Börn og menning - 01.04.2009, Blaðsíða 34
34
Börn og menning
Kristín Ragna Gunnarsdóttir hlaut
Dimmalimm-verðlaunin
Kristín Ragna Gunnarsdóttir, myndlistarkona, hlaut í janúar
Dimmalimm - íslensku myndskreytiverðlaunin 2008 fyrir Örlög
guðanna - Sögur úr norrænni goðafræði, sem hún er höfundur
að ásamt Ingunni Ásdísardóttur.
Aðalsteinn Ingólfsson var formaður dómnefndar en auk hans
voru í nefndinni Kalman le Sage de Fontenay graffskur hönnuður,
sem var fulltrúi Myndstefs og Nanna Kristín Magnúsdóttir,
leikkona, sem var fulltrúi útgefenda. í rökstuðningi dómnefndar
kom fram að lögð var áhersla á að myndirnar væru ekki
einskær endurspeglun textans, heldur ykju þær við hann og
gerðu hann innihaldsríkari og væru jafnvel lífvænlegar utan
bóka. Myndskreytingar Kristínar Rögnu í Örlögum guðanna
þóttu sannarlega uppfylla áðurnefnd skilyrði. Kristín Ragna
beítir flestum þeim brögðum sem fyrirfinnast í sýnisbók
nútímamyndskreytinga; vatnslitatækni, klippimyndatækni og
skopmyndatækni, hún notar allra handa grafísk þrykk og ótal
leturgerðir, alls konar skriftækni frá veggjakroti til skrautskriftar
og vísar auk þess í helstu stílbrögð listasögunnar af allt að
því póstmódernískri uppáfinningarsemi. Myndskreytingarnar
haldast í hendur við texta bókarinnar, efla hann og gæða hann
ævintýralegum Ijóma.
í síðasta hefti Barna og menningar birtist umfjöllun eftir Ernu
Erlingsdóttur um Örlög guðanna, en Erna hrósar verkinu mjög,
og þess má einnig geta að bókin var líka tilnefnd til (slensku
bókmenntaverðlaunanna árið 2008.
á