Börn og menning - 01.04.2011, Blaðsíða 20

Börn og menning - 01.04.2011, Blaðsíða 20
20 Börn og menning hafa haft ólíkar afleiðingar fyrir myndmál myndabókarinnar. Ótti og draumar Myndskreytingar Evu Lindström bera vott um þveröfuga tilhneigingu. Hún hefur á síðustu árum þróað sinn eigin auðkennandi stíl. í síðustu myndabók sinni, Jag tycker inte om vatten (2010), segir hún söguna um drenginn Alf sem hefur óbeit á vatni. Lindström sýnir mikla fágun og hnitmiðun í myndtækni sinni, sem einkennist annars vegar af einfaldleika leikgleðinnar og alvöruleysisins og hins vegar áberandi myndflötum í sterkum litum. Myndabækur Lindströms byggjast oft á áhrifum ókunnugleikans, þar sem venjulegir hlutir og ómerkilegar, daglegar uppákomur eða staðir eru settir á svið á ókunnuglegan eða óvenjulegan hátt. ( Jag tycker inte om vatten er notkun lita þýðingarmikil í frásögninni. Þegar Alf horfir á vini sína baða sig I stöðuvatni er síðan þakin djúpum, flæðandi vatnslitum í bláum, grænum og gráum tónum. Síðar, þegar Alf fellst með semingi á að taka þátt ( kanóaferð, er fljótið málað með stórum, leikandi pensilstrokum til að leggja aukna áherslu á ógnina sem felst í aðstæðunum. Myndabók Lindströms sýnir okkur húmoríska og furðanlega veröld þar sem sjónarhorn og upplifun barnsins er þungamiðjan. Jafnvel Pija Lindenbaum notar áhrif ókunnugleikans í myndabókinni Siv sover vilse 2009. Siv fær að sofa hjá vinkonu sinni í fyrsta sinn. En hún uppgötvar að hlutirnir eru ekki eins og heima. Nýja vinkonan hennar Cerisia býr með mömmu sinni og pabba, stóra bróður og langömmu. Fjölskyldan er í stórri íbúð sem líkist ekkert heimili Siv og það sem er í kvöldmatinn er óvenjulegt. Cerise á einnig gamlan hund, sem Sív þegir um að finnast viðbjóðslegur. Allt hjá þessari fjölskyldu virðist ólíkt því sem hún er vön. Enn er aukið á undarleikatilfinninguna síðar þegar Siv getur ekki sofnað og vafrar - á milli svefns og vöku - um dimma, leyndardómsfulla íbúðina og eftir yfirgefnum göngunum. Tími og rými verða snúin og afmynduð. Einnig í þessu tilviki er litanotkunin meginatriði þar sem litirnir breytast og verða sterkari í þessum draumkenndu, súrrealísku atriðum. Súrrealískt myndmál með kvikri og afbakaðri framsetningu veruleikans er notað til að lýsa því öryggísleysi og þeirri furðu sem aðalpersónan upplifir. Endurvinnsla stíls og tækni Myndtæknin, sem notuð er f mörgum af þessum samtíma myndabókum, vekur upp spurningar um sambandið milli myndskreytingar og annarra sjónmiðla. Notkun stafrænnar myndskreytingartækni hefur opnað nýjar listrænar leiðir og smám saman leitt til breytinga á myndmáli myndabókarinnar. Tækni, sjónrænn stíll og hefðir eru teknar til endurvinnslu og rannsóknar. Endurtekin notkun samklipps ( myndabókum samtímans má almennt skýra með almennri tilhneigingu til að blanda saman miðlum og útbreiddri löngun til að endurnýta það gamla. Grafískir hönnuðir hafa snúið sér aftur að ýmsum stíltegundum og stefjum, bæði úr fágaðri list og dægurmenningu, sem þeir blanda svo saman á óvæntan hátt. Hins vegar er vert að veita því athygli að ólíkt módernískum tilraunum t.d. í fyrstu Ijósmyndasamklippum framúrstefnumanna er notkun stafræns samklipps í myndabókum samtímans hvorki tilraun til að vekja hneykslun eða ögra lesendanum, né höfnun á hefðbundinni myndtækni, heldur frekar hið gagnstæða. Myndskreytar sækja sér frekar innblástur í breidd stíltegunda og stefja sem þeir leitast við að endurvinna. Þessi fjölbreytileiki stíls, tækni og stefja er notaður á nokkuð nostalgískan, en þó einnig húmorískan hátt. Með tilkomu stafrænnar tækni, og mögulega sem viðbragð við henni, hafa myndskreytingar í sænskum barnabókum lagt undir sig breiðara svið og þróast í þverólíkar áttir. Höfundur er kennari við Stokkhólmsháskóla Þýðing: Helga Ferdinandsdóttir

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.