Stefnir - 01.12.1984, Blaðsíða 15

Stefnir - 01.12.1984, Blaðsíða 15
Bifreiðaverkstæði Þórðar Sigurðsson ar, Armúla 36 Bílkraninn sf., Miðbraut33 Bernhöftsbakarí, Bergstaðastræti 4 Bílasmiðurinn sf., Lágmúla 7 Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, Vesturgötu 11-13 Bæjarútgerð Reykjavíkur, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu Bílaleigan ALP, Hlaðbrekku 2 B. Sigurðsson sf., Nýbýlavegi 8 Blikk og Stál, Bíldshöfða 12 B.S.R., Lækj argötu 4 Tjarnargötu 10A Dýraríkið, Hverfisgötu 82 Dynjandi sf., Skeifunni 3H Dale Carnigie-námskeiðin, Giljaland 7 Dreyfing hf., hótelþjónusta, Bankastræti 11 Eika-Grill, Horni Gnoðavogs og Skeiðavogs Erl. Blandon & Co. hf., Sundaborg 13 Edda hf., Sundaborg 42 Einar J. Skúlason hf., skrifstofuvéla- verslun, Hverfisgötu 89 Einar Farestveit & Co hf., Bergstaðastræti 10A Eimskipafélag Islands, Pósthússtræti 2 Fiskverkukn Bessa B. Gíslasonar, Óseyrarbraut 1 Útgáfustarfið Á vegum Sambands ungra sjálfstæöis- manna og aðildarfélaga þess er alla jafnan unnið að útgáfu á bókum og smáritum ýmiss konar. Nú í haust gaf Heimdallur út í annað sinn „Rauðu bókina - leyniskýrsl- ur SÍA“. Bókin kom fyrst út árið 1963, en í henni eru birtar skýrslur frá ungum sósíal- istum sem stunduðu nám í Austur Þýska- landi, meðal annars fyrir milligöngu þeirra Einars Olgeirssonar og Brynjólfs Bjarna- sonar. f skýrslunum skýra námsmennirnir frá reynslu sinni og skoðunum á stjórnar- fari í Austantjaldslöndunum á árunum fyrir 1960. Þegar bókin kom út olli hún miklu fjaðrafoki þar sem hún afhjúpaði skýrslu- höfundana á óvæginn hátt. Þeir báru hins vegar ekki til baka, það sem í bókinni stendur, en höfðuðu mál á hendur Heim- dalli vegna höfundaréttar. Meðal félaga í SÍA, Sósíalistafélagi íslendinga Austan- tjalds, má nefna Hjörleif Guttormsson, Árna Bergmann, Árna Björnsson, Björgvin Salomónsson, Eystein Þorvaldsson, Finn T. Hjörleifsson, Franz Adolf Gíslason, Dr. Ingimar Jónsson, Loft Guttormsson, Guðmund Ágústson, Guðrúnu Hallgríms- dóttur, Hjalta Kristgeirsson, Jón Böðvars- son, Tryggva Sigurbjarnarson, Vilborgu Harðardóttur, Þór Vigfússon, ÞorgeirÞorg- eirsson og fleiri. Umsjón með endurútgáfu bókarinnar hafði Þór Sigfússon, en for- málsorð annarrar úgáfu ritar Sigurbjörn Magnússon formaður Heimdallar. Þá hefur SUS gefið út greinasafn Birgis ísleifs Gunnarssonar, um bók Michaels Voslensky: Nomenclatura. Bókin fjallar um herrastéttina í Sovétríkjunum og þau forréttindi sem hún hefur skapað sér. Greinaflokkur Birgis birtist fyrst í Morgun- blaðinu, en Sigurður Magnússon, sá um útgáfu smáritsins. Formála ritar Geir H. Haarde formaður SUS. Eyverjar í Vestmannaeyjum gáfu fyrr í haust út bók um sjávarútveg á íslandi og inniheldur hún fyrirlestra sem haldnir voru á ráðstefnu Eyverja um sjávarútvegsmál fyrr á árinu. Loks má geta þess að nú fyrir jólin mun Heimdallur senda frá sér bókina „Komm- únisminn", sem er ritgerðasafn eftir Hannes H. Gissurarson. Ofangreind rit eru fáanleg á skrifstofu Sambands ungra sjálfstæðismanna. STEFNIR 15

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.