Vinnan - 01.11.1984, Blaðsíða 15
lega tillitssamt við mig og þakklátt fyrir
það sem maður gerir fyrir það.
Tekurðu sumarfrí?
— Já, ég fer út um miðjan ágúst með
kór Hallgrímskirkju.
Vinnurðu einhverja aukavinnu?
— Nei, ég hef fastan vinnutíma frá 9
til 5.
Heldurðu að þú getir sparað eitthvað af
kaupinu fyrir veturinn?
— Já, ég reyni að eyða því ekki jafn-
óðum.
Þeim leist
strax vel
á mig
Nafn: Valur Bergsveinsson.
Aldur: 16 ára.
Skóli: Var í Hvassaleitisskóla, fer í
Menntaskólann í Reykjavík.
Starf: Vinnur í vídeóleigu og á Brod-
way.
Valur hvernig fékkstu vinnuna?
- Ég fór í starfskynningu í Brodway
og spurði um vinnu í leiðinni. Þeim leist
strax vel á mig og réðu mig á stundinni.
Svo gekk ég bara inn í vídeóleigu og
bað um vinnu, eigandinn sagði mér að
koma aftur þegar skólinn væri búinn,
en sló engu föstu. Þegar ég kom aftur,
fékk ég meira að segja að velja um
vídeóleiguna og sprunguviðgerðir sem
eigandinn hefur einnig með að gera.
Hefurðu unnið áður á sumrin?
— Já, í fyrra og hittifyrra vann ég í
unglingavinnunni, bar út Vísi og mál-
aði í aukavinnu og þar áður bar ég út
Vikuna.
Hvað færðu í kaup?
- Ég fæ 85 kr. á tímann í vídeóleig-
unni en 110 kr. á tímann í Broadway.
Ertu ánægður með það?
- Já, þetta er ágætt kaup, og ég held
ég fái heldur meira en jafnaldrar mínir.
Þorirðu að gera kröfur?
— Ég er það ungur að ef ég segði
eitthvað yrði mér sparkað.
Tekurðu sumarfrí?
— Já, ég fer til Þýskalands í sumar og
það var ekkert mál að fá frí.
Vinnurðu nokkra aukavinnu?
— Já, ég tek aukavaktir í vídeóleig-
unni.
Hefurðu nokkur fríðindi í sambandi
við vinnunna?
— Já, ég fæ lánaðar spólur ókeypis.
Nú vinnur þú á skemmtistað, hvernig
er að vara alltaf að vinna þegar aðrir
eru að skemmta sér?
- Það er allt í lagi, þetta eru allt eldri
krakkar. Það væri verra ef þeir væru á
mínum aldri.
Gaman
að fá hrós
Nafn: Ólöf Arnarsdóttir
Aldur: 14 ára
Skóli: Laugalækjarskóli
Starf: Vinnur í fiski á Kirkjusandi
Hvernig fékkstu vinnuna?
— Ég sótti bara um, en ég fékk að
vísu ekki vinnu fyrr en um miðjan júní.
Varstu búin að leita lengi áður?
- Nei, ekkert.
Hefurðu unnið áður á sumrin?
- Nei, krakkar fá ekki vinnu fyrr, ég
hef bara verið að passa.
Hvað færðu í kaup?
- Égfæ 55,80 á tímann og útborgað
vikulega, en ef ég vinn á laugardögum
og alla daga til 7, nema á föstudögum,
fæ ég tæpar 3.000,00 kr. fyrir vikuna.
Vinnurðu mikla aukavinnu?
- Já, alltaf þegar ég get.
Finnst þér þetta sanngjarnt kaup?
— Já, ég fæ heldur meira en aðrir á
mínum aldri og mér finnst ég vera mjög
heppin með vinnu.
Hvernig finnst þér að vera í vinnu, er
það öðruvísi en þú hafðir hugsað þér?
— Nei, það er ekkert öðruvísi, það er
gaman að vinna, maður lærir að fara
með peninga og standa á eigin fótum.
Þetta eru aðallega unglingar sem vinna
þarna og það er mjög góður andi.
Gömlu konurnar sem vinna á „Sandin-
um“ eru alltaf að hrósa okkur stelp-
unum.
Er þetta erfið vinna?
- Ég verð svolítið þreytt í fótunum
og bakinu, en mér fannst miklu erfið-
ara þegar ég var að passa, þá var ég frá
8 á morgnana til 11 á kvöldin með tvö
börn og sá um heimilið líka.
Gætirðu hugsað þér að vinna í fiski alla
ævi?
- Nei þakka þér fyrir, ekki alla ævi,
en þetta er allt í lagi-á sumrin á meðan
maður er í skóla.
Tekurðu sumarfrí?
- Já, ég fer í Kerlingafjöll í sumar.
Leggurðu fyrir til vetrarins?
- Já, ogmérfinnstþaðekkerterfitt.
Margir
fengu vinnu
seint
Nafn: Guðný Jóna Guðnadóttir
Aldur: 16 ára
Skóli: Var í Árbæjarskóla, fer í
Verslunarskóla íslands
Starf: Vinnur hjá Skógræktarfélagi
Reykjavíkur
Varstu búin að leita lengi að vinnu?
VINNAN 15