Stefnir - 01.12.1984, Blaðsíða 7

Stefnir - 01.12.1984, Blaðsíða 7
Hvað er framundan? Geir H. Hciarde Flokksráðs- og formannafundur Sjálfstæðis- flokksins sem haldinn var í október í miðju verk- falli opinberra starfsmanna og bókagerðar- manna, staðfesti enn þann mikla styrk sem Sjálf- stæðisflokkurinn býr yfir. Samstaða og ein- drægni einkenndi fundinn og yfirgnæfði þann blæbrigðamun sem var á afstöðu einstakra full- trúa til þeirra átaka, sem þá stóðu yfir á vinnu- markaðnum. Þessi átök hafa óneitanlega sett mark sitt á atburði þessa hausts og gera hvort tveggja að varpa skugga yfir þann efnahagsárangur sem ríkisstjórnin hefur náð til þessa, og auka óviss- una um hvert framhaldið verður. Kjaradeilur þessa hausts marka óneitanlega nokkur straum- hvörf á ferli núverandi ríkisstjórnar og margt bendir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn verði að vera þess albúinn að beita afli sínu til hins ítrasta á næstunni. Nýafstaðinn flokksráðsfundur og einhugurinn þar er forystu flokksins traustur bakhjarl í því efni, bæði í stjórnarsamstarfinu og gagnvart almenningi. Ástandið í launa- og kjaramálum, nú þegar samningar eru í höfn, er um margt með gamal- kunnum hætti. Fyllsta ástæða er til að óttast að afleiðingar kjarasamninganna verði einnig gam- alkunnar. Reynslan er ólygnust segir máltækið, en í þessum efnum virðist reynsla liðinna ára og áratuga af verðbólgusamningum, þótt ömurleg sé, einskis metin. Feir verkalýðsforingjar af gamla skólanum urðu ofan á, sem ekki hafa dregið lærdóma af reynslunni. Þeir sem lagt hafa ofurkapp á að „hækka kaupið“ urðu ofan á en hinir sem hafa viljað stefna að raunhæfum kaup- mætti og vernda hann síðan með beinum og óbeinum úrræðum t.d. skattalegum aðgerðum, urðu undir. Ríkisvaldið, vinnuveitendur og hinir raun- særri verkalýðsforingjar létu í minni pokann. Verðbólgulausnin var þvinguð fram. Ríkis- stjórnin stóð nú eins og fyrri ríkisstjórnir næsta berskjölduð frammi fyrir þeim þvingunum sem birtast í vinnustöðvunum, þótt löglegar séu. Úr því sem komið var í lok október voru samningar eins og þeir sem gerðir voru, óumflýjanlegir. Það mun væntanlega brátt koma í Ijós hversu hald- litlir samningar af þessu tagi eru fyrir þá sem mest þurfa á raunverulegum kjarabótum að halda. í þeim samningum sem gerðir voru í febrúar á þessu ári var sérstaklega leitast við að liðsinna því fólki með sérstökum aðgerðum án verðbólguhvetjandi launahækkana. Nú var knúin fram hin hefðbundna leið hárra prósentu- hækkana sem kynda munu undir verðbólgunni öllum almenningi til miska. Við þessum breyttu aðstæðum hlýtur að verða brugðist til að tryggja að óraunhæfir kjarasamn- ingar kippi ekki stoðum undan atvinnulífinu í landinu og stefni þar með atvinnu þúsunda manna í hættu. Jafnhliða verður að reyna að verja hag þeirra sem við erfiðust skilyrði búa. Markmið slíkra efnahagsaðgerða hlýtur að verða það, að efnahagslífið komist sem fyrst út úr þeirri verðbólguöldu, sem nú er óumflýjanleg og á sléttan sjó. Það ætti að geta tekist fyrir mitt næsta ár og þá ættu að verða fyrir hendi skilyrði til þess að halda endurreisnarstarfinu áfram með skynsamlegu samstarfi við aðila vinnumarkaðar- ins. Það er mikils um vert að vel takist til í þeim pólitísku og efnahagslegu hræringum sem í hönd fara og að Sjálfstæðisflokkurinn sýni fullan styrk. Hér getur verið um framtíðarhag þjóðarinnar að tefla. Geir H. Haarde formaður SUS. STEFNIR 7

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.