Börn og menning - 01.04.2011, Blaðsíða 31
Vinur sonur bróðir
31
Brynja Baldursdóttir
Vinur sonur bróðir eftir Þórð Helgason
Allnokkur ár eru síðan Þórður Helgason
hefur mundað stílvopn sitt og skrifað
unglingabók en þrjár slíkar komu út eftir
hann undir lok síðustu aldar. Má þar nefna
hina bráðskemmtilegu bók Tilbúinn undir
tréverk frá árinu 1998. Rétt fyrir jól mátti
sjá í flóðinu nýja bók frá Þórði, Vinur sonur
bróðir sem gefin var út af Sölku forlagi.
Vinur sonur bróðir -er fyndin og fjörug
unglingasaga með alvarlegu ívafi. Það er
margt sem gerist á þessum 130 síðum. Sagan
er hröð og atburðarásin kitlar ímyndunaraflið.
Hún fjallar um strákinn Óla sem hefur lokið
níunda bekk og mætti alveg taka námið
ögn alvarlegar. Óli á nítján ára systur en
honum til mikillar skelfingar eiga foreldrar
hans von á sínu þriðja barni og það, að hans
mati, á gamals aldri. Um haustið kemur ný
stelpa í bekkinn og ruglar líf Óla og félaga
hans algjörlega, snýr öllum þeirra hugsunum
á hvolf. Hún gengur um berfætt, kann
námsefnið miklu betur en allir aðrir og er
bara eins og Óli orðar það, ógeðslega klár.
Inn í söguna fléttast bankahrun og mótmæli
en foreldrar Óla taka virkan þátt í þeim með
því að standa við Alþingishúsið með spjöld.
Óli og félagar ganga í Jólakattavinafélagið og
þá byrjar lífið að snúast á sveif með þeim og
vissir hlutir ganga upp.
Þórður kann vissulega að tala til unglinga -
nær til þeirra með hressandi málfari, rfkulegu
myndmáli og orðaforða sem samanstendur
af bannorðum.
Unglingar Þórðar Helgasonar eru bæði
góðir og slæmir, strákar jafnt sem stelpur.
Þau eru ekkert sérstaklega upptekin af
útlitinu eða ( hvaða flíkum menn eigi að vera
nema þegar kemur að öfgum í báðar áttir,
stelpan hún Anna er sögð brjóstalaus og Össi
er í þyngri kantinum. Hin eru ósköp venjuleg
hvað útlit varðar en það er talsmátinn sem
gerir þau sérstök. Unglingabækur byggja
oftast ekki á því sem sagt er heldur á útliti
fólks og gjörðum. Föt, líkami, áhugamál,
skipta miklu meira máli en hvað unglingarnir
segja og hvernig þeir segja það. Þess
vegna eru unglingarnir í sögu Þórðar svo
frábærir. Þeir segja svo margt og eiga svo
skemmtilegan orðaforða að þeir eiga erindi
í sögu. Unglingurinn Óli er einstaklega fær
í líkingum. Hin ólétta móðir hans er að
hans mati eins og loftbelgur! Ef hún getur
staðið upp úr hægindastól má líkja því við
kraftaverk - álíka og göngutúr Jesú á vatninu
forðum daga (59). Beggi vinur hans er ekki
síðri í orðavali. Hann samtvinnar blótsyrði af
stakri snilld, lærir þetta að sögn af afa sínum.
En eftir því sem líður á söguna verður hann
lífsreyndari, sér að blótsyrði bæta ekki neitt
og velur önnur orð: Hefurðu vitað annan eins
andsk..., annað eins á ævinni! (134).
Fyrir utan þá félaga er nýja stúlkan í
bekknum, Æður, skemmtilegasta persónan
í sögunni. Ekta hippastúlka, einlæg og
hreinskilin og hefur munninn fyrir neðan
nefið. Hún ráðskast með alla, skipar fyrir og
stjórnar, allt til góðs til að bæta mannlífið.
Út á hvað gengur sagan? Hvað heldur