Vinnan


Vinnan - 25.10.1979, Page 24

Vinnan - 25.10.1979, Page 24
hans hjá CCOO, Marcelini Camacho, er UCD nú að þokast lengra og lengra til hægri, en því hefur löngum verið haldið fram, að innan þess flokks finni hægri jafnaðarmenn sitt helsta athvarf. Sem sönnun fyrir þessu benda þeir félagar á frumvarp til nýrrar vinnulög- gjafar, sem lagt hefur verið fram. Upp- haflega var verkalýðshreyfingunni heit- ið að hún fengi að hafa hönd í bagga með samningu frumvarpsins, en það loforð var svikið. Það voru einungis embættismenn stjórnarinnar sem fengu að koma nálægt samningu þess. Lögin kveða á um 44 stunda vinnu- viku og þau gefa fyrirtækjum mjög frjálsar hendur með að fækka starfs- fólki með „endurskipulagningu“. Cama- cho og Redondo kveða jafnvel svo fast að orði, að kalla þetta frumvarp bæði miðaldalegt og frankóískt (þ. e. í anda Frankós). — Lögin beinlínis kalla á árekstra við verkafólkið, því það mun ekki sætta sig við þau, fullyrti Camacho þegar frumvarpið var lagt fram. Baráttuandinn 1. maí sl. var augljós sönnun þess, hve vel samstarf samband- anna tveggja hefur heppnast. I Madrid einni fengu þau, ásamt nokkrum smærri samböndum, um hálfa milljón manna í kröfugöngu sína. Þetta var í þriðja sinn sem 1. maí var raunverulega minnst, eftir að verkafólk hafði um árabil verið undir járnhæl Frankóstjórnarinnar og orðið að taka þátt í hátíðarhöldum kirkjunnar, „1. maí vegna heilags Jósefs, verkamanns- ins“, eins og það var kallað. Göturnar voru í ár sem haf af fagn- andi fólki, en bæði ræður dagsins og slagorðin voru af alvarlegra taginu. Efni þeirra var hægra ofbeldið, sem sífellt krefst fleiri mannslífa, og atvinnuleysið; „hið raunverulega hryðjuverk“, eins og eitt slagorðið hljómaði. - Hversu alvar- legt það er má sjá á því að nú eru rúm- lega ein og hálf milljón manna atvinnu- laus á Spáni og sú tala hækkar um 25.000 í hverjum mánuði. (Byggt á LO-blaðinu; -hm.) Fyrst börðust þeir gegn fasismanum, svo voru þeir fangelsaðir undir einrœðisstjórn. Nú berj- ast þeir á nýjan leik. Blaðamaður danska LO- blaðsins tók mynd af þessum áttrœðu öldung- um þar sem þeir voru að líma upp 1. maí- veggblöð. 22 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.