Vinnan - 01.11.1984, Blaðsíða 18
Byggt á reynslu
Þegar starfsemi ráðgjafaþjónustunnar
kemst í fullan gang verður leitast við að
safna saman og byggja á reynslu þeirra
innlendu fyrirtækja sem náð hafa best-
um árangri. Sömuíeiðis verður tekið
mið af langri reynslu fyrirtækja, verka-
lýðsfélaga og hjálparstofnana í Banda-
ríkjunum sem lengi hafa unnið gegn
þessum vanda.
Að slík ráðgjafaþjónusta og meðferð-
arprógramm borgar sig peningalega er
margsannað. Auk allra annarra já-
kvæðra mannlegra hliða á málinu.
Léleg lausn að reka úr starfi
Gömlu leiðirnar - að lifa með vand-
anum eða reka starfsmanninn- eru
hvorug góðar.
Að lifa með vandanum þýðir að at-
vinnurekandi verður að þola rýrnandi
afköst, mistök, fjarvistir, og annað tjón
auk þess sem ástandið getur aðeins
breyst á einn veg, þ.e. versnað.
Að reka starsmann getur heldur ekki
verið lausnin. Oft er um þjálfaðan og
vanan starfskraft að ræða og það getur
kostað fyrirtækið mikið fé að þjálfa upp
mann í hans stað.
Atvinnulaus drykkjumaður er þar að
auki bæði sér og fjölskyldu sinni til auk-
innar byrði svo og þjóðarbúinu öllu.
Auk þess má líka búast við að drykkja
aukist til muna ef manni er sagt upp
störfum, því reynslan sýnir að stór hluti
af sjálfsvirðingu mannsins er tengdur
starfinu.
80—100 þúsund
lifa við
ofdrykkju-
vandann
Gerum ráð fyrir að á íslandi séu 20
þús. ofdrykkjumenn. Hver of-
drykkjumaðuráaðjafnaði 2-3 börn
og oftast maka. Það þýðir að milli 80
til 100 þúsund manns hafa daglega
náin kynni af ofdrykkjuvandanum.
Þar eru þó hvorki taldir með for-
eldrar né vinnufélagar.
Þótt talan væri helmingi lægri, er
fjöldinn eftir sem áður 40-50 þús
manns.
• Á síðastlinum fimm árum hafa um 6.000
sjúklingar verið lagðir inn til meðferðar hjá
SÁÁ.
• Flestir ofdrykkjumenn eru vinnandi menn
á aldrinum 20-40 ára.
ÍSAL:
Stórgróði
að hjálpa
ofdrykkjumönnum
— Þad er ekkert vafamál að
það er stórhagnaður að þvf fyrir
fyrirtæki að hjálpa þeim starfs-
mönnum sínum sem eiga við of-
drykkju að stríða við að losna
undan henni.
Það segir Jakob R. Möiler, ráðu-
nautur framkvæmdastjórnar
ÍSAL.
Frá því vorið 1979 hefur ÍSAL unnið
markvisst að því að hjálpa þeim starfs-
mönnum sínum sem berjast við of-
drykkjuna.
- Starfið hefur borið mjög góðan ár-
angur hingað til. Eg þori ekki að nefna
neinar tölur, en ég gæti trúað að um
75% þeirra sem farið hafa í meðferð á
undanförnum fimm árum hafi staðið
sig upp frá því.
Margir fegnir
- Vandamálið er oft að vita hverjir
þurfa á slíkri hjálp að halda. Auðvitað
kemur fyrr eða síðar að því aö sam-
starfsmenn og yfirmenn sjá á starfs-
manni að hann á við ofdrykkjuvanda-
mál að stríða, en það er alltaf æskilegt
að taka á vandanum áður en allt er
komið í óefni.
-Yfirleitt taka menn þessu vel.
Margir eru fegnir. Þeir gera sér líka
grein fyrir því að þetta er orðið alvar-
Iegt vandamál þegar yfirmennirnir tala
við þá um þetta. Þeir gera sér grein fyrir
því að þetta getur verið síðasti séns, og
vinnan er þeim mikils virði.
ÍSAL hefur þann hátt á að starfsmönn-
um er boðið upp á meðferð -einusinni- á
fullu kaupi í 5-6 vikur, t.d. á meðferð-
arstöð SAÁ. Síðan koma þeir aftur í
sína vinnu.
Borgar sig
— Hingað til hefur þetta gengið mjög
vel og þótt sumir hafi „dottið“ aftur
hefur það yfirleitt verið mjög stutt og
ekki alvarlegt. Þá vita menn líka hvert
þeir eiga að snúa sér og hvar er hjálp að
fá. Það er tiltölulega auðvelt að bjóða
upp á slíka þjónustu í stórum fyrirtækj-
um, en gæti sjálfsagt reynst erfiðara í
fámennum fyrirtækjum.
- En það er ekkert vafamál að þetta
borgar sig fyrir fyrirtækið auk allra
annarra jákvæðra mannlegra þátta. Því
jafnvel þótt ofdrykkjumaður stundi
vinnu sína þokkalega og vanti sjaldan
er hann þó aldrei eins góður starfs-
kraftur og hann væri annars.
Hjálpin er til staða
Fjórði hver sjúklingur sem fór til
meðferðar að Sogni í Ölfusi
1980 hefur ekki snert áfengi
síðan- í allt að þrjú og hálft ár.
Þriðji hver hefur náð verulegum
árangri í glímunni við Bakkus.
18 VINNAN