Blik - 01.04.1948, Side 27
B L I K
23
Þegar Friðrik Jesson lét af
störfum sem félagsforingi Faxa,
gerðist Þorsteinn Einarsson, nú-
verandi íþróttafulltrúi, forystu-
maður félagsins. Mun hann eiga
drjúgan þátt í, hversu giftusam-
lega tókst a'ð fleyta því yfir byrj-
unarörðugleikana.
Þegar Þorsteinn fluttist til
Reykjavíkur árið 1941, tók Ffelgi
Þorláksson við starfi hans um
hríð, en síðan séra Jes Gíslason.
Hann starfaði sem félagsforingi,
þar til seint á árinu 1946, er
breyting var gerð á lögum
„Faxa“ og honum skipt í tvær
deildir. Þá varð Sigurjón Krist-
insson, einn af stofnendum fé-
lagsins, félagsforingi, en séra Jes
varð félagsráðsformaður.
Ári'ð 1941 hófu kvenskátar að
starfa innan félagsins. þeir störf-
uðu undir sömu stjórn og dreng-
irnir, og mun „Faxi“ vera fyrst ís
lenzkra skátafélaga með þesskon
ar skipulagi.
Eftir að stúlkurnar bættust í
hópinn, hafa þær átt mikinn þátt
í að gera félagið svo öflugt, sem
það nú er.
Félagatalan hefur fimmfaldast
frá stofndegi, en nú mun það
telja 121 starfandi skáta. í
Reykjavík starfar flokkur úr
Faxa. Nefnist hann „Útlagar".
I honum starfa þeir skátar héðan
að heiman, sem dvelja í Reykjka-
vík við nám, eða af ö'ðrum ástæð-
um.
Frá upphafi hefur félagið átt
við mikil húsnæðisvandræði að
stríða.
Fyrst í stað fékk það að lialda
fundi sína í Gagnfræðaskólan-
um. Enn í dag eru haldnir sveita-
og deildarfundir þar. Á skóla-
stjórinn, Þorsteinn Þ. Víglunds-
son, miklar þakkir skildar fyrir
þá rniklu hjálp, sem hann hefur
veitt félaginu frá byrjun.
Árið 1942 keypti félagið skála
sinn, Hraunprýði, hér vestur í
hrauni. Voru gerðar á honum
talsverðar breytingar og er hann
nú hinn glæsilegasti.
Hraunprýði er mjög hentugt
til sumarstarfsemi félagsins, úti-
legu og gönguferða, en vitaskuld
getur hún ekki fullnægt þörfum
félagsins á fundahúsi sakir þess,
hve langt hún er frá bænum. Það
hlýtur því að verða takmark fé-
lagsins að eignast húsnæði, sem
í öllu fullnægi þörfum þess.
Skátafélagið Faxi hefur frá
öndverðu reynt að starfa eftir
grundvallarreglum skátahugsjón
arinnar, skátalögunum og heit-
inu. Um hitt má vafalaust deila,
hvort það hefur tekizt.
Innan félagsins hefir alla tíð
verið algert bindindi. Frá fyrstu
tíð hefir Faxi haft mörgum á-
gætis starfskröftum á að skipa og
hafa þar ýmsir örðum fremur
skarað fram úr.
Af stofnendum félagsins eru