Börn og menning - 01.04.2011, Blaðsíða 6

Börn og menning - 01.04.2011, Blaðsíða 6
6 Börn og menning Nú þegar synir mínir eru gengnir langleiðina upp úr lögbundinni æsku er ég hugsi yfir ýmsu sem lýtur að barnauppeldi. Ég er ekki síst hugsi yfir afstöðu foreldra almennt. Svo virðist sem jafnréttisbaráttan hafi fært okkur samfélag sem stofnanavæðir barnauppeldi. Barn er ekki fyrr komið í heiminn en stofnanir taka við því og annast það lungann úr deginum, jafnvel lengur en sem nemur vinnudegi fullorðins fólks. Nú hef ég ekkert á móti leikskólum sem slíkum og hefði sjálfur haft gott af vist á slíkri stofnun, en leikskólar eiga ekki að vera munaðarleysingjahæli. Það er afar vafasamur afrakstur af jafnréttisbaráttunni að foreldrar skuli neita sér að miklu leyti um samvistir við börn undir grunnskólaaldri. Ég hélt að jafnréttisbaráttan hefði ekki aðeins átt að færa okkur val um það hvort við sæktumst eftir frama eða ekki, heldur líka svigrúm til að sinna börnunum okkar fyrstu árin. Niðurstaðan er hins vegar sú að flestir foreldrar vinna fulla vinnu frá því barn verður eins árs eða svo. Þetta eru viðkvæmustu ár barnanna og þörfin fyrir skilyrðislausa ást ofar hverri kröfu. Ráðslag af þessu tagi hlýtur því að hafa áhrif á mótun barnanna. Áður en lengra er haldið skal tekið fram að ég ber mikla virðingu fyrir því starfi sem unnið er á leikskólum. Synir mínir voru á leikskólum í 4-6 tíma á dag og undu sér ákaflega vel. Starfsfólkið var alúðlegt og faglegt í alla staði. Satt að segja er þetta það skólastig sem ég ber hvað mesta virðingu fyrir og síst hefði ég viljað að synir mínir færu á mis við það. En ég hefði ekki heldur viljað að þeir dveldu þar lengur en 4-6 tíma á dag - það fannst þeim sjálfum nóg og báðu aldrei um að fá að vera lengur - og ég hefði ekki viljað missa af samverunni með þeim fyrir og eftir skólatíma. Leikskólakennarar geta seint komið í stað foreldra. Rannsóknir hafa sýnt að mikil fjarvera foreldra frá börnum, t.d. vegna yfirvinnu, hefur neikvæð áhrif á málþroska auk þess sem fylgni er á milli fjarveru og vímuefnaneyslu. Þá hefur Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir fært rök fyrir því, m.a. í bókinni Árin sem enginn man: áhrif frumbernskunnar á börn og fullorðna, að tengslamyndun fyrstu áranna hafi afgerandi áhrif á sjálfsmynd barna, samskiptahæfni þeirra og hæfileikann til að tengjast öðrum á fullorðinsárum. Af þessu leiðir að börn sem lítið hafa af foreldrum sínum að segja á viðkvæmum mótunaraldri fá annars konar sjálfsmynd en hin og margt bendir til þess að fjarvera foreldranna hafi áhrif á hæfni þeirra til að fást við streitu og til að setja sig í spor annarra. Það þýðir að samfélagsgerðin breytist þegar flestir alast upp á leikskólum og kannski erum við þegar farin að sjá merki þess. Það einkennilegasta í þessu öllu er samt að foreldrar skuli hafa fyrir því að eignast börn til þess að koma þeim strax í vistun. Ég var svo eigingjarn að ég gat ekki neitað mér um samveru við syni mína í uppeldinu og sé ekki eftir því. Þetta voru góð ár þótt við hjónin þyrftum að neita okkur um gólfefni og glæsibifreið. Höfundur er rithöfundur

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.