Börn og menning - 01.04.2009, Blaðsíða 14

Börn og menning - 01.04.2009, Blaðsíða 14
14 Börn og menning Sagan er sögð í fyrstupersónu frásögn stúlkunnar og er söguhetjan bersýnilega sköpuð til þess að lesandinn geti speglað sig í henni og séð þar spegilmynd sem er heldur frýnilegri en sú sem venjulegir speglar bjóða upp á. Stúlkan heitir - í fullri alvöru - Isabella Swan, kölluð Bella. Þrátt fyrir nafnið lýsir hún sér fremur sem Ijótum andarunga en fallegum svani: Hún er klaufsk, andfélagsleg og hefur engan áhuga á útlitinu eða öðrum hugðarefnum unglinga. Sjálfsmynd hennar rímar sem sagt við sjálfsmynd margra ungra kvenna. En öfugt við flestar stúlkur og konur, þá bregst umhverfi Bellu ekki við henni í samræmi við þessa sjálfsmynd - þvert á móti, vinsælustu stelpurnar í skólanum slást um að vera vinkonur hennar og sætustu strákarnir standa í röðum við að bjóða henni út. Það er notaleg tilhugsun að þó að sjálfsmyndin sé í molum geti verið að öðrum finnist maður alveg meiriháttar án þess að maður átti sig á því. Og sé maður hrifinn af öskubuskuþema til að byrja með, þá hefur sagan af tilurð bókanna eflaust nokkuð aðdráttarafl Ifka. Stephanie Meyers er mormónastúlka1 sem lauk BA- prófi f ensku, gifti sig ung og byrjaði að hlaða niður börnum. Hún hafði aldrei skrifað neitt áður en hún byrjaði á bókunum í kjölfar draums um vampírur, en á sex mánuðum skrifaði hún alla fyrstu bókina, varð sér úti um umboðsmann og landaði þriggja bóka samningi við stóran útgefanda. Ástarsaga sem höfðar til fjöldans Ein af skýringunum á því af hverju Twilight- bækurnar höfða til svona víðs lesendahóps, er eflaust sú að í sögunni renna saman tvær bókmenntagreinar á hátt sem gleður unnendur bæði fantasía og ástarsagna. Fólk sem ervantað lesafantasíuren hefurekki lagst eftir því að lesa hefðbundnar ástasögur finnur ^ Eflaust má deila um hversu mikilvæg þessi staðreynd er, en margir gagnrýnendur bókanna telja að í þeim megi finna hugmyndir um hlutverk kynjanna sem megi rekja til trúarlegs bakgrunns Meyer. þarna það sem margir kalla „guilty pleasure" - sem er raunar frasi sem mjög margir lesendur virðast nota um Twilight-bækurnar. Sagan er ólík hefðbundnum fantasíum að því leyti að fókusinn er allur á sambandi aðalpersónanna, og ekki fer mikið fyrir plotti fyrr en í blálokin. Sjóaðir ástarsagnalesendur fá aftur á móti mjög kurteislega kynningu á heimi ævintýrasagnanna - formið er þeim kunnuglegt, en efniviðurinn kryddar lesturinn með áður óþekktu (blóð)bragði. Söguhetjan á eflaust líka sinn þátt í því að konur á öllum aldri lesa bækurnar. Það hefur verið sagt að skilnaðarbarnið sé hinn nýi munaðarleysingi bókmenntanna - dálítið utan gátta og neyðist til að standa á eigin fótum fyrr en hefði verið ákjósanlegt. Bella gengur til dæmis inn í húshald föður síns orðalaust, og reynist vera hin myndarlegasta húsmóðir. Gagnrýnendur bókanna hafa margir nefnt að þó að Bella sé vitundarmiðja sögunnar þá virðist ekki ýkja mikið búa undir yfirborðinu. Við fáum aldrei að vita neitt um framtíðardrauma hennar, ekki kemur fram hvert sé uppáhaldsfagið hennar í skólanum, hún hefur ekki sérstakan áhuga á framhaldsnámi, hún getur þess ekki hvar hún sér fyrir sér að búa þegar hún vex úr grasi, þó að sagan hefjist á því að hún flytji landshorna á milli. Um leið og hún ber Edward fyrst augum, þá verður hann hennar eina áhugamál og samvistirnar við hann hennar eina markmið. Vampíran fagra Játvarður vampíra uppfyllir frekar gamaldags hugmyndir um karlmennskuna. Hann er skilgetið afkvæmi manna á borð við herra Darcy hennar Jane Austen og Rochester Charlotte Bronte. Hann er moldríkur, líkamlega aðlagandi, kemur riddaralega fram, sýnir því mikinn áhuga að vernda ástkonu sína fyrir öllu illu, en undir þessu fágaða yfirborði býr fól sem hann berst við alla daga - vampíran sem kallar á blóð - og sigurinn á þessu villta eðli gerir hann enn eftirsóknarverðari. Það er dálítið merkilegt að hetja sem sækir svo mörg einkenni sín til fortíðarinnar höfði svona sterkt til ungra stúlkna á 21. öldinni. Hegðun 19. aldar mannsins er ekki eitthvað sem fellur að hugmyndum okkar um eðlilega framkomu í dag. Edward verður t.d. uppvís að því að elta Bellu milli bæja, áður en þau kynnast nokkuð að ráði, bara vegna þess að hann ber velferð hennar svo óskaplega mikið fyrir brjósti. Vampírur þurfa auðvitað ekki svefn, svo á nóttunni bregður hann á það ráð að brjótast inn f húsið hennar og horfa á hana sofa - aftur án þess að hún viti það. Hann getur ekki lesið hugsanir Bellu, en það stoppar hann samt ekki í því að lesa hugsanir vinkvenna hennar til að komast að því hvað hún segir um hann. Hvergi í textanum örlar á öðrum hugmyndum en þeirri að þetta sé ferlega sjarmerandi hegðun. Edward er raunar frekar ódæmigerð vampíra, enda hefur Meyer sagt að hún hafi ekki kynnt sér þessa bókmenntagrein áður en hún hóf skriftirnar. Einn af óvenjulegustu eiginleikum hans er sá að hann forðast ekki sólarljós vegna þess að það sé honum banvænt, heldur er það vegna þess að í heimi Stephanie Meyer glitra vampírur rétt eins og þær séu alsettar demöntum þegar sólin skín á þær! Jafnframt er það ekki svo að hann nýti sér langlífið í eitthvað skemmtilegt - einhverra hluta vegna hefur hann dæmt sig til eilífrar vistar í gagnfræðaskóla, því hann var 17 ára þegar hann lést. Þegar hann útskrifast byrjar hann bara upp á nýtt einhversstaðar annarsstaðar. Skírlífisboðskapurinn Einn óvæntasti vinkillinn á því hvernig bókin höfðar til tveggja kynslóða er sá að siðprúðar mæður unglinga í Bandaríkjunum hafa tekið skírlífisboðskap bókanna fagnandi. Málið er þannig vaxið að Bella getur um fátt annað hugsað en að rífa fötin utan af hinum fagra Edward, en hann dirfist hins vegar ekki að koma nálægt henni, því ofurmannlegir kraftar hans gætu reynst dauðlegri ástinni

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.