Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1992, Blaðsíða 56
5.3. Heimahjúkrun
Samkvæmt lögum er framkvæmd heimahjúkrunar verkefni heilsugæslustöðva.
Þannig er framkvæmd hennar úti á landi en í Reykjavík koma fleiri aðilar að þessari
þjónustu (Landlæknisembættið, 1994, bls. 3). Heimahjúkrun er líklega nokkuð
vanskráð þó það sé vissulega misjafnt eftir heilsugæslustöðvum. Á árinu 1991 voru
skráðar rúmlega 87.000 vitjanir hjúkrunarfræðinga á heilsugæslustöðvum vegna
heimahjúkrunar og rúmlega 91.000 á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, en tekið skal
fram að skýrslur vantaði frá 3 heilsugæslustöðvum (sjá töflu B 5.1 í töfluhluta). Árið
1992 voru skráðar rúmlega 96.000 vitjanir hjúkrunarfræðinga við heimahjúkrun á
heilsugæslustöðvum og rúmlega 91.000 á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Skýrslur
vantaði frá 6 heilsugæslustöðvum.
Hjúkrun í heimahúsum fer vaxandi bæði vegna fjölgunar aldraðra og aukins
skilnings á þýðingu heimahjúkrunar samhliða öðrum úrræðum á heilsufars-
vandamálum aldraðra. Það er nokkrum erfiðleikum bundið að bera saman
heildarfjölda vitjana vegna heimahjúkrunar á milli ára, einkum vegna þess að ekki
berast skýrslur um heimahjúkrun frá öllum heilsugæslustöðvum á ári hverju.
Heimahjúkrun hefur þó augljóslega farið vaxandi á undanfórnum árum. Árið 1989
voru skráðar um 133.000 vitjanir á landinu öllu en um 187.000 árið 1992.
5.4 Kynsjúkdómavarnir
Kynsjúkdómavarnir tengjast óhjákvæmilega kynfræðslu. Margir aðilar taka þátt
í kynfræðslu, og þá einkum heilbrigðisþjónustan, skólar og síðast en ekki síst
foreldrar og aðrir forráðamenn barna og unglinga.
Megin markmið kynfræðslu eru að stuðla að heilbrigðu kynlífi jafn líkamlegu,
félagslegu og siðferðislegu, og fyrirbyggja ótímabærar þunganir og loks að lækka
tíðni kynsjúkdóma (Sigríður Jakobínudóttir, 1993, bls. 5).
Síðustu árin hefur mest borið á fræðslu um alnæmi og HlV-smit, sem telst til
kynsjúkdóma. Samfara aukinni umræðu um alnæmi og HlV-smit hefur umræða um
kynlíf, kynsjúkdómavarnir og félagsleg- og siðferðismál tengd þeim aukist stórlega.
Nauðsyn þess að nota smokka við samfarir hefur verið haldið á lofti. í eftirfarandi
töflu má sjá tölur um sölu á smokkum og lykkjum síðan 1982. Svo virðist sem sala á
smokkum hafi farið vaxandi frá 1982 til 1987 síðan dalaði hún nokkuð aftur en náði
fyrra hámarki árið 1992.
Tafla 5.2 Sala á getnaðarvörnum 1983-1991
1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992
Lykkjur 6000 5000 6000 5150 5800 5525 4592 4733 4242 3705
Smokkar 356000 243000 308000 458586 501600 422679 449034 457241 436826 510963
Með tilkomu alnæmis hefur þörfin fyrir rannsóknir á kynhegðun, sem liður í
forvarnarstarfi, orðið augljósari. Árið 1992 var gerð könnun á kynhegðun íslendinga
52