Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1992, Qupperneq 26
2.3 Dánir eftir dánarorsökum
Á árinu 1992 dóu 1719 einstaklingar, 844 konur og 875 karlar, eða 6,5 dauðsfóll á
hverja 1000 Islendinga. Algengustu dánarorsakir, m.t.t. fjölda látinna, eru þær
sömu og hafa verið undanfarna áratugi. Flestir dóu úr sjúkdómum í blóðrásar-
færum, í öðru sæti eru illkynja æxli, þá koma sjúkdómar í öndunarfærum og loks
slysfarir, eitrun og ofbeldi. Samanlagt voru þessir sjúkdómar orsök dauða hjá 92,3%
karla og 85,9% kvenna (sjá ennfremur töflur B 2.1 og B 2.2 í töfluhluta). Fjöldi
látinna karla og kvenna eftir sjúkdómaflokkum er sýndur í töflu 2.1.
Tafla 2.1
Flokkun dánarorsaka 1992
Sjúkdómaflokkur Númer Karlar (%) Konur(%) Alls (%)
Næmar sóttir og aðrir sóttkveikjusjúkdómar 01-07 6 (0,7) 8 (0,9) 14(0,8)
Æxli 08-17 224 (25,6) 206 (24,4) 430 (25,0)
Innkirtla-, manneldis- og efnaskiptasjúkdómar 18-19 7 (0,8) 4 (0,5) 11 (0,6)
Blóð- og blóðvefjasjúkdómar 20 1 (0,1) 3(0,4) 4 (0,2)
Geðsjúkdómar 21 4 (0,5) 3 (0,4) 7 (0,4)
Sjúkdómar í taugakerfi og skynfærum 22-24 9(1,0) 31 (3,7) 40 (2,3)
Sjúkdómar í blóðrásarfærum 25-30 412(47,1) 347(41,1) 759 (44,2)
Sjúkdómar í öndunarfærum 31-32 95 (10,9) 143 (16,9) 238 (13,8)
Sjúkdómar í meltingarfræum 33-34 12(1,4) 33 (3,9) 45 (2,6)
Sjúkdómar í þvag- og kynfærum 35-37 7(0,8) 9(1,1) 16(0,9)
Sjúkdómar tengdir meðgöngu og fæðingu 38-41 0 0
Sjúkdómar í húð og húðnetju 42 0 0 0
Sjúkdómar í beinum, vöðvum og tengivef 43 0 2 (0,2) 2(0,1)
Meðfæddur vanskapnaður og ástand sem á upptök í burðarmáli 44-45 14(1,6) 14(1,7) 28(1,6)
Sjúkdómseinkenni og illa skýrgreint ástand 46 7 (0,8) 12(1,4) 19(1,1)
Slysfarir, eitrun og ofbeldi 47-56 77(8,8) 29 (3,4) 106 (6,2)
Samtals (allar dánarorsakir) 875(100) 844(100) 1719(100)
2.4 Algengustu dánarorsakir eftir aldri
Dánartíðni er breytileg eftir aldri. Alvarlegir fæðingargallar koma oftast í ljós
skömmu eftir fæðingu og þess vegna er dánartíðni töluvert hærri á fyrsta æviárinu
en það sem eftir er af bernsku og unglingsárum.
22