Vinnan - 01.11.1984, Síða 21
fengið einn endi ef ekkert er að gert.
Leið alkohólistans er bein braut inn í
dauðann.
En ég var ekki sá eini ímínufyrirtœki
sem átti við þessi vandamál að stríða.
Við vorum nokkrir þessu marki
brenndir.
Og hvort sem það voru yfirmenn
fyrirtækisins, starfsmannafélagið eða
vinnufélagarnir sem stóðu að baki því,
þá kom til okkar í vinnuna maður frá
SÁÁ á þessari örlagastundu.
Vinnuveitandinn gaf klukkutíma frí
og lagði niður vinnu á meðan. Þessi
fundur sem standa átti í einn klukku-
tíma en stóð í nærri þrjá varð mín gæfa.
Þá skildi ég í fyrsta skipti þá staðreynd
að ég var alkohólisti - og hvað það
hafði íför með sér.
Um kvöldið fór ég heim - fékk mér
flösku að venju — en það hafði eitthvað
gerst með sjálfan mig; Fræinu hafði ver-
ið sáð upp á milli mín og flöskunnar.
Daginn eftir hringdi ég í gamlan fjöl-
skylduvin sem starfaði í AA-samtök-
unum og talaði við hann, lengi, lengi.
Og það skipti engum togum, daginn
eftir var ég kominn á minn fyrsta fund
hjá AA-samtökunum.
Eg sótti fundi oft í viku og fékk geysi-
legan styrk. Fjölskyldan kom heim aftur
og ég hélt mér algjörlega frá drykkju í
tvo mánuði. En um áramótin fékk ég
mér eitt glas, hélt að nú væri ég nógu
sterkur. Skildi ekki að fyrir alkóhólist-
ann er eittglas oflítið - en tvö ofmikið.
A augabragði var ég sokkinn í dýpsta
svaðið á ný — en bara um stundarsakir.
Nú vissi ég að það var til björgun. Ég
vissi líka að ég gæti aldrei afborið að
missa fjölskylduna aftur. En ég fann
líka að ég þurfti sjálfur að breytast, að
bara sækja fundi var ekki nóg. ífebrúar
fyrir rúmu ári fór ég í meðferð - í 40
daga. Síðan hefég stundað fundi reglu-
lega hjá AA-samtökunum — oftast
tvisvar í viku. Og ég hef ekki bragðað
áfengi síðan. Ég óttast það. Það er svo
stutt yfir í glötunina.
Ég veit það af eigin reynslu að það
eru margir úti á vinnustöðunum á sömu
braut og ég var. Margir þeirra eru illa
farnir og með sjálfsvirðinguna langt
undir núlli. Ég tel mig mikinn gæfu-
mann að hafafengið ráðgjöf í fyrirtæk-
inu meðan ég enn gatsnúið við.
Ef þú átt við ofdrykkjuvandamál að stríða - eða grun-
ar að þú eigir það - og vilt gera eitthvað í málinu, þá
leitaðu þér hjálpar. Þú veist að drykkjan lagast ekki af
sjálfu sér.
Síminn hjá SÁÁ er 8 23 99 og hjá AA-samtökunum
1 63 73.
Tölvur og fóstur:
Hætta getur verið
fyrir hendi
Nýjar spanskar og sænskar rann-
sóknir sýna að rafsegulsvið - sams-
konar og tölvur gefa frá sér - valda
vanskapnaði á hænueggjum. Venju-
lega eru um 2-3 prósent eggjanna
vansköpuð á einhvern hátt, en þegar
þau voru höfð í rafsegulsviði urðu
20 prósent þeirra vansköpuð.
Vísindamennirnir benda þó á að hér
sé einungis um hænuegg að ræða og
óvíst hvaða ályktanir megi draga af
þessu. Það rafsegulsvið, sem eggin
voru höfð í, var mun veikara en það
sem myndast umhverfis tölvumar.
Hjá eggjunum var tíðnin 100 slög á
sekúndu, umhverfis tölvurnar er
hún 15.000-42.000 á sekúndu.
Yfirmaður Geislavarnarstofnunar
Svíþjóðar, Gunnar Bengtsson, sagði
nýlega I blaðaviðtali að greinilegt
væri að viss hætta gæti verið fyrir
hendi en hún væri trúlega mjög lítil.
Beðið yrði með aðgerðir þar til nán-
ari niðurstöður kæmu í Ijós. Einn
vísindamannanna var spurður
hvernig hann mundi bregðast við ef
dóttir hans ynni við tölvur og yrði
ófrísk.
- Ég mundi hiklaust ráðleggja
henni að koma ekki nálægt tölvum
fyrstu mánuði meðgöngutímans.
í Bandaríkjunum stendur yfír um-
fangsmikil rannsókn á tölvum og
hugsanlegum áhrifum þeirra á fóst-
ur, heilsufar og meðgöngu. Fylgst er
með 7.000 konum allan meðgöngu-
tímann, en allar þessar konur vinna
við tölvur.
Undanfarin ár hefur margt bent til
þess að tölvur geti valdið fósturláti
og vanskapnaði fóstra. Bent hefur
verið á að geislunin eða rafsegul-
sviðið geti átt þar hlut að máli.
Nýtt húsnæði í Noregi:
Drápsklyfjar
Norsk yfirvöld eru nú að fara í saumana
á lánakjörum á húsnæðismarkaðinum.
Mönnum ber saman um að nú sé næstum
ómögulegt fyrir ungt fólk að hefja bygg-
ingaframkvæmdir, svo miklar séu
drápsklyfjar afborgana og vaxta. Á ráð-
stefnu, sem haldin verður í Kristiansand
dagana 22. til 24. ágúst, verða ræddar
framtíðarhorfur og áætlanir varðandi
húsbyggingar. Meðal nýrra leiða sem
ræddar verða á ráðstefnunni er hug-
mynd um að þeir, sem fái lán til nýbygg-
inga, þurfi ekki að borga vexti og afborg-
anir nema af hluta lánanna fyrstu 30
árin.
VINNAN 21