Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1992, Blaðsíða 52
4.5 Lyfjanotkun
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hefur frá árinu 1975 gefið út rit um
notkun lyfja á Islandi. I ritunum eru ýmsar tölulegar upplýsingar um notkun lyfja
sem byggðar eru á tölum um sölu þeirra. Stuðst er við ATC flokkun lyfja og greint
er frá fjölda dagskammta lyfja, DDD sem er skammstöfun á Defined Daily Dose og
er skammturinn skilgreindur sem viðhaldsskammtur lyfs við helstu ábendingu fyrir
notkun þess (Einar Magnússon og Eggert Sigfússon, 1993, bls. 3).
Ef borin er saman heildarlyfjanotkun á Norðurlöndum kemur í ljós að hún er
minnst á Islandi og í Færeyjum, en mest í Finnlandi og í Svíþjóð (sama heimild bls.
23). Lyfjakostnaöur hefur hins vegar um árabil verið langmestur á íslandi (sama
heimild, bls 10). Einkum tveir flokkar lyfja eru áberandi að vöxtum. Það eru
magasárslyf og sýklalyf. Neysla þessara lyfja hefur aukist umtalsvert hér á landi
miðað við hin Norðurlöndin og tiltölulega stór hluti neyslunnar skýrist af notkun
nýrra og dýrra lyfja (Matthías Halldórsson, 1994, bls. 12). Umræður um háan
lyfjakostnaö hófust hér á landi að einhverju marki árið 1986. Seint á árinu 1989 var
byrjað að vinna úr og fylgja eftir tillögum nefndar um lækkun lyfjakostnaðar (sama
heimild, bls. 34). Nánar verður greint frá þeim breytingum sem orðið hafa á
lyfjamálum hér á landi síðustu ár í kafla 6.5.1.
Tafla 4.4 Lyfsala í dagskömmtum 1989 -1992
DDD/1000 íb./dag DDD/1000 íb./dag
ATC-flokkur 1989 1990 1991 1992
A Meltingarfæra- og efnaskiptalyf 207,65 199,05 182,75 170,13
B Blóðlyf (nema B05) 20,27 21,37 20,70 24,08
B Blóðlyf B05 (ml/1000 íb/d) 0,86 0,90 0,90 0,96
C Hjarta- og æðasjúkdómalyf 125,11 124,39 116,37 129,49
D Húðlyf 138,34 172,08 179,02 168,30
D Húðlyf til inntöku 1,77 1,87 1,70 1,72
G Þvagfæral.,kvensjúkdómal., kynhorm. 72,47 77,10 77,47 85,39
H Hormónalyf 16,36 17,62 17,35 18,61
J Sýkingalyf 23,31 24,17 22,67 22,83
L Krabbameinslyf (mg/1000 íb./dag) 267,37 268,03 268,88 315,22
M Vöðva- og beinagrindarlyf 35,56 38,76 34,52 37,78
N Tauga- og geðlyf 129,57 126,43 125,44 134,34
P Sníklalyf 1,32 1,15 1,22 1,33
R Öndunarfæralyf 68,79 73,65 77,04 80,38
S Augn- og eyrnalyf 11,53 11,55 11,22 12,41
V Ýmis lyf 1,66 1,71 3,17 6,04
Skyggðir hlutar eru íöðrum einingum en skilgreindum dagskömmtum (DDD)
Samtals DDD: 715,38 718,82
Heimild: Einar Magnússon og Eggert Sigfússon, 1993,bls.24.
48