Lindin - 01.04.2003, Qupperneq 29
Þeir sem dvöldu í Vatnaskógi þessi ár
muna eftir svefnsölum Gamla skála og
herbergjunum 12 í Laufskálum. Þá voru
Laufskálarnir vinsælastir. En toppurinn var
þó aö sofa í efstu koju í þriggja hæða koj-
unum í Vatna- og Skógarsal. Þá var mjólk-
in sótt á brúsapallinn niður við veg og
sjoppan í kjallaranum opin 30 mín. á dag
þar sem alvöru viðskipti fóru fram. Einnig
var stundum borðað hvalkjöt við misjafnar
undirtektir.
Allar íþróttir fóru fram utanhúss þar sem
ekkert íþróttahús var til staðar. Fótbolti var
oftast leikinn á malarvelli þar sem nú er
bílastæði fyrir vestan grasvöllinn. Stormur
og Bruni voru elstu og vinsælustu trébát-
arnir í Skóginum en einnig sigldu um vatn-
ið viðarkanóarnir Ormurinn langi og Orm-
urinn skammi. Þá var ekki til Sjónvarp Lind-
arrjóður heldur var bein útsending úr Út-
varpi Lindarrjóður á veislukvöldi við mikinn
fögnuð hlustenda.
Meðal þeirra sem störfuðu í sumarbúð-
unum á þessum árum má nefna forstöðu-
mennina Gunnar Sigurjónsson, Gunnar Jó-
hannes Gunnarsson og Kristján Búason.
Meðal annarra foringja má nefna Kjartan
Gefur á björgunarbátinn á Eyrarvatni.
Einar í essinu sínu.
'K ’
«»
Kjartan Jónsson foringi að
sýna hvernig kasta eigi
kringlu. Aðrir foringjar
og keppendur fylgjast
spenntir með.
Jónsson, Hilmar Baldursson, Sigurvin
Bjarnason, Einar Guðmundsson, Odd Al-
bertsson, Auðun Eiríksson, Sævar Guð-
bergsson, Albert Bergsteinsson, Guðmund
Inga Leifsson og Þóri Sigurðsson. Margir
muna eftir Stinu i eldhúsinu (Kristínu Guð-
mundsdóttur) sem eldaði ofan i starfsfólk
og dvalargesti, en hún var ráðskona i
Vatnaskógi allan þennan áratug.
Sigurvin og Einar skemmtu sér konung-
lega við að skoða gömlu myndirnar. Nokkr-
ar myndir voru valdar úr sem skemmtilegar
og fönguðu stemmninguna í Vatnaskógi á
áttunda áratugnum.
Skógarmannajeppinn við erfiðar aðstæður.
Veislukvöld í unglingaflokki 1973.
Óli Jó, öðru nafni séra Ólafur Jóhanns-
son, sýnir tilþrif á mjólkurkönnunni.
17. júní hátíðahöld á íþróttavellinum 1972.
Skútan góða í góðum byr sumarið 1972.
Sigurvin foringi á stýrinu.
Eldurinn logar glatt á kvöldvöku í Skóg-
arkirkjunni, rjóðri skammt ofan við
Gamla skála.
Góða veðrið notað til að vaða út í Péturs-
sker sumarið 1972.
Líf og fjör í matsalnum að venju enda
margir svangir munnar eftir fjörugan dag.
Fimm svalir gaurar á Svölunni. Raggi fótó
ásamt félögum í leit að myndefni.