Vinnan


Vinnan - 25.10.1979, Qupperneq 17

Vinnan - 25.10.1979, Qupperneq 17
Þess má geta hér, að 5 búfræðmemar eru við stöðina. Nám þeirra tekur 3 ár og er þriðja árið fólgið í námi við bú- fræðiskóla á Islandi. Narssaq er um 38 km frá Qaqortoq og þangað komum við eftir nokkuð taf- sama siglingu, því ísinn var orðinn mjög mikill og þéttur. Kynjamyndir borgar- ísjakanna eru vissulega tilkomumikil sjón, en jafnframt þýddi þessi ís vitan- lega aukna erfiðleika fyrir fiskimenn þessa lands. Narssaq byggir einmitt á fiskveiðum og fiskiðnaði, auk þess sem þar er eina sláturhúsið á Suður-Græn- landi. Einnig kom fram við viðræðum við þau Agnethe Nielsen bæjarstjóra, Torben Emil Vinge forseta bæjarstjórn- ar og Ole Egede bæjarfulltrúa og for- mann verkalýðsfélagsins á staðnum, að þar er sútunarverksmiðja, skrautsteina- slípun, silfursmíði, hótelrekstur, ali- fuglarækt og minkarækt. — Ibúar í Nars- saq eru um 2300. Þá má geta þess, að í Kuma-fjalli, skammt frá Narssaq, hefur staðið yfir tilraunavinnsla á úrani sl. 20 ár og er þeirri vinnslu stjórnað af íslenskum verkfræðingi. Bæjarstjórninni er mjög umhugað að vinnsla þessa verðmæta málms hefjist þar fyrir alvöru og mun að öllum líkindum óska eftir að fá ítök í vinnslunni. Með tilliti til umsagna pólitísku fulltrúanna um stefnu flokk- annna í námuvinnslumálum, ættu menn Tilraunastöð landbúnaðarins í Upernaviars- suk. A efri myndinni segir Poul Bjerge (í peysu) frá starfseminni, en á þeirri neðri sést hluti gróðurreitanna. ekki að verða hissa þegar það er upp- lýst, að bæjarstjórnin í Narssaq saman- stendur af 6 Atassuturum, einum Siumu- tara og einum óflokksbundnum. Nokkur húsnæðisskortur er í Narssaq. Og það er dýrt að byggja. Svo dýrt að jafnvel okkur Islendingunum blöskraði. Það kostar rétt tæpar 30 milljónir ís- lenskra króna að byggja 60 fermetra hús á einni hæð úr timbri, klæ+t báru- j árni. Avataq frystihúsið Eins og fyrr er sagt litum við inn á tvo vinnustaði í Qaqortoq; sútunarverk- smiðju og frystihús. Þær heimsóknir verða ekki tíundaðar hér, en ég get ekki látið hjá líða að minnast hér á eitt at- riði, sem vakti athygli okkar Islending- anna. Eins og alkunna er hefur því löngum verið haldið fram hérlendis, að það þýddi ekki að fullvinna hér fisk til út- flutnings í neytendaumbúðum, tilbúinn til neyslu. Það sé svo óhagkvæmt. Betra sé að eiga fabrikkur í útlöndum og vinna þar hráefni sem kæmi héðan hálf- unnið. Á Grænlandi vita menn sennilega ekki um þessa óhagkvæmni. Þess vegna fram- leiðir Avataq frystihúsið þess konar vöru, flytur hana á Evrópu- og Ameríku- markað og gerir það gott. Ekki aðeins fisk vel að merkja, heldur einnig hval- buff og fleira. Umsvifin eru sífellt að aukast og í ráði er að stækka húsnæðið um helming, úr 600 fermetrum í 1100. Séu menn með þær hugmyndir, að hér byggi Grænlendingar á gömlum við- skiptasamböndum, er hægt að upplýsa það hér og nú, að fyrirtækið er aðeins tæplega tólf ára gamalt. Það var upphaf- lega einkafyrirtæki en átti að hætta rekstri 1977 og var þá breytt um rekstr- form að undirlagi sveitarfélagsins. Það keypti húsið og nú er fyrirtækið rekið á samvinnugrundvelli með þátttöku bæjar- félagsins. Og það var raunar ekki fyrr en eftir þessa breytingu á rekstrarform- VINNAN 15

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.