Vinnan - 01.11.1984, Síða 16
Norræna fataiðnaðarsambandið:
Alþjóðleg samstaða um
afnám barnaþrælkunar
Norræna fataiðnaðarsambandið, sem hefur innan sinna vébanda
fólk í fata- og vefjaiðnaði, hélt ársfund í Bergen 24. maí s.i. Á
fundinum var sérstaklega til umræðu ískyggileg misnotkun bama í
iðnaðarframleiðslu. Sambandið gerði eftirfarandi ályktun vegna
þessa máls:
- Já, ég var búin að sækja um á
nokkrum stöðum, en fékk alls staðar
nei nema hjá skógræktinni.
Hvað færðu í kaup?
- Um 75 kr. á tímann.
Finnst þér þetta sanngjarnt kaup, eða
færðu minna en jafnaldrar þínir?
- Mér finnst það allt í lagi, ég fæ
sama kaup og jafnaldrar mínir í skóg-
ræktinni og svipað og aðrir sem vinna
annars staðar.
Ertu ánægð með vinnuaðstöðuna?
- Nei, alls ekki, við höfum að vísu
skúr til að borða í, en það er ekkert
klósett. En það er gott að vinna úti,
sérstaklega í góðu veðri og mjög gaman
að vinna með öðrum unglingum.
Tekurðu sumarfrí?
- Nei, en ég býst ekki við að við
fáum vinnu nema út júlí, þannig að ég
verð í fríi allan ágúst.
Vinnurðu nokkra aukavinnu?
— Nei, enga, ég vinn bara frá 8 til 4.
Þekkirðu nokkurn sem er atvinnulaus?
— Nei, en margir fengu vinnu seint.
Leggurðu fyrir til vetrarins?
— Já, ég verð að eiga fyrir skólabók-
um og fleiru.
Verulegur sam-
dráttur í hús-
byggingum í Noregi
Verulegur samdráttur er í nýsmíði húsa í
Noregi, eða um 23.2% á fyrstu sex mán-
uðum ársins miðað við sama tíma í fyrra.
Byrjað var á 11.362 nýjum íbúðum, eða
3427 færri en á sama tíma í fyrra.
Mikil aukning í
stálframleiðslu
Stálframleiðsla er í örum vexti í heimin-
um. Á fyrstu sex mánuðum þessa árs
jókst framleiðslan um 15.3%, eða um
222 miljónir tönna miðað við sama tíma-
bil í fyrra. Þessar tölur koma frá 29 lönd-
um sem gefa upp framleiðslu sína til
hinnar Alþjóðlegu jám- og stálstofn-
unar. Aukningin var langmest í Banda-
ríkjunum, 28 prósent. Aukningin í
Noregi var 2.4% og í Svíþjóð 18.6%.
Samband fólks í fata- og vefjaiðnaði á
Norðurlöndum mótmælir mikilli mis-
notkun bama sem eru látin starfa við
iðnaðarframleiðslu. í dag er bama-
vinna útbreiddari en nokkru sinni áður.
í nokkrum löndum em börn látin vinna
allt að 18 stundir á sólarhring. Þau
njóta engra félagslegra réttinda og fá
engin frí. Þeim er hrúgað saman í stór-
um svefnskálum og látin sofa á gólfinu.
Launin eru oftast lægri en svo að þau
geti lifað sómasamlega af þeim. í
mörgum löndum er þessi misnotkun á
börnum meira eða minna opinber og
lögleg þrátt fyrir að mannréttindaskrá
S.Þ. banni slíka vinnuþrælkun og marg-
ar ríkisstjómir hafi fordæmt þessa
þrælkun.
Norræna fataiðnaðarsambandið
krefst þess að ríkisstjórnir Norður-
landa taki þegar í stað fmmkvæði að
mynda breiða alþjóðlega samstöðu til
að vinna gegn þessari þrælkun. Enn-
fremur verða hinar einstöku ríkis-
stjórnir að stöðva verslun við þær þjóð-
ir sem misnota vinnuafl barna.
Norrræna fataiðnaðarsambandið sér
einnig ástæðu til að benda á þær alþjóð-
legu skuldbindingar um velferð barna
sem eru samþykktar af ríkisstjómum
okkar á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna. Þessar skuldbindingar er m.a. að
finna í samþykktum Alþjóða vinnu-
málastofnunarinnar (ILO) nr. 138 og
146 frá árinu 1973.
Misnotkun barna í iðnaði er flókið
vandamál sem tengist fyrst og fremst
hinni miklu fátækt sem ríkir í stómm
hluta heims. Verslunarhættir og hag-
stjórn vestrænna landa mikil áhrif á
afkomu fólks í fátæku löndunum. Þess-
vegna hafa vestræn ríki skyldum að
gegna gagnvart þessu fólki. Það er því
ekki nóg að fordæma misnotkun bama,
heldur verður að taka markvissar pólit-
ískar ákvarðanir til að bæta kjör fá-
tækra um allan heim. Ríkisstjómimar
verða í sameiningu að finna nýjar leiðir
til betri hagstjómar í heiminum. Það er
eðlilegt að Norðurlöndin taki hér
frumkvæðið á alþjóðlegum vettvangi.
FFI (Alþjóðasamband frjálsra
verkalýðsfélaga) hefur í fjölda ára bar-
ist fyrir því að efla fagleg réttindi
verkafólks í þriðja heiminum, og mikil
vinna verið lögð af mörkum til að
stemma stigu við bamaþrælkun. Nú er
verið að kanna nýjar leiðir hjá ILO til
að vinna gegn bamaþrælkuninni. Safn-
að hefur verið gögnum um bama-
þrælkun í fata- og vefjaiðnaði í Thai-
landi og mun FFI nú markvisst vinna að
því að stöðva þessa þróun. En lítið mun
þokast í rétta átt ef ríkisstjómir vest-
rænna ríkja finna ekki hjá sér hvöt til að
taka einarða og opinbera afstöðu í mál-
inu. Norræna fataiðnaðarsambandið
skorar því á ríkisstjómir Norðurlanda
að taka nú þegar fmmkvæðið, bæði á
innlendum og alþjóðlegum vettvangi,
til að stöðva þá vinnuþrælkun barna
sem hér hefur verið lýst.
Frestun
í 3. tölublaði Vinnunnar, sem kom út í
maí, sögðumst við ætla að segja nánar
frá niðurstöðum hópa á ráðstefnunni
um skipulagsmál ASÍ. Þessi umfjöllun
verður að bíða næsta blaðs.
16 VINNAN