Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1992, Blaðsíða 72
6.4 Mannafli í heilbrigðisþjónustu
í árslok 1992 störfuðu um 9.700 (9.600 árið 1991) einstaklingar á
sjúkrastofnunum ýmist í hlutastarfi eða í fullu starfi. Samtals er hér um að ræða
7.285 (7.154 árið 1991) stöðugildi. í ofangreindri tölu er átt við alla þá sem starfa á
sjúkrastofnunum, þ.e. lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, tækna og rannsóknar-
fólk, aðstoðarfólk o.s.frv.
Á heilsugæslustöðvum störfuðu 801 (766 árið 1991) einstaklingar í 558 (543 árið
1991) stöðugildum. Enn eru ótaldir starfsmenn Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur
en þar störfuðu árið 1992 á annað hundrað einstaklingar í 99 stöðugildum. Nokkur
hópur heilbrigðisstarfsmanna starfar á ýmsum öðrum stofnunum sem tengjast
heilbrigðisþjónustunni, s.s. á rannsóknarstofum og við stjórnssýslu. Stór hópur
lækna starfar sjálfstætt og má þar nefna 21 heimilislækni í Reykjavík og fjölmarga
sérfræðinga, í ýmsum greinum læknisfræðinnar, sem reka eigin lækningastofur.
Flestir þessara sérfræðinga starfa einnig á sjúkrastofnunum og eru taldir þar, en
ætla má að um 50 sérfræðingar starfi eingöngu á eigin stofu. Enn eru ótaldir 43
lyfsalar, 105 sjúkraþjálfar, 59 dýralæknar, 28 heilbrigðisfulltrúar, yfir 30 sjúkra-
nuddar og um 220 tannlæknar, sem starfa utan stofnana. Ef á heildina er litið hafa
ekki færri en 11-12 þúsund manns atvinnu af heilbrigðisþjónustu á íslandi sem er
um 10% af heildarmannafla.
Þá eru ótaldir allir þeir sem heilbrigðisþjónustan veitir óbeint atvinnu. Erfitt gæti
reynst að henda reiður á fjölda þessara starfsmanna en dæmi um þetta eru t.d.
starfsmenn við innflutning eða framleiðslu á vörum og tækjum til lækninga.
Eins og á öðrum Norðurlöndum hefur heilbrigðisstarfsmönnum og heilbrigðis-
stéttum fjölgað örar en íbúum. Sífellt færri íbúar eru á hvern heilbrigðisstarfsmann.
Þannig voru t.d. 704 íbúar á hvern lækni 1970, en 341 íbúar árið 1992. Sömu
tilhneigingar gætir meðal margra annarra heilbrigðisstétta, t.d. hjúkrunarfræðinga
og tannlækna, en verulega hefur dregið úr þessari íjölgun eftir 1985 (NOMESKO,
1994, bls. 114).
6.4.1 Skráning mannafla
Eftirtaldir aðilar safna upplýsingum um heilbrigðisstarfsmenn: Landlæknir,
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, starfsmannaskrifstofa ríkisins, heilbrigðis-
stofnanirnar og stéttarfélög. Þær tölur sem hér birtast eru byggðar á upplýsinga-
öflun landlæknis, nema annað sé tekið fram.
Landlæknir safnar á ári hverju upplýsingum um fjölda heilbrigðisstarfsmanna
eftir starfsstéttum á hverri stofnun. Auk þess er safnað upplýsingum um fjölda
stöðuheimilda og fjölda setinna staða. Með stöðuheimild er átt við hversu margar
stöður eru heimilaðar með fjárlögum á ári hveiju, miðað við heilsdagsstarf. Setnar
stöður eru þær stöður sem voru mannaðar á einhverjum ákveðnum tímapunkti, hér
í desember 1991 og 1992.
Leitað er til stofnana sjálfra um fyrrgreindar upplýsingar en auk þess er leitað
eftir upplýsingum frá stéttarfélögum. Sé um misræmi að ræða er reynt að komast að
því í hverju það flest og hafa þá tölu sem réttari reynist.
I töflu B.6.1 í töfluhluta er gefið yfirlit yfir fjölda heilbrigðisstarfsmanna á hverju
heilsugæslusvæði. Þar eru taldar upp hefðbundnar heilbrigðisstéttir og stuðst er við
upplýsingar frá heilbrigðisstofnunum og stéttarfélögum. Reynt er að telja alla
heilbrigðisstarfsmenn hvort sem þeir starfa á stofnunum eða utan þeirra.
68