Börn og menning - 01.04.2009, Blaðsíða 5
Frá ritstjóra
5
Barnabækur fyrir fullorðna eða
fullorðinsbækur fyrir börn?
í þessu vorhefti Barna og menningar er að
vanda bæði fjallað um nýtt efni og litið til
fortíðar. Lengstu greinarnar í blaðinu eru um
bækur sem eiga það sameiginlegt að höfða
jafnt til barna og fullorðinna. Undanfarin ár
hafa margar bækur verið gefnar út sem höfða
til ólíkra aldurshópa og menn deila jafnvel
um hvort börn séu að lesa fullorðinsbækur
eða hvort fullorðnir hafi í auknum mæli snúið
sér að lestri barnabóka.
Þótt ákveðin bylgja í þessa átt sé talin hafa
farið af stað með útkomu fyrstu bókarinnar
um Harry Potter er auðvitað ekkert nýtt
að börn og fullorðnir njóti sama lesefnis.
Blaðamaðurinn Tinni, sem einmitt er fjallað
um í þessu blaði, er til dæmis sögupersóna
sem áratugum saman hefur höfðað til eldri
jafnt sem yngri lesenda og það sama má segja
um bækur Tove Jansson um Múmínálfana,
Litla Prinsinn eftir Antoine de Saint-Exupéry
og sögur Lewis Carroll um stúlkuna Alice,
sem á íslensku er oftast kölluð Lísa, en hún
datt ofan í kanínuholu og lenti í Undralandi.
Þótt þessar bækur séu mjög ólíkar þá eiga
þær það sameiginlegt að texta þeirra má
lesa með ólíkum hætti, þær má kannski
segja byggðar á nokkrum hæðum. Hvað
Lísu í Undralandi varðar þá lesa þeir sem
hafa velt fyrir sér rökfræði, heyra vængjaþyt
stærðfræðinnar eða kunna að tefla skék,
bækurnar örugglega töluvert öðruvísi en
þeir sem ekki eru innvígðir f fyrrnefnda
heima. Börn lesa sögu Lísu líklega aðallega
sem skemmtilegt ævintýri um furðudýr og
einkennilegt fólk en þróunarlíffræðingar
nota dæmi úr bókinni gjarnan til að útskýra
hvernig stofnar tegunda þurfa að þróast til
að halda í við síbreytilegt umhverfið. Þá er
vísað í kafla í Through the Looking Glass,
seinni bókinni um Lísu, þar sem Rauða
drottningin og Lísa þurfa að hlaupa til að
standa í stað í umhverfi sem er á fleygiferð.
Þess má til gamans geta að sagan um
Lfsu í Undralandi kom fyrst út árið 1865.
Af þeirri útgáfu eru enn til tuttugu og tvö
eintök. Fyrir nokkrum árum var eitt þessara
eintaka selt á uppboði fyrir 1,5 milljónir
bandaríkjadala, sem miðað við núgildandi
gengi eru 180 milljónir íslenskra króna. Það
er áreiðanlega hæsta verð sem nokkurntíma
hefur verið greitt fyrir barnabók.
Myndin á kápu þessa eintaks af Börnum
og menningu er úr gamalli útgáfu á Alice's
Adventures in Wonderland eftir Lewis Carroll
og er hún eftir Sir John Tenniel.
Þórdís Gísladóttir ritstjóri