Börn og menning - 01.04.2009, Qupperneq 7

Börn og menning - 01.04.2009, Qupperneq 7
Upp og niður kanínuholuna 7 MARK HADDON Furðulegt háttalag hunds um nótt Harry Potter segir hún ekki alvöru ævintýri, heldur einhverskonar einfalda skrípamynd af heiminum. Heimur bókanna er ekki alvöru fantasíuheimur að hennar mati, sem lýtur eigin innri lögmálum, hann er aðeins einfölduð eftirmynd. Að mati A.S. Byatt tala bækurnar til fullorðinna lesenda sem hafa aldrei upplifað alvöru ráðgátur. Bækurnar eru skrifaðar fyrir fólk sem lifir á tímum þar sem frægð hefur tekið yfir hlutverk hetjuskapar. A.S. Byatt er einnig á því að fullorðnir lesendur leiti í Harry Potter-bækurnar vegna þess að þeir þrái einfaldleika og huggulegheit, lesendur vilji ekki leggja of mikið á sig. Hér skal tekið fram að hún setur alls ekki allar barnabækur undir þennan hatt, hún bendir á að margar krefjist mun meira af lesandanum en sögurnar af Harry Potter. Margir þeir sem tjá sig um ást sína á barnabókum segja einmitt að þrá eftir einhverskonar sakleysi og eftirsjá eftir einfaldari tímum vegi þungt þegar kemur að áhuga þeirra á barnabókum. Það er einnig vert að minnast á það að margir segjast sækja í lestrarreynslu barnsins. Þegar maður les barnabækur hefur maður jafnframt leyfi til þess að bregðast við bókinni eins og barn, á fölskvalausan og opinn hátt. Margir taka eflaust undir þá skoðun mína að hér sé gert heldur lítið úr lestri barna enda er lestur barnabóka einmitt oft býsna flókinn þar sem samspil mynda og texta getur til dæmis skipt miklu máli. Sumir fullorðnir lesendur segjast enduruppgötva ákveðið lestrarmynstur þegar þeir lesa barnabækur, en þessu lestrarmynstri er iðulega lýst sem hálf áráttukenndu. Þessar vinsælu barnabækur síðari ára séu þess eðlis að ekki sé hægt að láta þær frá sér fyrr en að lestri loknum og svo bíður maður spenntur eftir næstu bók í seríunni. Margir virðast tengja þennan lestraráhuga við barnæskuna og ég er ekki frá því að það sé eitthvað til í því. Sannleikurinn í barnabókum Sumir segjast sækja f barnabækur þar sem þær séu dýpri og merkingarfyllri en annar skáldskapur í einfaldleika sínum. Þær búi yfir tærum sannleika sem höfði til hins saklausa barns. Slíkur boðskapur er af mörgum talinn eftirsóknarverður fyrir fólk sem lifir á flóknum tímum. Dæmi um barnabók sem gjarnan er Á N T o i M E D E S A I N T - E X U P É R Y 0 Ih, SjtiSji fjima. talin búa yfir algildum boðskap sem þessum er Litli prinsinn, sem nýtur meiri vinsælda meðal fullorðinna en meðal barna ef eitthvað er. Portúgalski nóbelsverðlaunarithöfundurinn JoséSaramagosagðieittsinnaðheimurinnyrði betri ef fullorðnir læsu barnabækur. Að hans mati eru barnabækur undantekningarlítíð birtingarmyndir dæmisagna með tilheyrandi siðferðislegum boðskap, sem boðar mikilvæga hluti á borð við samstöðu, virðingu fyrir öðrum og góðmennsku. Það ber þó að taka fram að tilefni þessarar tjáningar höfundarins var frumsýning á söngleik sem byggður var á barnabókeftirhannsjálfan. Einnig má minnast á þá skoðun sumra barnabókafræðinga að fullorðnir eigi hreinlega ekkert með það að ráðast inn í menningarheim barna á þann hátt sem gert hefur verið í barnabókageiranum á undanförnum árum. Hinir fullorðnu séu á góðri leið með að yfirtaka heim barnabókmenntanna en í því felist valdbeiting eins hóps gegn öðrum. í þessu sambandi er þó oft bent á að margar barnabækur séu einmitt skrifaðar með tvöfaldan markhóp í huga, það er að segja að þær höfði til barna á ákveðnu plani en til fullorðinna á öðru. Stundum séu skrifaðar inn upplýsingar eða brandarar sem má reikna með að aðeins annar hópurinn skilji. Þetta má til dæmis sjá greinilega í bókum Lemony Snickett og einníg í Blíðfinnsbókum Þorvalds Þorsteinssonar en þar má finna ýmislegt sem reikna má með að aðeins fullorðnir lesendur skilji til hlítar, til dæmis vísanir í hina þurrpumpulegu akademóna. Sé þessi póll tekinn i hæðina má segja bækurnar séu markvisst ætlaðar báðum hópum og hvorugur hópurinn útiloki hinn þegar kemur að því að njóta þeirra. í nýjum fræðiritum er hinsvegar stundum litið svo á að lesendahóparnir tveir hafi eínmitt

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.