómun á nýtingu nátt-
úruauðlinda.
- Verndun tungu eskimóa.
— Aukin samskipti eskimóa.
— Samvinna eskimóa og íbúa þeirra
landa sem þeir búa í.
— Ferðafrelsi eskimóa í öllum löndum.
- Að þróa pólitíska hugmyndafræði
sem hentar norðurhveli jarðar.
I umræðum kom m. a. fram hjá þeim
Hans Pavia og Kristian, að eskimóar á
Grænlandi hafa lengi mátt una við að
þröngvað væri upp á þá dansk-evrópsku
lífsformi og hugsunarhætti. „Við verð-
um að rækta okkar eigið lífsform og
hugsunarhátt. Eg er hlynntur heima-
stjórninni, en hún er aðeins eitt skref á
leiðinni til fulls sjálfstæðis,“ sagði
Kristian.
Hans Pavia sagði, að eskimóar hefðu
enga hugmyndafræði í evrópskri merk-
ingu þess orðs. En „hugmyndafræði“
þeirra stendur samt nokkuð nærri sósía-
lisma. Eskimóahreyfingin hefur ekki
bundið sig í fjötra hugmyndafræðinn-
ar, heldur reynt að líta raunhæft á hlut-
VINNAN 13