Blik - 01.04.1948, Page 28
24
B L I K
LIÐSKÖNNUN
Síminn lét sem óður. væri.
Hver gat það verið, sem hamað-
ist svona í hinum endanum? —
Jú, mikið rétt, það reyndist vera
Konni á vegum ritnefndarinnar.
Ég er kvaddur upp í Gagnfræða-
skóla tíl þess sérstaklega að
kanna „hjörtun og nýrun“ í
þriðju deild. Það er verk, sem
mér lætur, svo að ég snaraðist í
frakkann og skundaði upp í skól
ann.
Hér kemur svo dálítill hluti
af skýrslunni:
nú fimm eftir, þar af þrír i „Út-
lögum“.
Þó áð flestir af stofnendum
Faxa séu þannig horfnir úr röð-
um félagsins, þá hugsum við hin-
ir yngri, til þeirra með þakklæti.
Þeir ruddu brautina og vísuðu
okkur veginn. Nú er það okkar
að taka við af þeim og halda
merki félagsins á lofti, jafnhátt
og þeir hafa gert. Og ef við sýn-
um sömu fórnfýsi og starfsgleði
og þeir, þá er enginn vafi á, að
þáð mun takast.
Megi starf Fáxa blómgast og
dafna á komandi árum, og skipa
sama sess í félagslífi bæjarins og-
undanfarin 10 ár. E. V. B.
í gagnfræðaríki þessu éru garp
ar miklir og meyjar vænar.
Einar Valur er þar kappi
nefndur af haukakyni. Hann er
forvitri, sálmaskáld í betra lagi
og þreytir miðskólapróf.
Sigurður á síðum buxum heit-
ir fóstbróðir hans eða Sigurður
Eyjaskáld öðru nafni. Hann er
talandi skáld og kraftaskáld.
Hans frægasta kvæði er Soðning-
ardrápa. Þar leynist þessi perla:
„Verði nemum öllum áð
ýsusoðningunni.“
Sigurður gaf út „Gaddavír“
en F.inar reit. Þeir fóstbræð-
ur eru tíðast í þriðju deild en
stundum í kolum.
I deild þeirri eru berserkir
tveir og pústrar tíðir. Þeir heita
Gunnar og Emil. Enginn veit
þunga þeirra, en annar kvað
vera í eldhúsvigt en hinn í gorm
vigt. Þeim verður aldrei aflfátt.
Þeir berjast jafnan og fá báðir
sigur. , Gunnar er afreksmáður
svo mikill, að af ber hreint.
Hann berst tíðum við sjálfan sig
og fær oftast sigur í sjöttu lotu.
Hann rekur ættir sínar til Oðins.
Þar er Garðar inn ' goðum
borni. Hann er manna gjörvileg-
astur. Hann er sækonungur svo
mikill, að hann sefur aldrei und
sótkum ási.