Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1992, Blaðsíða 22
Tafla 1.6
Meðalævilíkur nýfæddra í nokkrum löndum1)
Karlar Konur
(ár) (ár)
Danmörk 1992/93 72,3 77,6
Færeyjar 1986/90 72,8 79,6
Grænland 1986/90 60,7 68,4
Finnland 1993 72,1 79,5
ísland 1992/93 76,9 80,7
Noregur 1993 74,2 80,3
Svíþjóð 1993 75,5 80,8
Eistland 1992 64,1 75,0
Spánn 1990/91 73,4 80,5
Bandaríkin 1989 71,8 78,6
Síerra-Leóne 1985/90* 39,4 42,6
Afganistan 1985-90* 41,0 42,0
írak 1990 77,4 78,2
Kína 1985-90* 68,0 70,9
Taíland 1985-90* 63,8 68,9
Ástralía 1991 73,4 80,3
Japan 1992 76,1 82,2
1) Skv. nýjustu tölum í hverju landi. Viðmiðunarár er ekki alltaf það sama.
* Áætlun Sameinuðu þjóðanna.
Heimild: Hagstofa Islands, 1994 b), bls. 447.
1.4.7 Brottflutningur og aðflutningur
Dreifing búsetu á Islandi hefur tekið stakkaskiptum undanfarna áratugi vegna
brottflutnings fólks af landsbyggðinni. Nú er svo komið að meira en 60% þjóðarinnar
býr í Reykjavík og nágrenni.
Árið 1992 fluttu alls 44.763 íslendingar (43.414 árið 1991). Um 60% fluttu innan
sama sveitarfélags og tæplega 14% fluttu annað hvort til eða frá landinu. Á síðustu
árum hafa fleiri ílutt til höfuðborgarsvæðisins en frá því, en fleiri fluttu frá öðrum
landsvæðum en til þeirra (Hagstofa íslands 1993, bls. 39-41). Ef litið er á einstaka
landshluta var flutningsjöfnuður óhagstæðastur á Vesturlandi, Austurlandi og
Vestíjörðum árið 1992. Norðurland eystra var eina landsvæðið, utan höfuðborgar-
svæðisins, sem haíði jákvæðan flutningsjöfnuð 1992. (Hagstofa íslands, 1993, bls.
41.)
1.5 Veðurfar
Tíðni ýmissa sjúkdóma og slysa tengist veðurfari beint eða óbeint. Mannskaðar
geta hlotist af náttúruhamförum eins og t.d. snjóflóðum og fárviðrum. Veðrátta
hefur áhrif á skilyrði gangandi og akandi vegfaranda og hefur t.d. snjór og regn
18