Stefnir - 01.12.1984, Blaðsíða 17

Stefnir - 01.12.1984, Blaðsíða 17
Nr. 2 Jan. 1985 Samið um nýtt orkuverð Orku- og iönaðarráðherra Sverrir Her- mannsson hefur gert viðaukasamnnig við Alusuisse um nýtt orkuverð, sem er íslend- ingum mjög í hag. Hann hefur nú verið stað- festuraf Alþingi. Samningurinn tekurtil þriggja meginatriða. í fyrsta lagi hefur náðst fullt sam- komulag aðila um lausn á öllum deilumálum þeirra vegna liðins tíma og greiðir l'SAL íslenska ríkinu þrjár milljónir bandaríkjadala í sáttafé. Er það samdóma álit þeirra sérfræð- inga sem með þessum deilumálum hafa fylgst að miðað við allar aðstæður og að því gefnu að samhliða sáttagerð sé samið um talsverða hækkun orkuverðs þá séu sættir mjög viðun- andi lausn þessarar deilu. í öðru lagi er samið um tilteknar breytingar á nokkrum ákvæðum aðalkjarasamnings sem m.a. taka til eignarað- ildar að ÍSAL, þannig að Alusuisse hefur nú heimild til að framselja eignarhluti í félaginu. í þriðja lagi er samið um stórfellda hækkun á orkuverðinu, tvö- til þreföldun, frá 6.5 mill í gamla samningum til 12.5-18.5 mill sam- kvæmt þeim nýja. Er með þessum samningi þannig gert ráð fyrir að orkuverð sé breytilegt eftir því hvernig markaðsverð á áli í heiminum gerist á hverjum tíma, þó með þeim fyrirvara að það geti lægst orðið 12.5 mill, en hæst 18.5. Með samningnum er dregið fram í dagsljósið skýrar en áður hvaða skaða íslendingar báru af setu Alþýðubandalagsins c/o Hjörleifs Gutt- ormssonar í sæti orku- og iðnaðarráðherra síðustu árin. Nýi samningurinn mun væntan- lega gefa Landsvirkjun 2.230 milljóna króna tekjuauka á fimm árum. Hefði þessi samningur gilt í ráðherratíð Hjörleifs Guttormssonar, frá 1979 til dagsins í dag, væri Landsvirkjun nú í það minnsta 1.800 milljónum króna betur sett. Pólitísk krossferð Hjörleifs og Alþýðubanda- iagsins gegn ÍSAL, sem hafði það eitt að mark- miði að loka álverksmiðjunni kostaði hvern íslending 7.660 krónur í tekjumissi undan- gengin fimm ár, — vísitölufjölskylduna 19.000 krónur. í umræðum á Alþingi snerust vinstri menn gegn samningnum, Alþýðuflokkur, Alþýðu- bandalag og Samtök um kvennalista. Um afstöðu Alþýðubandalagsins efaðist enginn og sömu sögu má segja um kvennalistann, sem með tímanum hefur sýnt sig í að vera ekkert annað en kvennadeild Alþýðubandalagsins. En um Alþýðuflokkinn gegnir öðru máli. Úr þeim herbúðum var búist við málefnalegri afstöðu til samningsins en svo reyndist ekki raunin. Flokkurinn virðist málefnalega heillum horfinn. Vinstri menn hafa nefnt nokkur atriði í mál- flutningi gegn álsamningnum. Að taka sáttum í sambandi við deilumálin sé uppgjöf. Mat okkar samningamanna og álit erlendra sér- Atverid. fræðinga renna mjög sterkum stoðum undir þá skoðun að rétt hafi verið að málum staðið með þeim hætti. Sagt er að orkuverð sé mjög víða miklu hærra en samið var um í álsamn- ingnum og Ghana og fleiri ríki nefnd því til sönnunar. f Ghana hefur ekki verið seldur einn einasti neisti á því háa verði, 17 mill, sem íslenskir vinstri menn segja að gildi þar í landi. Þar eins og hér eru þrep í samningum og umrætt þrep sem engum tekjum hefur skilað er þeirra efsta þrep, að því gefnu að álverið fái næga orku til að geta starfrækt a.m.k. fjóra ker- skála af fimm með fullum afköstum. Fáist hins vegar ekki næg orka lækkar verðið. Sé dæmi tekið, þá myndi verðið ef fáanleg orka nægði til að reka tvo kerskála falla niður í c.a. 10 mill. í dag er ástandið þannig að í Ghana tr viðkom- andi álver lokað vegna vatnsskorts. Vitaskuld er orkuverð nokkuð breytilegt, en almennt talað þá er okkar samningur mjög í anda þess sem gengur og gerist í nágrannalöndunum - í Evrópu er meðalverðið 14-15 mill og í Noregi mun lægra eða um 9 mill. Ennfremur liggur Ijóst fyrir að kostnaðarverð raforku til álversins er töluvert undir rafmangsverði hins nýja álsamnings. Einnig er sagt að við hefðum frekar átt að semja um eitt fast verð- eina tölu - í stað þess að tengja verðið við heimsmarkaðsverð á áli. Þetta væri vissulega möguleiki, en það er öllum Ijóst sem með þessi mál fjalla að enginn möguleiki hefði verið á að semja um fasta tölu hærri en c.a. 13 mill. Lægsta þrepið hjá okkur er 12.5 samkvæmt gerðum samningi og gera má ráð fyrir að meðalverð á samningstím- anum geti orðið 15-17 mill. Með því að fast- setja eina tölu væri verið að kaupa örl ítið meira öryggi mjög háu verði. Aðrar viðbárur eru hafðar uppi, en bera þó allar að sama brunni að reynt er að villa um og rangfæra staðreyndir þegar svo augljóslega liggur skýrt fyrir að ál- samningurinn er þjóðinni mjög hagstæður. ÞINGMÁL 1

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.