Vinnan - 01.11.1984, Síða 1
Annríki
vinnan
Mikið annríki hefur verið á skrifstof-
unni og hjá miðstjórn ASÍ vegna undir-
búningsvinnu fyrir 35. þing ASÍ, sem
haldið verður að Hótel Sögu dagana
26. til 30. nóvember. Verið er að senda
ýmis þingskjöl til verkalýðsfélaganna,
þar á meðal drög að helstu ályktunum
sem lagðar verða fyrir þingið í haust.
Afmælismerki
f haust er væntanlegt afmælisblað
Verkamannasambands íslands en sam-
bandið varð 20 ára þann 9. maí sl. í
tilefni afmælisins lét sambandið gera
merki félagsins, sem sést hér að ofan.
4. tbl. 34. arg. 1984
Hús Sóknar og Framsóknar
Stárfsmannafélagið Sókn, sem varð 50 ára 20. júlí sl., er nú að byggja mjög
myndarlegt framtíðarhúsnæði við Skipholtið. Framkvæmdir hafa gengið mjög vel,
en enn er ekki vitað hvenær félagið getur flutt inn. Arkitekt hússins er Kristinn
Ragnarsson, verktaki Friðgeir Sörlason, en umsjón með byggingunni fyrir hönd
Sóknar hefur Ásmundur Ásmundsson, verkfræðingur. Verkakvennafélagið
Framsókn hefur keypt hluta af húsinu undir sína starfsemi.
Ungt
fólk
í starfi
Vinnan fékk unga
skólastúlku, Hrönn
Hilmarsdóttur, til að
spjalla við nokkra
unglinga um það
hvernig þeim tókst að
næla sér í sumarvinnu.
„f gegnum klíku, auð-
vitað", svaraði einn í
glensi. Sjá bls. 14 og
15. Myndin sýnir
Magnús Jón Björns-
son að störfum hjá
Járnsteypunni.
í stuttu máli
VINNAN
Við erum býsna roggin yfir því að hafa
gengið þannig frá öllum árgöngum
Vinnunnar að auðvelt er að finna ein-
stök blöð eða árganga, ef einhver vill
kaupa eldri blöð. Verð eldri blaða er 10
krónur, en nýrri blaða 20 krónur. Við
hefjumst senn handa við að láta binda
inn nokkur eintök af Vinnunni, og
segjum nánar frá því síðar.
Ráðstefna
Miðstjórn ASÍ hefur ákveðið að efna til
ráðstefnu um húsnæðismál, og er nú
hafin undirbúningsvinna fyrir hana.
Nánari tímasetning verður auglýst í
næsta blaði.