Börn og menning - 01.04.2011, Blaðsíða 27

Börn og menning - 01.04.2011, Blaðsíða 27
Pabbi les 27 lesturinn að ég hafði á sínum tíma verið viss um að Dagfinnur væri í raun og veru Gunnar langafi minn. Ásjóna, pípuhattur og klæðatíska Dagfinns kom upp um hann. Þegar ég bar þetta upp á gamla manninn þóttist hann ekkert kannast við málið en blikkaði mig svo á þennan samsærislega hátt sem bara afar kunna. Óvæntasti smellurinn í bókastaflanum var samt kannski klassískasta bókmenntagreinin, hvort sem litið er til barna eða fullorðinna. Það voru þjóðsögurnar. í þessari tilraun hófust langorðar frásagnir gjarna á orðum sem þessum:* 1 Á efri árum Jóns Ormssonar, bónda á Kleifum í Gilsfirði, var á vist með honum ekkja nokkur, er Guðný hét, og sonur hennar, er Jón hét. Dóttur átti hún, sem Ingibjörg hét og átti þá heima f Innri-Fagradal í Saurbæjarhreppi. Það kom ekki að sök. Ættrakningar í f immta lið og upptalning á örnefnum í fjarlægum héruðum hlaut allt athugasemdalaust náð fyrir augum og eyrum stráksins. Ekki spillti ef sérkennileg orð krydduðu textann. „Pabbi, hvað þýðir að vera hvefsinn?", „Er hættulegt að einblína?" eða „Er Kölski sami gaur og Svarthöfði?" Skrýtnastur allra var þó Svartnasi - sem hét þó að réttu lagi Jón og bjó að Kleifum í Gilsfirði. Eitt sinn að áliðnum vetri var Svartnasi sendur af bæ út á Skarðsströnd. Menn fóru að óttast um hann þegar hann skilaði sér ekki á tilskildum tíma enda var þá skollin á hríð. Farið var að leita að honum fáum dögum síðar þegar hríðinni hafði slotað en fannst hann ekki. Löngu síðar voru tveir heimamenn, Guðmundur og Sigmundur að nafni, að renna sér á skíðum. Síðan segir: Rak þá annar þeirra skíði sín í þústu nokkura, en er að var gáð, var það lík Jóns. Tók þá Guðmundur tóbakspontu sína úr vasa sínum og hellti tóbaki upp í nasir Jóns og kvað honum lengi hafa þótt það gott í lífinu, að taka í nefið. Tóku þeir síðan í annan skóinn og drógi líkið á þvengnum, sem freðinn var og fastur um legginn, alla leið heim að Kleifabæ með hlátri og flimti. Líkið var skömmu síðar jarðsungið í næsta kirkjugarði. En svo brá við, er búið var að jarða líkið, að Jón þótti ekki liggja kyrr. Sást hann þráfalt ... og þótti gera ýmsan skaða, einkum drepa skepnur. Sáu hann svo skyggnir sem óskyggnir, og var hann auðkenndur af því, að hann var allur svartur um nefið og dró á eftir sér annan skóinn. Var hann ýmist nefndur Svartnasi eða Kleifa-Jón. Mest sótti draugurinn Svartnasi að gamalli konu sem bjó á prestsetrinu við kirkjugarðinn þar sem hann var grafinn. Lét hann ekki af ásóknunum fyrr en hún hótaði honum því að gera þarfir sínar á leiði hans. Draugsi tók sönsum og var hún síðan í friði. - Aðrar frásagnir af Svartnasa segja frá áflogum hans við karlmenn þar í sveitinni og ýmsum öðrum óskunda. Sagan af Svartnasa hefur þannig að geyma öll helstu atriðin sem nútímabörn krefjast af hverri sögu: dularfulla atburði, slagsmál, draugskap og íslenska fyndni. Niðurstaðan úr þessari lestrartilraun er líklega aðeins sú að bækur eldast misvel. Blyton er búin að vera en það sem er sígilt stendur fyrir sínu. Svo heldur tilraunin bara áfram. Næst eigum við feðgar stefnumót við Bob Moran og Gula skuggann. Ég reikna með góðum endurfundum. Höfundur er íslenskufræðingur 1 Tilvitnanir I þjóðsögur eru teknar úr Cráskinnu hinni meiri I 1962.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.