Börn og menning - 01.04.2009, Page 15

Börn og menning - 01.04.2009, Page 15
Ófreskjan tamin 15 hans banvænir milli lakanna. Bella þykist alveg til í að taka sjensinn og freistar hans stöðugt, en hann gefur hvergi eftir - herramaður fram í fingurgóma. Að lokum, það er að segja í seinni bókum, verður það að samkomulagi þeirra á milli að hann láti undan þrábeiðnum hennar um að breyta henni í vampíru strax að lokinni útskrift úr gaggó, en hann setur það skilyrði að þau gangi í hjónaband áður en hann sviptir hana púlsinum. Þá fyrst má fara að athuga eitthvað meira en kossa og faðmlög. Merkilegt nokk hefur þessi þáttur sögunnar aflað henni margra fylgismanna. Maður þarf ekki að hafa lesið margar sjálfshjálparbækur til þess að vita að það er uppskrift að miklum vandræðum að leggja lag sitt við ógæfumann, sannfærður um að hægt sé að breyta honum til batnaðar. Fæstum grundvallarveilum í persónuleikum fólks verður breytt af öðrum en því sjálfu eða þá heilbrigðisstarfsmönnum sem hafa til þess menntun og reynslu. Engu að síður er þráin til þess að breyta elskhuganum til batnaðar mjög rík í mörgum okkar, og margir telja sig hafa fundið hinn eina rétta eða þá einu réttu að frátöldu einu smávægilegu atriði. Smáatriðin sem standa í vegi Bellu og Edwards eru meðal annarra þau að hann gæti ekkert fremur hugsað sér en að éta hana, að hann er tæpum níutíu árum eldri en hún og stjórnsamur með afbrigðum og að til þess að eiga með honum framtíð þarf hún að fórna lífinu sjálfu - en það er hjómið eitt samanborið við það hversu fjallmyndarlegur og dásamlegur hann er. Hver fundur þeirra skötuhjúa sem endar með því að Bella sleppur lifandi er í hennar huga sönnun á því að Edward meti ódauðlega sál hennar meira en bragðgóðan skrokkinn. Andans klám Þessu tengt, þá er það mjög sammannleg tilfinning - burtséð frá því hvað fólk er gamalt - að vilja stundum gera eitthvað algjörlega gegn betri vitund. Og á meðan framkvæmd hugmyndarinnar stendur - hvort sem málið snýst um að keyra ófæra Hellisheiðina, að borða kjúkling sem rann út í síðustu viku eða að hleypa fyrrverandi upp í til sín, þá þráir maður það svo undur-, ósköp heitt að bara í þetta skiptið, þá reynist eðilisávísunin röng. Og kannski er það það sem er svo heillandi við Twilight-bækurnar. Það er augljóslega ekki mjög vel ígrundað hjá Bellu að leggja lag sitt við mann sem vill æstur éta hana og getur ekki boðið henni neina eðlilega framtíð, en hún þrjóskast við og allt fer - þvert á alla skynsemi - vel að lokum. Merkilega margir tala um lesturinn á þessum bókum eins og þeir myndu tala um neyslu kláms. Flissandi, roðnandi, með smá skömmustutilfinningu. Það er eins og lesendum finnist að þetta sé ekki efni sem þeir ættu að hafa gaman af. Og rétt eins og venjulegt klám, er klámsaga af þessum toga líkleg til að vekja deilur. Er þetta bara spurning um saklausa afþreyingu, eða kemst inn hjá lesandanum viðhorf til ákveðinna þátta tilverunnar sem er bæði brenglað og skaðlegt? Höfundur er bókmenntafræðingur

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.