Vinnan - 01.05.2010, Page 11
reisninni. Launafólkfærði sínarfórnirog
frestaði umsömdum launahækkunum til að
leggja sitt að mörkum inn í sáttina. Því miður
hef ég upplifað það svo að launamenn séu
þeir einu sem standa við sinn hluta sáttarinn-
ar. Það gengur auðvitað ekki."
FH: „Ég iít svo á að við séum búin að
framlengja kreppuna að a.m.k. um ár með
sundurlyndi stjórnarflokkanna og síðan
stjórnar og stjórnarandstöðu. Mér virðist
sumir stjórnmálamenn ekki gera sér grein
fyrir ástandinu þegar þeir reyna að slá póli-
tískar keilur sjálfum sér til framdráttar. Síðan
má ekki gleyma því að þetta verkefni að
reisa heilt samfélag við bæði fjárhagslega og
ekki síður siðferðilega er stærra en nokkurt
þing hefur staðið frammi fyrir og engar
hliðstæður eða fyrirmyndir að leita í. Því leita
alþingismenn í smáatriðin sem þeir ráða við.
Mér blöskrar einnig málflutningur manna
sem stóðu í miðjum hrunadansinum á þingi
og tala nú eins og þeir séu nýkomnirfrá
tunglinu og nánast eins og gestir hér. Þeir
eru svo hvítþvegnir af hörmungunum."
HÞS: „Ég tel að ASÍ hafi á vissan hátt misst
af tækifæri til að taka forystu í endurmati á
gildum í þjóðfélaginu með því að ganga ekki
fram fyrir skjöldu hálfum mánuði eftir hrun.
T.d. var tillögum okkar um að ASÍ krefðist
lögreglurannsókna, með húsleitum og til-
heyrandi, á aðdraganda bankahrunsins tekið
fálega og þær svæfðar í nefnd. Við vitum öll
framhaldið og að lögregla hér og erlendis
hefur staðið í umfangsmiklum aðgerðum
vegna þessara hluta. Ég tel aðfélagsleg
hreyfing launafólks eins og Alþýðusamband-
ið er, eigi nú að taka afgerandi forystu í
þeirri uppbyggingu sem framundan er.
Það getur verið sársaukafullt fyrir samtök
sem eru„þverpólitísk" en nú verðum við
að hafa kjark til að ganga fram fyrir skjöldu
og fylgja eftir félagslegum markmiðum
verkalýðsbaráttunnar.
Enduruppbygging samfélagsins verður
ekki án aðkomu launafólks og við verðum að
nýta samtakamátt okkar mun betur en við
höfum gert og fara að setja skilyrði en ekki
alltaf að leita sátta við alla hagsmunaðila.
Það er kominn tími á að laun verkafólks verði
ekki afgangsstærð í samfélaginu heldur sett
í forgang.
Ég vil líka koma að málefnum okkar á lands-
byggðinni en í samdrætti eins og nú gengur
yfir, kemur aðstöðumunur barna launafólks til
menntunar enn betur í Ijós en hingað til. Því
miður er nokkuð um að unglingar hrekist úr
námi vegna efnahagsaðstæðna foreldra - þar
sem um langan veg er að fara og dýrt að búa
fjarriforeldrum."
FH: „Ég tel líka ábyrgð þessara lærðu
sérfræðinga vera mjög mikla. Þar á ég við
stéttir eins og lögfræðinga og endurskoð-
enda. Þeirra leiðsögn hefur verið þannig
■ VINNAN ■ I I
VINNAN