Vinnan - 25.10.1979, Síða 27
ið var á ráðstefnu frjálsra verkalýðsfélaga
í Caracas, Venezuela, að bjóða þessu stríðs-
hrjáða landi umfangsraikla aðstoð.
Markmið viðræðnanna í Nicaragua var að
kanna á hvern hátt annan ASFV og aðildar-
félög þess geta aðstoðað við þróun styrks lýð-
ræðiskerfis í Nicaragua.
Ráðstefnan í Caracas, sem haldin var af Al-
þýðusambandi Venezuela, ASFV og svæða-
samtökum innan þess í Suður- og Norður-
Ameríku, fagnaði sigri alþýðunnar í Nicara-
gua í baráttunni gegn stjórn Somoza. Eink-
unnarorð ráðstefnunnar voru: „Til frelsis og
lýðræðis" og hvatti hún til „ákveðinna og
markvissra, sameiginlegra aðgerða, til að gera
verkalýð Nicaragua kleift að leggja fram sinn
eðlilega skerf til grundvöllunar lýðræðis og til
stjórnmálalegrar, efnahagslegrar og félags-
legrar enduruppbyggingar Nicaragua."
Á ráðstefnunni kom saman nefnd sú er Al-
þjóðasambandið hefur skipað til verndar
mannréttindum og réttindum verkalýðsfélaga
í Suður-Ameríku. Á fundi sínum ákvað nefnd-
in að herða á aðgerðum verkalýðsfélaga gegn
stjórn Pinochet í Chile. Hvatti nefndin aðild-
arfélög ASFV og Alþjóða vinnumálastofnun-
ina til þess að „skipuleggja sérstakar aðgerð-
ir, þar á meðal viðskiptabann, vikuna 9.-16.
september 1979. Yrðu þessar aðgerðir fyrsta
skrefið í stuðningi við alþýðu Chile, í baráttu
hennar fyrir frelsi, lýðræði, mannréttindum og
fullum rétti verkalýðsfélaga“. Hverju aðildar-
sambandi ASFV var í sjálfsvald sett að á-
kveða og skipuleggja sínar aðgerðir, miðað
við stöðu sína og tækifæri.
1 lokayfirlýsingu ráðstefnunnar segir að
verkalýðshreyfing Suður-Ameríku verði að
skapa og styrkja „lýðræðislega vitund" í þess-
um heimshluta. „Verkalýðurinn má ekki vera
ópólitískur og takmarka sig við efnahagslega
hagsmunabaráttu, því fremst verkefna hans er
að byggja kerfi stjórnmálalegs frelsis ... sem
grundvöll fyrir umbótum á aðstæðum verka-
lýðsins til lífs og vinnu.“
Kersten, aðalritari, vék að þessu atriði í
ávarpi sínu á ráðstefnunni, er hann sagði:
Verkalýðshreyfing sem er hlutlaus í stjórnmál-
um og sem beitir sér einvörðungu við efna-
hagsleg vandamál, er hvergi nægjanleg nema
í þeim þjóðfélögum þar sem lýðræðisleg
stjórn stendur á sterkum grunni og þar sem
frelsi allra einstaklinga til félagamyndunar er
viðurkennt í raun.“
Ráðstefnuna sóttu fulltrúar frá verkalýðs-
hreyfingum allra landa Suður-Ameríku, að
Kúbu og Haiti undanteknum, svo og frá mörg-
um Evrópuríkjum og frá Kanada.
AFRÍKA:
Habib Achour og
átta télagar hans náðaðir
Eins og sagt hefur verið frá í Vinnunni (sjá
síðasta tbl.) var Habib Achour, aðalritari al-
þýðusambandsins í Túnis, dæmdur í 10 ára
þrælkunarvinnu á síðasta ári. Sakargiftir voru
þær að hann hefði átt þátt í eins dags verk-
falli, sem gert var í Túnis 26. janúar á síðasta
ári. Verkfallið var fyllilega löglegt, en meðan
á því stóð brutust óeirðir sem kostuðu 51
mann lífið, auk þess sem 325 slösuðust. Þess-
ar óeirðir voru síðan notaðar íil að dæma
Achour og fjölda félaga hans til fangelsisvistar
fyrir „aðgerðir gegn ríkinu".
Dómarnir yfir Habib Achour og félögum
hans í verkalýðshreyfingunni í Túnis hafa
valdið gífurlegri reiði um heim allan og mót-
mælum hefur rignt yfir Bourguiba, forseta
landsins, þar sem þess hefur verið krafist að
þeir félagarnir yrðu látnir lausir.
Þessi barátta alþjóðlegrar verkalýðshreyf-
ingar hefur nú borið árangur. Þann 3. ágúst
síðastliðinn náðaði Bourguiba forseti Habib
Achour og átta aðra félaga hans, ónafn-
greinda.
LYKKJULOK er á dósunum.
Þú opnar það með einu handtaki,
hitar kornið og berð fram
með steikinni öllum til
óblandinnar ánægju.
Svona auðvelt er það.
VINNAN 25