Vinnan


Vinnan - 25.10.1979, Side 20

Vinnan - 25.10.1979, Side 20
Nokkrir fundarmanrm á ráðstejnu Lœknafélagsins um atvinnuheilbrigSismál. (Mynd'r: Vinnan, -hm). ing eru vandamál á mörgum vinnustöð- um. Á flestum iðju- og iönaðarvinnustöS- um er unnið úr eða notuð við fram- leiðslu ýmis hættuleg efni eða efnasam- bönd, sem geta orsakað atvinnusjúk- dóma. Vinnuaðstöðu og vinnutilhögun er víðast lítill gaumur gefinn. Röng vinnu- aðstaða, einhæf störf og stöðug endur- tekning sömu hreyfinga veldur líkam- legu erfiði og sliti. Starfsmannarými, þ. e. matar- og kaffistofur, bað-, fataskipta- og snyrti- aðstaða er víða ófullnægjandi eða jafn- vel ekki fyrir hendi. Þar sem þessi að- staða er fyrir hendi eru þrif víða ófull- nægjandi og umgengni eftir því. Alvarlegasta vandamál á vinnustöð- um verkafólks í framleiðsluatvinnu- greinunum er að mínum dómi mikil óhreinindi í vinnusölum og á vinnu- svæðum, sem koma m. a. frá ýmiss kon- ar hráefnum sem notuö eru við fram- leiðsluna og vinnuframkvæmdir. Það virðist svo að verkafólk, verk- stjórar og atvinnurekendur sætti sig við óhreinindin og telji þau óhjákvæmileg, og er því lítið gert til að fjarlægja þau. Þar sem mikil óhreinindi myndast þarf að sj álfsögðu meiri og betri hreins- un heldur en annars staðar. I flestum starfsgreinum framleiðslu- atvinnuveganna er vinnutími verkafólks, sem þar starfar að jafnaði, um 50 klst. á viku, þ. e. um helmingur af vikulegum vökutíma. Á vissum árstíma og við tímabundin verkefni er vinnutími verka- fólks í þessum starfsgreinum oft tals- vert lengri, jafnvel sem nemur öllum vökutíma þess. I nokkrum starfsgreinum, svo sem fiskiðnaöi og byggingaiðnaði, eru við- höfð afkastahvetjandi launakerfi sem leiða til aukins vinnuálags, umfram það sem eðlilegt er. Vinnuslys eru tíð og stafa m. a. af ófrágengnu húsnæði og vanbúnaði á vélum og vinnutækjum. Samkvæmt upplýsingum úr skýrslu Oryggiseftirlits ríkisins, sem kom út á sl. ári, voru tilkynnt 740 vinnuslys, þar af 20 dauðaslys, til Öryggiseftirlits rík- isins á árunum 1970-1977. Vitað er að ekki er nærri alltaf til- kynnt um vinnuslys til Öryggiseftirlits- ins eða lögreglu. Fullnægjandi upplýs- íngar um fjölda vinnuslysa liggja ekki fyrir. Slíkir dvalarstaðir eins og vinnustað- ir framleiðsluatvinnugreinanna, sem hér hefur lauslega verið lýst, eru ekki eftir- sóknarverðir. Til vanbúnaðar og slæmra hollustu- hátta á mörgum vinnustöðum verka- fólks og hins langa vinntíma má áreið- anlega oft rekja orsakir heilsutjóns og sj úkdóma. Þeir aðilar sem átt hafa og eiga að láta sig varða aðbúnaö, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, hafa undan- farin ár ýmist ekki valdið verkefninu eða lítið sinnt þessu málefni og lagt meiri áherslu á aðra þætti lífskjaranna. Eftirlitsstofnanir þær sem samkvæmt gildandi lögum eiga að gæta þess að lög- um og reglugerðum um aðbúnað, holl- ustuhætti og öryggi á vinnustöðum sé framfylgt, virðast ekki hafa ráðið við það verkefni, m. a. vegna gallaðrar lög- gjafar og fjárskorts. Læknar hafa ekki almennt skipt sér mikið af heilbrigðismálum vinnustaða, og hafa veriö tregir til að úrskurða hvort um vinnusjúkdóma væri að ræða, sem rekja má til vinnuskilyrða eða holl- ustuhátta á vinnustöðum. Samtök launafólks hafa ekki rækt sem skyldi aðbúnaðar- og heilsuvernd- arþáttinn við uppbyggingu lífskjara launafólks, og launafólk hefur sjálft ver- ið áhugalítið fyrir aðbúnaði og heil- brigðisástandi vinnustaða. ASeins ein- stök verkalýðsfélög og sambönd hafa boriö fram kröfur eða tillögur um úr- bætur í þeim efnum. En við gerð kjarasamninga í mars til júní 1977, sólstöðusamninganna, lögðu ASÍ og aðildarfélög þess fram tillögur um úrbætur varðandi aðbúnað, holl- ustuhætti og öryggi á vinnustöðum verkafólks. I apríl 1977 varð samkomulag milli ASÍ annars vegar og YSÍ og VMSS hins vegar um að fara þess á leit við ríkisstjórnina að löggjöf um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum yrði endurskoðað og að samið yrði lagafrumvarp, sem gæti orðiö grund- völlur verulegra umbóta í þeim efnum og að framkvæmd yrði könnun á ástandi aöbúnaðar, hollustuhátta og öryggis vinnustaða. Ríkisstjórnin varð við þessu erindi aðila vinnumarkaðarins og skipaði í september 1977 nefnd til að framkvæma tilmæli þeirra. I nefndina voru skipað- ir níu menn, ráðuneytisstjóri félags- málaráðuneytisins, sem jafnframt var formaður nefndarinnar, forstöðumaður heilbrigðiseftirlits, öryggismálastjóri og sex menn tilnefndir af aðilum vinnu- markaðarins. Orn Bjarnason skólayfir- 18 VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.