Börn og menning - 01.04.2009, Blaðsíða 25
Þór hamarinn í hendur fyrir slysni en tekur
sendinguna sem tákn frá Óðni, alföðurnum
sjálfum, viðurkenningu á faðerninu, sem
inngöngu í hóp goða.
Úr greipum Heljar
Þór á vinkonu, unga stúlku sem ber það forna
nafn Edda. Hún er f bakgrunni sögunnar,
hefur vit fyrir Þór þegar í harðbakkann
slær, er eins konar kjölfesta eða þráður sem
heldur hinum sterka unga manni við efnið
en það er að bjarga öllu mannkyninu frá
greipum Heljar.
Eins og alltaf stendur baráttan milli góðs
og ills og nú er það Hel, hin hræðilega dóttir
Loka, drottning undirheima, ísdrottningin
sjálf, sem krefst heimsyfirráða og ætlar sér
að læsa allt í fjötur íss og kulda. Loki leikur
tveimur skjöldum eins og ævinlega, skiptir
um ham - er undirferlið holdi klætt. Freyja,
hin kynþokkafulla gyðja, leikur líka hlutverk í
sögunni sem boðberi milli Óðins og Þórs og
Miðgarðsormur er beittur valdi til að bjarga
fólki úr þeim kalda stað, hel.
Sjónarhorn sögumanns sveiflast
milli sögusviða og eykur þar með hraða
frásagnarinnar og gefur lesanda færi á að
fylgjast með á öllum vígstöðvum. Frásögnin
ber keim af kvikmyndahandriti enda er
væntanleg kvikmynd eftir bókinni og mun
það eflaust auka hróður hinna fornu hetja.
Höfundur blandar saman ýmsum sögum
úr norrænu goðafræðinni um goðin og
jötnana, svo sem sögunni þegar Þór glímdi
við Elli kerlingu og tapaði, að sjálfsögðu.
Hann skrifar lipurlegan texta, leyfir sér alls
kyns útúrdúra frá hinum fornu fræðum svo
úr verður fjörleg, spennandi og skemmtileg
saga.
Höfundur er framhaldsskólakennari