Börn og menning - 01.04.2009, Side 12

Börn og menning - 01.04.2009, Side 12
12 Börn og menning grásleppurfrá Grindavík, billjón baneitraðir beinhákarlar frá Bíldudal, fuglaskítskaupmaður, marglyttu-Mússólíni, fimmtíu fárviðri og fellibylir, skáröndóttir skötuselir, heimsku hámerar, steindauðir steinbítar, göldróttar gaddaskötur, milljón marhnútar, maðksmognar marglyttur, súrsaða sardínudós, kræklóttu krabbarnir ykkar, vangefni vöðuselurinn þinn". Arfleifð Hergés í stað þess að verða blaðamaður og fara sjálfur í fréttaöflunarferðir, varð það hlutskipti höfundar Tinna að „sitja kyrr í sama stað og samt að vera að ferðast". Undir höfundarnafninu Hergé gerðist teiknarinn Georges Remi sófaferðalangur og séndi litla teiknaða manninn Tinna í sinn stað um heim allan, til Egyptalands, Kína, Suður-Ameríku, Arabíu, niður á hafsbotn, og meira að segja alla leiðtil tunglsins, löngu áðuren mennirnir komust þangað sjálfir. Hann var enn að skrifa þegar hann lá banaleguna, 24 bókina, um Tinna og stafrófslistaverkin, Tintin et L'Alph- art, en þar ætlaði höfundurinn að taka fyrir sitt stóra áhugamál, nútímalistina. Bókin var enn á skissuformi þegar Hergé lést úr hvítblæði 3. mars 1983. Hún var gefin út nokkrum árum síðar, ókláruð, og þar með settur punktur aftan við ævintýri Tinna. Bækurnar um Tinna seljast í milljónatali á ári hverju og hafa verið þýddar á yfir 100 tungumál og mállýskur. Arfleifð Tinna, fyrirtækið Moulinsart, er stórveldi sem veltir má fá allskyns Tinna-varning s.s. stuttermaboli, bíla og styttur, sem og rándýr tölusett listaverk sem eru aðeins á færi efnaðra kaupenda. Senn líður að fyrstu kvikmyndinni um Tinna, í leikstjórn Stevens Spielberg, en Spielberg var sá eini sem Hergé treysti fyrir sköpunarverki sínu. Fyrirtæki Spielbergs, Dreamworks, á kvikmyndaréttinn að öllum Tinnabókunum og er stefnt að því að frumsýna fyrstu myndina vorið 2011, helst á fæðingardegi Hergés 22. maí. Höfundur er dagskrárgerðarmaður á Ríkisútvarpinu og Tinna-safnari Helstu heimildir: Michaei Farr: Tintin, the complete companion [Last Gasp, 2002] Michael Farr: The adventures of Hergé, creator of Tintin [útg. John Murray, 2007] Michael Farr: Tintin og co. [útg. Egmont, 2007] Hergé: Allar Tinna bækurnar á ýmsum tungumálum, m.a. í íslenskri þýðingu Lofts Guðmundssonar [útg.

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.